Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1980, Síða 82

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1980, Síða 82
80 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR eðlilegasti burðartíminn. Aftur á móti verður ekkert að ókönnuðu máli fullyrt um slík áhrif hjá fullorðnum kúm. Benda má á, að hugsanlega geti verið einhver úrvals- áhrif að því leyti, að vorbærum kvígum, sem erfiðlega gengur að fá til að festa fang, sé fremur fargað en öðrum kvígum. Þá kemur einnig í Ijós, að tímalengd milli burða hefur allnokkur áhrif á mjólk- urskeiðsafurðir, þar sem fóstrið fer að hafa áhrif á framleiðslu móðurinnar, þegar líða tekur á meðgöngutímann (Schaeffer og Henderson, 1972, Auran, 1974). Af þessu leiðir, að til þess að unnt sé að nota mjólkurskeiðsnyt sem mælikvarða á af- kastagetu kúa, verður um leið að taka tillit til frjósemi þeirra við úrvalið. Við af- kvæmarannsóknir væri æskilegt að geta notað annan mælikvarða á frjósemi en hér er beitt, vegna þess, að eigi að nota tíma- lengd milli burða sem mælikvarða, þarf að bíða þess, að kýrin beri öðru sinni, til að mæling fáist á eiginleikanum. Erlendis er því líklega mest beitt að nota tímabilið frá burði, þar til kýrin festir fang að nýju (days open). Þessar upplýsingar eru ekki í skýrsluhaldi hér á landi. Skráning á fangi kúnna er svo ónákvæm, að henni er greinilega ekki að treysta. Það er því ákaf- lega brýnt verkefni í nautgriparæktinni að koma á tölvuvinnslu sæðingarskýrslna og tengja þær upplýsingar afurðaskýrslu- haldinu. Þá fyrst er lagður grundvöllur að því að taka meira tillit til frjósemi grip- anna í ræktunarstarfinu. Þessum mik- ilvæga eiginleika hefur allt of lítill gaumur verið gefmn í kynbótastarfmu, þó að á því hafi verið fullur áhugi. d) Arfgengisútreikningar. Niðurstöður arfgengisútreikninganna fyrir afurðamagn eru í góðu samræmi við fyrri hérlendar niðurstöður (Magnús B. JÓNSSON, 1968 JÓN VlÐAR JÓNMUNDSSON et. al., 1977). I rannsóknum í Noregi (Rönningen, 1967, Auran, 1976a) hafa komið fram bendingar um meira arfgengi í mjólkurskeiðsnyt en ársnyt. Þetta atriði þyrfti að kanna nánar í nýjum gögnum hér á landi, sem brátt verða fáanleg. Efni- viðurinn, sem rannsókn þessi er reist á, er fremur lítill og skekkja í arfgengisstuðlum þess vegna allmikil. Hið tiltölulega mikla arfgengi, sem fundið er fyrir frjósemi kúnna í þessari rannsókn, hvetur enn til, að athygli sé beint að þessum eiginleika. Sé svo, að arfgengi þessa eiginleika sé jafnmikið og hér er fundið, verður tæpast hjá því komizt að taka tillit til hans í ræktunarstarfinu. Ástæða er til að leggja áherzlu á, að þær tölur, sem hér eru notaðar, eru óleiðréttar og þess vegna hugsanlegt, að í þeim sé einhver kerfisbundinn munur milli nauta, sem valdi skekktu mati á arfgengi. e) Framlengingarstuðlar. Megintilgangur með notkun framleng- ingarstuðla hér á landi hlýtur að vera sá að reyna að auka áreiðanleika í afkvæma- dómi um ung naut með því að geta metið mjólkurskeiðsafurðir þeirra dætra, sem aðeins hafa lokið hluta mjólkurskeiðs, og þannig fjölga dætrum að baki afkvæma- dóminum. Á það hefur fyrir löngu verið bent, að á þann hátt má stytta ættliðabilið og þannig auka erfðaframfarir (Van Vleck OG Henderson, 1961, Syrstad, 1964). Við hérlendar aðstæður, þar sem dætrahópar eru mun smærri en víðast er- lendis, er vafasamt, hve mikið unnt er að nýta þetta. Aðallega mun þetta því koma að gagni til að auka öryggi fyrsta dóms um nautið.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.