Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1980, Page 91

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1980, Page 91
KALKÞÖRUNGAR í HÚNAFLÓA 89 Kalksnauð sýni (<2h kalk) fengust á allmörgum stöðum í sunnanverðum Húnaflóa (1. mynd). Eins og getið var hér að framan, jókst fínefnamagn sýna mjög með dýpi, og kalkmagn minnkaði að sama skapi. Þannig reyndust flest sýni, sem tekin voru á meira en 40 metra dýpi, kalk- snauð samkvæmt þeirri skilgreiningu, sem hér er notuð. A nokkrum stöðum fengust kalksnauð sýni á grunnu vatni, t. d. við austurströnd Miðíjarðar, í Bitrufirði, Steingrímsfirði, Kaldbaksvík, Veiði- leysufirði og Trékyllisvík. Loks er þess að geta, að á allmörgum stöðum náðust ekki sýni í botngreip, og er skýring þess talin sú, að á þeim stöðum sé botn úr föstu bergi (sjá 1. og 2. mynd). Tegundir kalkleifa Talsverður breytileiki er í tegundasam- setningu kalklífvera í seti í Húnaflóa, og fer flokkun setsins hér að framan að veru- legu leyti eftir ríkjandi lífveruhópum í setinu. Hér á eftir verða taldar helztu teg- undir kalklífvera, sem koma fyrir í ýmsum gerðum sets. Kalkþörungaset er, eins og nafnið bendir til, að mestu gert úr kalk- þörungum. Þær tegundir, sem ráða ríkjum, eru rauðþörungarnir Litho- thamnium tophiforme ogL.glaciale (3. mynd), en auk þess er í mörgum sýnum slétt skorpa kalkþörunga (Corallinaceae spp.) á steinvölum og skeljum. Skeljar og skelja- brot eru einnig algeng í kalkþörunga- UMFJÖLLUN Kalkmagn sets Kalkmagn sets á hafsbotni er háð tveimur þáttum, framleiðni kalklífvera annars vegar og blöndun við landrænan fram- burð hins vegar. Dreifmgu þá, sem fram setinu. Áberandi eru skeljar hörpudisks (Pecten islandicus (Miiller)) skeljar afgimb- urskeljaætt (Astarte spp.), öðu (Modiola modiola (L.)), kræklings (Mytilus edulis (L.)), gluggaskeljar (Anomia squamula (L.)) og halloku (Macoma calcarea (Chemn.)). Auk þeirra finnast hrúðurkarlar (Balanus spp.) víða í setinu og nokkrar kuðungateg- undir. Igulker eru einnig algeng. Skeljasandur er gerður úr heilum og brotnum skeljum samloka af ýmsum teg- undum auk hrúðurkarla. Kuðungar eru víðast hvar í setinu, en takmarkað. Al- gengustu tegundir samloka eru aða, Astarte spp., smyrslingur (Mya truncata (L.)) og tígulskel (Spisula Solida (L.)) en helztu tegundir aðrar eru kræklingur, rataskel (Hiatella arctica (L.)), báruskel (Cardium ciliatum (Fabr.)), hjartaskel (Car- dium edule (L.)), kúfskel (Cyprina islandica (L.)) halloka, gluggaskel, krókskel (Ser- ripes groenlandicus (Chemn.)) og bergbúi (Zirphaea crispata (L.)). Kalkþörungar og brot úr þeim koma fyrir á nokkrum stöðum. Leirborið set finnst víðast hvar, þar sem dýpi er meira en 30 — 40 metrar, eins og áður sagði. Tegundasamsetning skelja og skeljabrota í slíku seti er breytileg eftir því, hvort leirinn er blandaður kalkþörunga- seti eða skeljasandi, en leirnum fylgja sér- stakar skeljategundir, svo sem halloka, trönuskel (Leda pernula (Mull.)) og hrukkubúlda (Thyasiraflexuosa (Mont.)). kemur á 1. og 2. mynd, má skýra með hliðsjón af þessu. Ef litið er fyrst á sunnan- verðan Húnaflóa (1. mynd), sést, að kalk- þörungaset fannst aðeins á grunnsævi, enda er framleiðni þeirra lífvera, sem

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.