Víkurfréttir - 09.09.2020, Side 6
Jóhann sýnir
erótík í Svarta
pakkhúsinu
Jóhann Örn Steinsson opnaði
myndlistarsýningu í Svarta
pakkhúsinu í Keflavík laugar-
daginn 5. september.
„Sýningin er tileinkuð Corina, kær-
ustu minni sem bíður mín í Vanco-
uver. Þema sýningarinnar er erótík
og sjálfsást svo má einnig finna
ýmis verk fyrri tíma. Það eru allir
velkomnir og ég vona að sem flestir
sjái sér fært að mæta,“ segir Jóhann.
Jóhann hefur stundað nám við
Myndlistaskóla Kópavogs og Reykja-
víkur í módelteikningum og málun.
Árið 2018 fór hann til Vancouver í
Kanada í nám í kvikmyndaskóla.
„Þar fann ég ástríðu fyrir kvik-
myndagerð og notaði mína kunn-
áttu á samsetningu og uppstillingu
til að fegra ramman í stuttmyndum
og auglýsingum. Eftir námið flutti ég
aftur heim til Íslands. Framhaldinu í
kvikmyndanáminu var slegið á frest
vegna ástandsins sem við lifum við
en ég bíð eftir að komast aftur út í
nám, um leið og land og mið opnast
í heiminum.“
Sýningin stendur yfir til mánu-
dagsins 14. september og er opin frá
klukkan 14 til 17. Áhugasamir geta
hringt í síma 898-0081 ef framan-
greindur sýningartími hentar ekki.
Jóhann Örn Steinsson við
sjálfsmynd sem hann sýnir
m.a. á sýningunni. VF-mynd: pket
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
dóttir og amma okkar,
JÓNÍNA INGIBJÖRG ÁRNADÓTTIR
Ninna Bogga
Kirkjubraut 8, Njarðvík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut, laugardaginn 29. ágúst.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 18. september
klukkan. 13.
Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur vera
viðstaddir athöfnina.
Athöfninni verður streymt á https://youtu.be/1Nrxy6VUQZs
Ólafur Þórður Björnsson
Íris Þóra Ólafsdóttir Elvar Ágúst Ólafsson
Árni Björn Ólafsson Karen Rúnarsdóttir
Arngrímur Anton Ólafsson Lovísa Hilmarsdóttir
Árni Björgvinsson Jenný Bergljót Sigmundsdóttir
Þóra Sigríður Jónsdóttir
og barnabörn.
Hjartahlýi eiginmaður minn, sonur, faðir, barnabarn,
bróðir og afi
ÆVAR ÖRN JÓNSSON
Flugumferðarstjóri
Suðurgötu 20, Sandgerði
verður jarðsunginn þann 11. september kl. 13.00 í Ytri-Njarðvíkurkirkju.
Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur og vinir
vera viðstaddir athöfnina.
Athöfninni verður streymt á Youtube:
Útför, Ævar Örn Jónsson frá Njarðvíkurkirkju
(https://www.youtube.com/channel/UCz_TXHez-BzwGqIn4AW_i-g/featured)
Einlægar þakkir fyrir sýnda samúð, hlýhug og vináttu.
Sigrún Erla Hill
Valdís Tómasdóttir
Ívar Aron H. Ævarsson
Kristján Helgi O. Ævarsson Ellý María Hermannsdóttir
Ísak John H. Ævarsson Andrea Ósk Júlíusdóttir
Þórunn Hafdís H. Ævarsdóttir Thomas Þór Þorsteinsson
Aron Rúnar H. Ævarsson
Tómas Oddsson
Ísak Leifsson Nanna Baldvinsdóttir
Anton Karl Þorsteinsson Hanna Valdís Garðarsdóttir
Björg Jónsdóttir
og barnabörn
Rokkveislan mikla verður
frumsýnd 25. september
– tvær sýningar laugardaginn 26. september
„Við stefnum ótrauð á að frumsýna „Rokkveisluna miklu“ föstudaginn 25.
september næstkomandi kl. 20 í Stapa. Rýmkun á fjöldatakmörkunum úr
100 manns í 200 gerir okkur kleift að halda ótrauð áfram,“ segir Kristján
Jóhannson Blikari í samtali við Víkurfréttir.
„Þá er einnig mögulegt að skipta
Stapa í tvö sóttvarnarhólf ef því er
að skipta og það verður nánar útfært
með Tómasi Young og hans fólki í
Hljómahöllinni – en við hlýtum fyrir-
mælum og reglum frá landlækni í
hvívetna. Aðalatriðið er að við erum
á fullu og allir hrikalega spenntir.
Söngvarar, hljóðfæraleikarar og allir
sem koma að þessum tónleikum,“
segir Kristán ennfremur.
„Ástandið hjá tónlistarfólki og
tæknimönnum hefur verið vægast
sagt hörmulegt síðustu mánuði.
Það eru allir áður auglýstir söngv-
arar með; Stefanía Svavars, Matti
Matt, Stebbi Jak og Dagur Sig. Það
er uppsöfnuð spenna bæði hjá lista-
mönnunum og líka hjá tónleika-
gestum. Þetta verður eitthvað,“ segir
Kristján.
„Þegar ljóst var að við gætum
ekki sýnt á Ljósanótt, eins og við
höfum gert undanfarin níu ár, kom
smá blús í hópinn en með bjartsýni
og biðlund, og nú þegar heilbrigðis-
ráðherra hefur farið að tillögu sótt-
varnarlæknis um rýmkun reglna, þá
kýlum við á þetta.“
Rokkveislan mikla verður, eins og
áður segir, frumsýnd 25. september,
þá gilda miðar sem áður voru keyptir
á sýninguna sem auglýst var 2. sept-
ember. Seinni tvær sýningarnar
verða 26. september og þá gilda
miðar sem keyptir voru á sýningar
sem fyrirhugaðar voru sunnudaginn
6. september.
Enn eru lausir miðar en miðasala
er á Tix.is og Hljómahöll.is
„Það var búið að selja vel af
miðum. Það er nánast uppselt á
frumsýningu þannig að nú gildir að
vera snöggur að tryggja sér miða á
Rokkveisluna miklu. Ég lofa svaka
stuði,“ segir Kristján að lokum.
6 // vÍKURFRÉTTiR á SUðURNESJUM Í 40 áR