Víkurfréttir - 09.09.2020, Blaðsíða 11
Sýning Listasafns Reykjanesbæjar:
Áfallalandslag
Landscapes of Trauma: a Reflection on Wonder.
Áfallalandslag er sýning sem ætlað er að tengja áhorfandann við atburðarás áfalla sem tengjast
náttúruhamförum. Sýningin er innblásin af grein sem skrifuð er af Sigurjóni Baldri Hafsteins-
syni og Arnari Árnasyni, Landscapes of Trauma: a Reflection on Wonder.
Sigurjón Baldur og Arnar vitna í heimspeki
trúfræðinginn Mary-Jane Rubenstein þar sem
hún dregur saman línu á milli ensku orðanna
wonder og wound. Enska orðið wonder þýðir
meðal annars á íslensku; jarðteikn, undur,
kraftaverk. Wound er þýtt á íslensku sem;
særa, meiða, meiðsl, áverki. Mary-Jane segir
bæði orðin standa fyrir truflun hversdags-
leikans, atburð sem brýtur upp daglegt líf með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Rannsókn þeirra Sigurjóns og Arnars
beinist að áfalli sem íbúar Vestmannaeyja
urðu fyrir vegna náttúruhamfara árið 1973
og eftirmála þess í samtímanum.
Grein þeirra Sigurjóns og Arnars vakti
athygli sýningarstjórans, Helgu Þórsdóttur,
þar sem Reykjanesið virðist vera að vakna
í jarðfræðilegum skilningi og hafa margir
jarðskjálftar mælst hærra en fjögur stig á
Richter-mælikvarða frá seinni hluta ársins
2020. Þannig kviknaði sú hugmynd að nota
tungumál myndlistarinnar til að tjá áfall sem
fylgir áverkum og undrum þess sem verður
fyrir hamförum af völdum náttúruafla. Lista-
mennirnir sem taka þátt í sýningunni Áfalla-
landsslagi eru allir þekktir fyrir að vinna með
krafta náttúrunnar í eigin myndlistarsköpun.
Ósk Vilhjálmsdóttir (f. 1962) býr og starfar í
Reykjavík. Ósk hefur haldið fjölmargar einka-
sýningar og verið valin til þess að sýna á sam-
sýningum bæði hér á landi og erlendis. Hún
hefur í listsköpun sinni enn fremur unnið með
náttúruvernd og samskipti manns og náttúru
þar sem Ósk virkjar þátttöku áhorfandans og
skapar umræðuvettvang. Verk Óskar eru pól-
itísk, gagnrýnin og hún miðlar þeim með ljós-
myndum, vídeóverkum og innsetningum en
þau brjótast einnig út fyrir rými listasafnsins.
Rannveig Jónsdóttir (f. 1992) býr og starfar
á Ísafirði og hefur tekið þátt í sýningum bæði
hér á landi og erlendis. Hún vinnur með inn-
setningar sem hverfast um hljóð, skúlptúr
og texta þar sem hið óefnislega og efnislega
styðja hvort annað innan í ákveðnu rými.
Innsetningar Rannveigar verða gjarnan til út
frá samspili rannsókna og skáldskapar sem
snúast um það að ná stjórn á hverfulleika
lífsins. Að vinna með hljóð hefur einnig gefið
henni færi á að vinna með upplifun eða til-
finningu og í verkum sínum hefur Rannveig
m.a. gengið út frá hafinu, tækni, minningum
og heimþrá.
Halldór Ásgeirsson (f. 1956) hefur búið og
starfað víða, lengstan tíma á Íslandi, í Frakk-
landi og Japan. Hann hefur haldið fjölmargar
einkasýningar og verið valinn til þess að sýna
á samsýningum bæði hér á landi og erlendis.
Náttúruöflin; jörð, loft, vatn og eldur hafa
verið viðvarandi þema í verkum Halldórs þar
sem hann vinnur áfram með sköpunarverk
náttúrunnar eins og alkemisti í gullgerðar-
list. Halldór leyfir hugmyndum að þroskast
lengi í undirmeðvitundinni, gerir tilraunir
með efni og finnur þeim farveg í gjörningum,
teikningum og innsetningum.
Gjörningaklúbburinn var stofnaður árið
1996 og er nú skipaður þeim Eirúnu Sig-
urðardóttur (f. 1971) og Jóní Jónsdóttur (f.
1972). Gjörningaklúbburinn fær innblástur
úr fjölbreyttri átt og útfærir hugmyndir sínar
í margskonar miðla, ásamt því að vinna þvert
á listgreinar og í samstarfi við aðra. Í verkum
Gjörningaklúbbsins má einnig finna femin-
ískar áherslur, vísanir í hlutverk konunnar og
þær byggja gjarnan á handverki sem tengjast
heimi kvenna.
Vetrardagskrá Duus safnahúsa
hafin með nýjum sýningum Byggða-
safns Reykjanesbæjar og Listasafns
Reykjanesbæjar í Duus Safnahúsum
opnuðu haustsýningar sínar síðast-
liðið fimmtudagskvöld og hófst við
það tækifæri vetrardagskrá Duus
safnahúsa.
Sýning Byggðasafns Reykjanesbæjar:
Fullt hús af brúðum
Fimmtudaginn 3. september 2020 opnaði Byggðasafn Reykjanesbæjar sýningu á merku leikfangasafni Helgu
Ingólfsdóttur. Helga hóf söfnun á brúðum fyrir margt löngu og í framhaldinu margskonar öðrum leikföngum sem
flestir þekkja úr æsku. Hún færði Byggðasafninu allar brúður sínar að gjöf árið 2007 og heildarsafnið nokkrum
árum síðar. Leikfangasafn hennar hefur aldrei áður verið sýnt í heild sinni en það er líklega það stærsta sinnar
tegundar hér á landi.
Helga taldi leikföng mikilvæg í þroska og leikjum barna og án efa mun sýningin vekja upp ótal góðar minningar
sýningargesta úr æsku.
vÍKURFRÉTTiR á SUðURNESJUM Í 40 áR // 11