Víkurfréttir - 09.09.2020, Side 13
var rosalega veik, með súrefnis-
slöngur í nefinu og maska. Svo var
maður að reyna að tala við hana og
strjúka með hanska. Hún gat lítið
talað, var svo móð og þótti vont að
taka maskann af. Ég var hjá henni
í um einn og hálfan tíma, þá fór ég
heim en Jónas og pabbi voru áfram
því það átti að vera fundur með
lækninum.“
Ákvörðun mömmu
„Læknirinn kom seinni partinn og
þá sagðist hann halda að veiran
væri búin að sigra mömmu, að hann
teldi að þeir gætu ekki gert neitt
frekar fyrir hana. Hún vildi ekki
fara í öndunarvél því þeir töldu að
það myndi ekki gera neitt fyrir hana
– en það var hennar ákvörðun að
vilja ekki reyna það. Hún var alveg
með á nótunum og tók því bara
að þetta væri búið. Hún var alveg
búin að sætta sig við það en einu
áhyggjurnar sem hún hafði var að
langömmubörnin hennar væru ekki
búin að fá gjafirnar sem þau höfðu
keypt á Kanarí, að þær kæmust nú
örugglega til skila. Í kjölfarið fengu
systkini mín að heimsækja hana en
auðvitað íklædd þessari sóttvarna-
múnderingu.
Á þriðjudagskvöldinu vildi pabbi
ekki fara frá mömmu en hann var
ekki í neinu standi til vera hjá henni
alla nóttina svo við fengum það í
gegn að systir mín fengi að vera
hjá henni. Klukkan fjögur var pabbi
kominn aftur og hann var hjá henni
þegar hún fór. Mamma dó í há-
deginu á miðvikudeginum 1. apríl,
hún missti meðvitund seinni part
þriðjudags og fjaraði svo út.“
Miður sín af sorg
„Ég fékk að kveðja mömmu á mið-
vikudeginum eftir að hún lést, var
sú eina sem fékk það, og þegar ég
kom heim var ég auðvitað miður
mín, ég hafði misst mömmu mína.
Jónas var heima, fárveikur inni í
herbergi í einangrun og daginn eftir,
þegar maður kom aftur til sjálfs síns,
þá áttaði ég mig á hvað hann væri
orðinn veikur og hefði þurft að fara á
spítalann daginn sem mamma deyr.
Þá hringdi ég á sjúkrabíl fyrir Jónas
og hann var eins og pabbi, það þurfti
að bera hann út í bílinn.
Jónas var svo veikur að hann
strax var settur í súrefni. Hann var
svo orkulaus að hann gat ekki talað
í síma svo öll okkar samskipti voru
í gegnum hjúkrunarfræðing. Jónas
var inni í fimm nætur og tveir dagar
voru eins og hjá mömmu – það
var bara verið að bíða og sjá. Það
var eiginlega eins og ég væri að
fara í gegnum sama ferlið með hjá
mömmu, sömu samtölin. Ég hélt að
hann væri að fara líka.“
Fimmtán metrar
„Þegar þarna var komið var ég líka
sett í einangrun og þau vildu senda
mig í sýnatöku, ég hafði þegar farið
í tvær og í bæði skiptin reynst nei-
kvæð. Sýnatakan reyndist enn og
aftur neikvæð. Elsta stelpan mín
var þá ein með öll börnin í sóttkví
og að hugsa um pabba, ég var í ein-
angrun og Jónas á spítala. Ég fékk
svo loksins símtalið um að Jónas
væri farinn að braggast og þau væru
jafnvel að hugsa um að senda hann
heima, hann hafði gengið fimmtán
metra með stuðningi en án súr-
efnis – hann hékk eiginlega á þeim
en það þótti afrek að komast þessa
fimmtán metra. Þær voru ótrúlega
ánægðar hvað honum hefði farið
fram. Svo var Jónas sendur heim
í þessu ástandi því starfsfólkið á
Covid-deildinni var svo hrætt um að
það væri væntanleg holskefla vegna
páskanna og það var verið að senda
þá heim sem var hægt. Þau vissu að
heima fengi hann góða þjónustu,
við værum vön og réðum við þetta.
Hann svaf eiginlega alla þessa viku
sem hann var í einangrun, var bara
í móki.“
Sex vikur í sóttkví
– Þegar allt er tekið saman,
hve lengi voruð þið fjöl-
skyldan í sóttkví?
„Við vorum samtals í sex vikur, þetta
reyndi á en það voru allir indælir við
okkur, fóru í búð og vildu allt fyrir
okkur gera. Bjarni, sá yngsti, fékk
meira að segja sendingu heim af
leikskólanum.
Það þótti öllum svo undarlegt að
allar sýnatökur sem ég fór í reyndust
neikvæðar, ég var búin að vera í
miklu samneyti við þá sem höfðu
veikst án þess að veikjast sjálf, svo
ég var send í mótefnamælingu. Hún
reyndist jákvæð og ég mældist með
mótefni en veit ekkert hvenær ég
hef veikst. Ég hafði verið þreytt og
slöpp, með smá pirring í hálsi um
tíma, en það er engin leið að sjá
hvenær ég gæti hafa veikst. Þeir
sögðu að mögulega hefði veiran ekki
verið nógu sterk í hálsinum í sýna-
stökunni til að mælast eða ég gæti
jafnvel hafa veikst fyrir löngu síðan.
Það væri engin leið að vita það en
ég treysti því engan veginn að ég
geti ekki fengið þetta aftur, veiran
er að stökkbreytast og þeir eru líka
að læra inn á þetta. Þannig að ég tek
enga sénsa.“
Var brugðið fyrst
eftir sóttkví
„Mér brá þegar ég fór í fyrsta
skipti út í búð eftir að hafa verið
lokuð í sóttkví. Ég var með hanska,
sprittuð og var að passa mig en það
var enginn að virða tveggja metra
regluna og fólk teygði sig jafnvel
yfir hausinn á manni til að sækja
vörur í hillurnar. Svo að sjá í sumar
öll þessi fótboltamót, allir að hittast
og skemmta sér hver ofan í öðrum.
Núna er komin önnur bylgja af því
að fólk er ekki að passa sig, það er
ekki að gera eins og fyrir það er lagt.
Fólk gerir sér engan veginn grein
fyrir hve alvarlegt þetta er. Mér
finnst það bara sorglegt, það létust
tíu manns og fjölmargir veiktust.
Það er bið eftir endurhæfingu því
fólk hefur skerta starfsgetu eftir að
hafa veikst í mars. Jónas minn, sem
er heilsuhraustur maður, gat ekki
keyrt lengra en upp í Borgarnes þá
var hann sprunginn – alveg búinn á
því bara við það eitt að keyra bíl. Ég
held að fólk ætti að passa sig betur,
það margborgar sig.“
Útför mömmu
Eftir allar þær raunir sem fjölskylda
Guðnýjar hafði gengið í gegnum og
þau loks búin að komast yfir veik-
indin var komið að því að jarðsetja
móður hennar. Því átti eftir að fylgja
ýmis vandkvæði sem jók aðeins á
sársauka fjölskyldu í sorgarferli.
„Fyrir nokkrum árum siðan höfðu
bæði mamma og pabbi verið búin
að útbúa áætlun í kirkjunni á Ísa-
firði um hvernig þeirra óskir um
útför þau sæju fyrir sér þegar kallið
kæmi. Hún vildi bara vera jarðsungin
frá Ísafjarðarkirkju, í sínum heimabæ
þar sem hún hafði alltaf búið. Hún
var mjög trúuð hún mamma.
Ég sótti um undanþágu til að vera
viðstödd kistulagninguna en fengum
það ekki þannig að ég og krakkarnir
mínir sátum hérna heima og systir
mín streymdi athöfninni á Facebook.
Rétt áður en þau mættu í kistu-
lagninguna komu þau skilaboð að
kistan mætti ekki vera opin, þannig
að restin af fjölskyldunni fékk í raun
ekki að kveðja. Séra Skúli [Ólafsson]
sá um athöfnina, við þekktumst því
hann hafði verið prestur á Ísafirði.
Hann gerði þetta ótrúlega vel og á
hrós skilið fyrir hve falleg athöfnin
var hjá honum.“
Fjölskyldan sár og reið
út í Þjóðkirkjuna
„Svo vorum við að reyna að fá að
halda jarðarförina á Ísafirði en þá
var Covid-ástandið orðið slæmt
fyrir vestan og komin tilmæli frá
sóttvarnalækni um að vera ekki
með samkomur þar sem fleiri en
fimm komu saman. Þetta voru til-
mæli, ekki lög, en presturinn fyrir
vestan vildi ekki taka þá ákvörðun
að leyfa tuttugu manns að koma
saman í kirkjunni og ráðfærði sig
við biskup. Biskup neitaði að verða
við þessari bón þótt fjölskyldan vildi
virða þessa ósk mömmu og jarðsetja
hana frá Ísafjarðarkirkju. Eins og ég
segi þá voru þetta aðeins tilmæli en
ákvörðun biskups var ekki haggað og
því fór athöfnin fram í Neskirkju og
séra Skúli jarðsöng. Ég get ekki skilið
þessa ákvörðun biskups því þetta
var sami hópur og hittist í Neskirkju,
þessar tuttugu manneskjum, og ég
get ómögulega séð hvaða munur
var á því að þessi sami hópur gæti
hist í Neskirkju en ekki í Ísafjarðar-
kirkju – þetta voru tilmæli og engin
lög yrðu brotin. Þess má geta að
Ísafjarðarkirkja tekur 300 manns í
sæti og tuttugu manns hefðu hæg-
lega rúmast inni í henni án þessa að
Þeir vissu
ekkert hvert
ætti að fara
með hann,
þetta er
auðvitað
í byrjun
faraldursins
og enginn
vissi neitt ...
Hér eru foreldrar Guðnýjar,
Bjarni Líndal Gestsson og Ágústa
Ragnhildur Benediktsdóttir,
á góðri stund á Kanarí fyrir
nokkrum árum síðan.
Jónas og Guðný upplifðu þær skelfilegu afleiðingar
sem kórónuveiran getur haft í för með sér.
Þarna vorum
við hjónin,
mamma og
fimm börn
komin í sóttkví
og pabbi
í einangrun.
Svo veiktust
mamma og
Jónas á sama
tíma ...
vÍKURFRÉTTiR á SUðURNESJUM Í 40 áR // 13