Víkurfréttir - 09.09.2020, Síða 29
Júdódeild Njarðvíkur hefur verið með athyglisvert tilraunaverkefni í gangi síðasta hálfa árið.
Deildin hefur boðið upp á sérstakar júdóæfingar fyrir börn af pólskum uppruna og pólskur
þjálfari sér um æfingarnar. Guðmundur Stefán Gunnarsson, yfirþjálfari júdódeildarinnar,
og Eydís Mary Jónsdóttir, formaður hennar sögðu frá verkefninu.
– Hvernig varð þessi hugmynd
til, að vera með sér pólskan hóp?
„Það er mjög stór hópur af pólskum
börnum hér í samfélaginu sem er
ekki að stunda neinar æfingar og
við vorum búin að vera að ræða það
hvernig við ættum að ná til þeirra.
Reykjanesbær hefur m.a. verið að
benda á að krakkar af erlendu bergi
eru ekki að nýta frístundastyrkinn
sinn,“ segir Eydís.
„Nú tækifærið datt eiginlega upp
í hendurnar á okkur þegar Aleks-
andra hafði sambandi við deildina,
þá var hún búin að búa hér í eitt ár
og falaðist eftir vinnu við að þjálfa
júdó enda er hún með svart belti í
íþróttinni. Við ákváðum að nýta
okkur þetta tækifæri enda erum við
með mörg börn frá öðrum löndum og
úr varð þetta tilraunaverkefni sem
hefur gengið afskaplega vel.“
„Þetta er í raun eitt af grunn-
gildum deildarinnar,“ segir Guð-
mundur, „Því þegar ég stofnaði
júdódeildina þá var markmiðið að
allir gætu æft burtséð frá fjárhag og
nú eru að verða liðin tíu ár síðan við
hófum reglulegar æfingar.“
Íþróttir fyrir alla
Eydís segir að þetta sé í raun út-
víkkað frá upphaflegu hugmyndinni,
að bjóða upp á sérstaka tíma fyrir
börn af pólskum uppruna. „Þetta
er jaðarsettasti hópurinn, erlendu
krakkarnir okkar, og það þarf eitt-
hvað íþróttafélag að stíga fram og
koma til móts við þau. Það er ekki
ásættanlegt að jafn fjölmennur
hópur í bænum okkar sé ekki að
stunda neinar æfingar, við þurfum
að koma til móts við þessa krakka og
ef íslenskir þjálfarar ná ekki til þeirra
þá þurfum við að reyna aðrar leiðir.“
„Við sjáum svo fyrir okkur, þegar
fram líða stundir, að þessi hópur
blandist svo inn í aðra æfingahópa
félagsins,“ bætir Guðmundur við.
„Það verður ábyggilega erfitt í fyrstu
en til lengri tíma litið verður það gott
fyrir alla.“
Styrkir samfélagið
Guðmundur starfar við málefni inn-
flytjenda hjá Reykjanesbæ. Hann
lítur á þetta verkefni sem skref í
áttina að því að auðvelda krökk-
unum að aðlagast íslensku samfélagi.
„Það getur verið erfitt fyrir fólk af
öðrum uppruna að fóta sig í sam-
félaginu, ég held að svona verkefni sé
eitt skref í áttina að því að gefa fólki
tækifæri til að kynnast hvert öðru,
nýbúum og íslendingum.“
„Það er öðruvísi umgjörð í kringum
þessar æfingar,“ segir Eydís. „For-
eldrarnir vilja mæta með börnunum
á æfingar, fylgjast með og hitta aðra
foreldra. Þetta fólk er auðvitað nýtt
í nýju landi og það þarf að byggja
tengslanet í kringum sig. Það þarf þó
að stíga varlega til jarðar því á sama
tíma verðum við að gæta að því að
þau kynnist fleira fólki, einangrist
ekki frá öðrum í klúbbnum og úr
verði lokaður hópur Pólverja. Næsta
vetur ætlum við að prófa að vera með
tvær pólskar æfingar á viku og eina
sameiginlega æfingu sem allir eiga að
mæta á. Við þurfum á einhvern hátt
að blanda börnunum saman og einnig
foreldrunum.“
Mikil samheldni
„Pólsku foreldrarnir eru ótrúlega
drífandi og viljugir að taka þátt í
starfinu með börnunum sínum,“
segir Eydís. „Við höfum haldið
nokkurs konar uppskeruhátíð í lok
hvers námskeiðs og þá hefur sal-
urinn verið fullur af foreldrum – og
báðir foreldrar mæta. Þetta hefur
verið svona Pálínuboð, þ.e. hver og
einn kemur með einhverjar kræs-
ingar með sér og setur á borðið og
úr hefur orðið hin fínasta veisla. Það
hefur myndast ótrúlega góður andi í
salnum og skemmtileg stemmning.“
Við þetta bætir Guðmundur:
„Þetta er ekki aukaálag á stjórnina
því pólsku foreldrarnir taka frum-
kvæðið, þeir redda því sem redda
þarf og sjá um að þetta gerist. Þau
leituðu til fyrirtækja sem lögðu til
verðlaun handa börnunum. Þetta er
harðduglegt fólk og þvílíkur mann-
auður fyrir félag sem þetta.“
Þetta er lífsstíll
„Að æfa júdó, brasilískt Jiu-Jitsu og
glímu er lífsstíll,“ bendir Eydís á. „Við
leggjum áherslu á að þetta snúist
ekki eingöngu um íþróttina heldur er
júdódeildin félagsskapur, samfélag.
Hér á fólk að geta notið þess að vera
saman og næsta vetur verða reglu-
lega haldnar sameiginlegar æfingar
þar sem við verðum með pizzaveislu
eftir æfingu. Þetta verður liður í því
að fólk kynnist fyrir utan það að
bara glíma hvert við annað.“
„Við stefnum á að vera með föstu-
dagsæfingu einn dag í mánuði þar
sem öllum félögum á Suðurnesjum
er boðið til að vera með. Þá er hug-
myndin að reyna að fá Yoshiko
Yura, sem er áttunda dan [8. gráða
af svarta beltinu], til að sjá um æf-
inguna, halda nokkurs konar æfinga-
búðir fyrir þjálfara. Við erum alltaf
reyna að bæta okkur,“ segir Guð-
mundur. „Yura er kennari og upp-
eldisfræðingur að mennt, meistara-
ritgerðin hans var um hvernig eigi að
kenna júdó rétt. Yura er einn hæst
gráðaði júdómaður í heiminum í dag,
hann býr á Íslandi og það er einstakt
að hafa aðgang að slíkri uppsprettu
þekkingar og hæfni.“
„Við erum líka að vinna í því að
þjappa ungu krökkunum í klúbbnum
saman og gefa þeim tækifæri til að
styrkja tengslin sín á milli, utan
vallar sem innan,“ segir Eydís. „Við
eigum marga frábæra iðkendur sem
hafa einnig verið að þjálfa og við
viljum breikka þann hóp og styrkja,
gera það eftirsóknarvert að kenna.
Við höfum verið að hvetja þau til
að gera eitthvað saman fyrir utan
æfingar, eiga góða stund saman og
styðja við bakið hvert á öðru.“
– Hvað eru margir iðk-
endur hjá ykkur?
„Við erum nýbúin að taka nýtt
skráningarkerfi í notkun,“ segir
Guðmundur. „Núna erum við með
um áttatíu virka iðkendur, það er
fyrir utan pólska hópinn sem telur
í kringum fjörutíu krakka. Þetta
eru um 120 iðkendur í það heila
og það hefur orðið mikil aukning í
iðkendafjöld sem eru tuttugu ára
og eldri. Svo hefur komið til tals að
vera með æfingar fyrir eldri júdó-
kappa, þeir eru fjölmargir hérna í
bænum sem æfðu í gamla daga og
vilja koma til að taka rólegar æfingar
einu sinni í viku – án þess að slasa
hvern annan,“ segir Guðmundur og
hlær. „Það getur hver sem er komið
á æfingar hjá okkur, aldur og líkam-
legt ásigkomulag skiptir ekki máli.
Hér er lögð áhersla á að allir geti æft
miðað við sína getu. Þeir sem eru
lengra komnir eru ekki að taka á ný-
liðum, þeir leyfa þeim að kasta sér
og læra af þeim. Um það snýst júdó,
brasilískt Jiu-Jitsu og glíma, að allir
geti verið með.“
„Ég held að það að taka brasilískt
Jiu-Jitsu inn í deildina hafi haft þessi
áhrif, júdókappar eiga það til að vera
vera uppfullir af egói. Núna er egóið
skilið eftir fyrir utan salinn,“ segir
Eydís. „Það er önnur menning inn
á vellinum hjá okkur en hjá flestum
öðrum júdófélögum.
Menningin í íslensku glímunni
hefur einnig breytt anda deildar-
innar en þar er, eins og í brasilísku
Jiu-Jitsu, meiri áhersla lögð á að
búa til jákvæða upplifun, gefa iðk-
endum það rými sem þeir þurfa til
að þrífast, bæta sig og njóta þess að
að vera – og síðast en ekki síst að
kynnast og njóta samveru við glímu-
menn hvaðanæva að úr heiminum.“
„Það hefur áhrif á gráðanir hjá
iðkendunum mínum, ég gráða þá
ekki upp fyrr en þeir eru farnir að
geta ráðið við egóið sitt,“ segir Guð-
mundur. „Egó og keppnisskap er
af hinu góða en þú verður að geta
stjórnað því.“
Þeir sem vilja kynnast júdó betur
geta sent fyrirspurnir á judo@umfn.
is eða mætt á æfingu.
Júdó er lífsstíll
Aleksandra Kołtunowska sér um æfingarnar fyrir pólsku
krakkana hjá júdódeild Njarðvíkur. Hún hefur æft júdó í
sautján ár, síðan hún var fimm ára gömul en þá fór pabbi
hennar með hana á sína fyrstu æfingu. Í dag er hún með
annað dan [2. gráða af svarta beltinu] og hefur talsverða
reynslu af keppni og þjálfun. „Ég hef keppt mikið og hef
m.a. lent í fimmta sæti í Evrópukeppni,“ segir Aleksandra.
– Hvernig stendur á því að þú
ert að þjálfa hér á Íslandi?
„Kærastinn minn fór að vinna
hérna og ég kom í kjölfarið. Ég
hafði þjálfað börn og fullorðna
í Póllandi í þrjú ár auk þess að
vinna á leikskóla. Ég hef ekki getað
fengið vinnu á Íslandi vegna þess
að ég tala ekki tungumálið og þar
sem ég hafði enga vinnu þá sóttist
ég eftir að taka að mér æfingar
hér. “
– Hvernig finnst þér
þetta hafa gengið?
„Þetta hefur gengið mjög vel, það
fjölgar í hópnum og þau eru farin
að nálgast fjörutíu iðkendur. Við
byrjuðum að æfa í febrúar, þá voru
þau bara fimm.“
Þær fyrstu í hópnum
Þær Lena Andrejenko, Gabriela
Chojnacka og Gabriela Sobczak
aðstoðuðu okkur í viðtalinu og
túlkuðu það sem fram fór. Þær
voru með fyrstu iðkendunum
sem fóru að æfa í pólska hópnum.
Stelpurnar sögðu júdó vera mjög
skemmtilegt og eftir að þær
byrjuðu að æfa fóru fleiri að
bætast í hópinn. „Við byrjuðum
og svo komu vinir okkar og allt í
einu vildu allir æfa saman,“ segja
þær stöllur og brosa út að eyrum.
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
Lena Andrejenko, Gabriela
Chojnacka, Aleksandra
Kołtunowska, þjálfari, og
Gabriela Sobczak ánægðar
eftir góða æfingu.
Pólsk afreks-
íþróttakona
Pólskur krakkahópur í júdó gefur góða raun
Eydís Mary Jónsdóttir.
Guðmundur Stefán
Gunnarsson.
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
Áður birt í 31. tbl. 2020 rafrænna Víkurfrétta.
vÍKURFRÉTTiR á SUðURNESJUM Í 40 áR // 29