Víkurfréttir - 09.09.2020, Side 36
Sjálfstæðismenn vilja meiri áherslu á atvinnumál
„Af hverju eru milljarðar til Isavia ekki notaðir til að halda fólki í
vinnu?“ spyr oddviti Framsóknarflokks
Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Reykjanesbæjar telja mikilvægt
að atvinnumál verði í forgrunni og vilja m.a. endurvekja starfshóp
um atvinnuþróun og að framtíðarnefnd fjalli upp atvinnuupp-
byggingu í bæjarfélaginu.
Bókunin hljóðar svona: „Bæjarfull-
trúar og nefndarmenn Sjálfstæðis-
flokksins hafa lagt mikla áherslu á
að atvinnumál verði í forgrunni og
að mikilvægt sé að vinna að efl-
ingu fjölbreyttra atvinnutækifæra
í Reykjanesbæ. Við leggjum því
formlega fram eftirfarandi tillögu:
Menningar- og atvinnuráð setji
atvinnumál næstu mánuði í for-
grunn, vinni að sviðsmyndagrein-
ingum og horfi til möguleika í at-
vinnumálum til lengri og skemmri
tíma.
Framtíðarnefnd fjalli um at-
vinnuuppbyggingu í Reykjanesbæ
sem átti að vera hennar hlutverk
samkvæmt málefnasamning meiri-
hlutans en hefur ekki komist á dag-
skrá.
Endurvekja starfshóp um at-
vinnuþróun sem þarf að koma með
tillögur um skammtímalausnir
vegna aukins atvinnuleysis í Covid
og eins möguleika í menntamálum
og þannig auka virkni þeirra og efla
þá sem misst hafa vinnuna.
Allt starfsfólk Reykjanesbæjar
sem mögulega getur stutt vinnu til
atvinnuuppbyggingar fái til þess
svigrúm.
Settur verði upp starfsdagur
sem fyrst þar sem fulltrúar bæjar-
ráðs, menningar- og atvinnuráðs,
framtíðarnefndar, Reykjanes-
hafnar, starfshóps um atvinnu-
þróun og Samtaka atvinnurekenda
á Reykjanesi koma saman og sam-
ræma viðbrögð og ákveða sviðs-
myndir.
Sameina þarf krafta Reykjanes-
bæjar, atvinnurekenda á svæðinu
og ríkisvaldsins. Tillögur Reykja-
nesbæjar þurfa að vera skýrar.“
Margrét A. Sanders,
Baldur Þ. Guðmundsson og
Anna Sigríður Jóhannesdóttir.
Til máls tóku Jóhann Friðrik Frið-
riksson, Friðjón Einarsson, Mar-
grét A. Sanders, Anna Sigríður
Jóhannesdóttir, Baldur Þ. Guð-
mundsson, Margrét Þórarins-
dóttir og Guðbrandur Einarsson.
„Við höfum talað við öll ráðu-
neyti, ráðherra og þingmenn síð-
ustu fimm ár og kynnt nákvæmar
aðgerðir fyrir Suðurnesin. Það er
því ekki rétt að við höfum ekki gert
neitt,“ sagði Friðjón Einarsson, for-
maður bæjarráðs, m.a. í ræðu sinni.
„Væri ríkisfjármagninu til Isavia
ekki betur varið í að búa til verk-
efni fyrir þetta fólk sem hefur
fengið uppsögn að undanförnu.
Hver er tilgangurinn með því að
segja þessu fólki upp? Hefði ekki
verið nær að styðja við þetta fólk
í vinnu eða með verkefnum á
meðan verið er að þreyja þorrann.
Það er miklu dýrara að fólki verði
atvinnulaust en að tryggja virkni
þess fólks svo ekki þurfi að koma
til uppsagna,“ sagði Jóhann Friðrik
Friðriksson, oddviti Framsóknar-
flokks, m.a. í framhaldi af bókun
Sjálfstæðismanna.
Samþykkt með öllum atkvæðum
að vísa tillögu bæjarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins til frekari umræðu
í bæjarráði. Einnig samþykkt 11-0
að vísa fjórða máli fundargerðar-
innar, Aðgangseyrir á söfn, til
bæjarráðs.
Mikil gleði með aparólu
við Njarðvíkurskóla
Mikil gleði er hjá nemendum í Njarðvíkurskóla
með aparóluna sem sett hefur verið upp á
skólalóðinni.
Kvenfélagið Njarðvík, foreldra-
félagið í Njarðvíkurskóla og
Njarðvíkurskóli stóðu saman
af kostnaði við uppsetningu
á aparólunni. Uppsetningin á
henni er liður í því að bjóða nem-
endum í Njarðvíkurskóla upp á
fjölbreyttari og skemmtilegri af-
þreyingu á útisvæði skólans.
„Vonandi verður hægt að halda
áfram að gera skólalóðina enn
skemmtilegri, fjölbreyttari og
auka þannig notagildi hennar
fyrir alla aldurshópa.
Njarðvíkurskóli þakkar Kven-
félaginu Njarðvík og foreldra-
félaginu fyrir stuðninginn,“ segir
á heimasíðu skólans.
Minningarsjóður
Gísla Þórs Þórarins
sonar veitti styrki til
góðra mála
Minningarsjóður Gísla Þórs Þórarinssonar var stofn-
aður í fyrra til minningar um Njarðvíkinginn Gísla Þór
og er tilgangur sjóðsins að veita styrki til góðgerðar-
mála. Veittir eru styrkir úr sjóðnum þann 1. september
ár hvert, á afmælisdegi Gísla Þórs.
Sjóðurinn hefur það að markmiði að styrkja málefni
þar sem að velferð barna og unglinga er í forgrunni.
Í ár ákvað sjóðurinn að veita styrk til stofnunar barna-
lúðrasveitar í Meham í Noregi, Njarðvíkurskóla, Kven-
félags Njarðvíkur, Öllasjóðsins og tveggja einstaklinga.
Styrkirnir í ár eiga það sameiginlegt að aðstoða börn
og unglinga við að stunda íþróttir, tómstundir og annað
félagslíf barna.
FJÖLSMIÐJAN Á SUÐUR-
NESJUM TÍU ÁRA
Tíu ár eru liðin í vikunni frá því að stofnað var til Fjölsmiðjunnar á Suður-
nesjum en hún var stofnuð 7. september 2010. Tilgangurinn með Fjöl-
smiðjunni var að mæta þörfum ungs fólks sem hafði verið í óvirkni.
Á Facebook-síðu Fjölsmiðjunnar er greint frá tímamótunum, þar segir:
„Hafist var handa við að finna Fjölsmiðjunni húsnæði og breyta því svo
það hentaði starfseminni. Á þessum tíu árum hafa hátt í 200 ungmenni
af Suðurnesjum starfað í Fjölsmiðjunni í mislangan tíma, allt eftir þörfum
hvers og eins. Flestir þeirra sem hafa útskrifast frá okkur hafa farið til vinnu
á almennum vinnumarkaði og einnig til frekara náms. Við, sem störfum og
stöndum að Fjölsmiðjunni, erum mjög stolt af henni og því mikilvæga hlut-
verki sem hún gegnir í samfélaginu okkar.“
Fjölsmiðjan hóf svo eiginlega starfsemi í mars 2011 og því á að geyma
fagnaðarhöldin fram í mars 2021 í þeirri von að það vori betur í þeim veiru-
faraldri sem geisar núna.
FRAMHALDSAÐALFUNDUR
Framhaldsaðalfundur Rauða krossins á Suðurnesjum verður haldinn mánudaginn
14. september 2020 kl: 20.00 að Smiðjuvöllum 8, Reykjanesbæ.
Dagskrá
Kosning fundarstjóra og fundarritara
Formaður ávarpar fundinn
Tillaga að sameiningu Suðurnesja- og Grindavíkurdeildar
Kjörgengir í stjórn og atkvæðaréttur hafa allir félagar, 18 ára og eldri
sem greiddu félagsgjöld fyrir 1. janúar 2020.
Fundurinn er opin öllum félagsmönnum og sjálfboðaliðum
með sjálfboðaliðasamning. Rauði krossinná Suðurnesjum
Rétturinn
Ljúengur
heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Pálína Heiða Gunnarsdóttir f.h.
sjóðsins og Patrik Birmingham,
frændi Ölla f.h. Öllasjóðsins.
Elena Undeland afhenti styrkinn í Noregi f.h. stjórnar sjóðsins og Annette Leinan Dahl, framkvæmdarstjóri
lúðrasveitarinnar i
Mehamn og stofnandi barnalúðrasveitarinnar.
Hulda María Þorbjörnsdótt
ir f.h. Kvenfélags
Njarðvíkur og Guðni Erlend
sson f.h. sjóðsins.
4 // vÍKURFRÉTTiR á SUðURNESJUM Í 40 áR