Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.09.2020, Qupperneq 51

Víkurfréttir - 09.09.2020, Qupperneq 51
Þörungar framleiða mest allt súrefni okkar „Það er svo margt að dást að varð- andi þessar stórkostlegu lífverur. Þörungar framleiða allt að 90 pró- sent af því súrefni sem við öndum að okkur og við eigum þeim bókstaflega líf okkar að þakka. Fjöruþörungar lífa í einu erfiðasta umhverfi sem finnst á jörðinni. Það er síbreytilegt og þeir fara aldrei í dvala eins og líf- ríkið uppi á landi. Í staðinn framleiða þeir lífvirk efni sem gera þeim kleift að lifa af breytilegt hita-, seltu- og rakastig sem getur breyst mikið með aðeins nokkurra klukkustunda millibili vegna sjávarfallanna. Þeir eru einnig frumframleiðendur, sem þýðir að þeir nýta orku sólarinnar til þess að framleiða og fanga nær- ingarefni sem ferðast svo upp með lífkeðjunni. Ofan á allt þetta eru þeir ein sjálfbærasta uppspretta næringar- efna, og einnig sú vannýttasta, sem okkur stendur til boða hér á jörðinni. Fjöruþörungar þurfa ekki landsvæði, jarðveg, ferskt vatn eða áburð til að vaxa og stærstu þörungarnir vaxa um 80 sentimetra á dag. Sé rétt að ræktun staðið getur ræktun þeirra og nýting jafnvel haft jákvætt kol- efnisspor. Það er held ég ekkert sem ekki er hægt að elska við þörunga,“ segir Eydís og Silja bætir því við að fjörur á Suðurnesjum og Suðvestur- horni landsins séu ríkar af þessum mögnuðu þörungum en hvað segir hún við fréttamanninn sem spyr hana út í vondu lyktina sem er oft efst í fjörunni af þaranum. „Já, þarinn er oft búinn að rotna og úldna þarna efst í fjörunni. Við förum neðar og náum í ferskan þara og því er gott að gæta að sjávarföllunum áður en maður fer að tína.“ Hráefni til heilsubótar og veisluhalda Bókin snýst kannski aðallega um það hvernig nýta megi hinar ýmsu þör- ungategundir til manneldis, bæði til matargerðar og einnig sem hráefni til heilsubótar. „Allan þennan tíma hef ég verið að leika mér með þörunga í matargerð og verið að lauma þessu að í hina ýmsu rétti í eldhúsinu heima en það var í rauninni ekki fyrr en ég hitti Hinrik Carl Ellertsson, matreiðslumeistara, árið 2016 að ég fór virkilega að prófa mig áfram. Hinrik vann á þessu tíma á hinum þekkta verðlaunaveitingastað Dill og hann opnaði fyrir mér heim matar sem ég vissi ekki að væri til. Fyrir mér er hann algjör listamaður á sínu sviði og hans uppáhaldshráefni eru þau sem við getum nýtt okkur úr nærumhverfinu,“ segir Eydís. Silja Gunnarsdóttir, alþingiskona og sagnfræðingur og mágkona Ey- dísar, var einn daginn í kaffi hjá henni og sýndi henni erlenda mat- reiðslubók með matþörungum sem hún vildi þýða en hún pantaði sér bókina eftir að hafa séð innslag um þörunga í þættinum 60 mínútur. „Eydís, sem er sérfræðingur í þör- ungum, skoðaði bókina og sagði að við myndum gera okkar eigin bók. Í framhaldinu fengum við Hinrik og hann fékk Karl Petersson, matarljós- myndara, með í hópinn. Þeir hafa báðir ástríðu fyrir því sem þeir gera í matargerð og matarljósmyndun. Við sóttum um og fengum styrk fyrir gerð bókarinnar frá Miðstöð íslenskra bókmennta og hófumst handa,“ segir Silja. Mágkonurnar unnu saman texta bókarinnar, Eydís gerði kortin og skýringarmyndirnar, Hinrik skrifaði matartengda textann og þróaði uppskriftirnar og Karl ljósmyndaði. „Okkur fannst gríðarlega mikilvægt að hönnun bókarinnar væri einstak- lega falleg því matþörungar eru svo misskildir. Þeir eiga það skilið að vera upphafðir og sýndir á fallegan hátt, því þetta er stórkostlegt hrá- efni. Við fengum Einar Geir og Ósk hjá hönnunarstofunni E&Co til að hanna bókina og setja hana upp – og eftir þriggja ára vinnu kom hún loksins út.“ Sætur beltisþari Bókin, sem er 261 blaðsíður, er í raun tvískipt, helmingur bókarinnar er helgaður uppskriftum og matar- tengdum texta. Silja segir að mikil áhersla hafi verið lögð á að upp- skriftirnar væru aðgengilegar og bragðgóðar. Fyrri hluti bókarinnar er hins vegar alhliða fróðleikur um þörunga, hvers vegna við eigum að borða þá, hvernig þeir voru nýttir áður fyrr og hvernig nýta má þá á öruggan og sjálfbærann hátt. Svo eru líka nánari upplýsingar um átta helstu íslensku matþörungateg- undirnar ásamt útbreiðslukortum og útskýringum á því hvernig lesa má flóðatöflur til að geta komist að hinum mismunandi tegundum.“ Í upphafi var beltisþari og purp- urahimna í mestu uppáhaldi hjá Ey- dísi. „Beltisþarinn er frekar sætur, enda kallaður sugar kelp á ensku og sukkertare á dönsku. Hann er langur og því hægt að nota hann til dæmis til að vefja utan um fisk eða kjöt eins og bananablöð. Það er líka hægt að skera hann niður, pönnusteikja eða djúpsteikja. Það er hægt að leika Bók um íslenska matþörunga: Ofurfæða úr fjörunni Ljósmynd: Karl Petersson Fjölmargar glæsilegar ljósmyndir eftir Karl Petersson prýða bók þeirra Silju Daggar og Eydísar Mary. vÍKURFRÉTTiR á SUðURNESJUM Í 40 áR // 19
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.