Milli mála - 2017, Síða 140
TILEINKUN FRUMLAGSFALLS Í ÍSLENSKU SEM ÖÐRU MÁLI
140
ingum með hlutlausri orðaröð, frumlag – sögn – andlag, og þau eru
einföld og ómörkuð. Málnemar geta þó ekki nýtt sér þessi tengsl fyrr
en á 3. stigi úrvinnslustigveldisins þegar setningarhlið rökliðarins
er fullmótuð, og búin öllum þeim upplýsingum sem þörf er á til að
tengjast hlutverkagerðinni. Þangað til hafa byrjendur ekki önnur
úrræði til að mynda setningar en ófullburða vörpun rökliðanna yfir
á flata formgerð liðgerðarinnar eins og sjá mátti á mynd 2 í kafla
2.3.1.
Benda má á að áður en Anke Lenzing setti fram tilgátu sína um
margfalda hömlu á ómörkuð og hlutlaus tengsl var því almennt
haldið fram innan úrvinnslukenningarinnar að setningarleg hlið
rökliðar væri fullmótuð frá upphafi máltileinkunarinnar og því
hefðu byrjendur aðgang að málfræðihlutverkunum í hlutverka-
gerðinni og gætu reitt sig strax á ómörkuð og línuleg tengsl milli
setningastiganna þriggja.40
3.2 Þróun falls milli rökliðagerðar og hlutverkagerðar.
Tilgátan um þróun frumlagsfalls í íslensku
Hin misflókna orðasafnsvörpun, milli merkingarhlutverka í rökliða-
gerðinni og málfræðihlutverka í hlutverkagerðinni, sem rætt var um
hér að framan birtist t.a.m. í frumlagsföllunum fjórum í íslensku,
nefnifalli, þolfalli, þágufalli og eignarfalli. Nefnifallið er birtingar-
mynd einföldustu tengslanna, þ.e. á milli geranda, sem er hæsta
merkingarhlutverkið í stigveldi merkingarhlutverka, og frumlags
sem er það málfræðihlutverk sem samrýmist gerandanum best.41
Nefnifallið er líka birtingarmynd hlutlausrar vörpunar þar sem það
stendur fyrir vörpun allra merkingarhlutverka yfir á frumlag, þ.e.
öllum merkingarhlutverkum má varpa yfir á frumlög í nefnifalli.
Þágufallið er birtingarmynd reglulegrar (þematískrar) vörpunar á
milli skynjanda, sem er þriðja merkingarhlutverkið í stigveldinu,
og frumlags. Þolfalls- og eignarfallsfrumlög eru birtingarmyndir
flóknari vörpunar, þar sem merkingarhlutverkin, sem varpað er yfir
á frumlagið, eru neðar í stigveldi merkingarhlutverka og vörpunin
40 Sjá t.d. Kristof Baten, The acquisition of the German case system by foreign language learners, hér bls. 114.
41 „[C]ompatible grammatical function in the hierarchy of core argument functions” Manfred
Pienemann o.fl., „Extending Processability Theory“, hér bls. 217.