Fréttablaðið - 30.12.2020, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 30.12.2020, Blaðsíða 54
Píkusport.is hóf sölu á Grindarbotnsþjálfanum í desember. Lagerinn seldist upp í þrígang og því má segja að Íslendingar hafi tekið þessari nýjung fagnandi. Að minnsta kosti ein af hverjum fjórum konum stríðir við afleið- ingar veikra grindarbotnsvöðva. Einkenni geta verið allt frá því að vera smávægileg yfir í það að hafa mjög slæm áhrif á lífsgæði. „Grindarbotnsæfingar er ekkert sérlega þjált orð og flestir tengja það við eitthvað sem þeir ættu alltaf að gera en láta þó sitja á hakanum. Við köllum heimasíð- una okkar Píkusport.is því þegar fólk les það þá fara allir að brosa, sumir að hlæja og sumir roðna pínulítið líka. En af því að allir eru orðnir léttir, þá er hægt að tala um eitthvað jafn þungt og erfitt og þvagleka og legsig. Þó að við séum að byrja þá hefur strax orðið svo skemmtileg umræða og grund- völlur til að tala um eitthvað sem annars hefur ekki verið rætt svo mikið,“ segir Svanlaug Jóhanns- dóttir, annar eigenda Píkusport.is. Auðveldara að nenna Grindarbotnsþjálfinn hefur þá sérstöðu að hann er tengdur við app í símanum. Lítill stautur er settur í leggöngin og hann tengist með Bluetooth við tölvuleik í símanum. Stauturinn nemur hvað vöðvarnir „kreista mörg grömm“ og gefur manni endurgjöf á allar æfingar um leið. Það er auðveldara að „nenna“ æfingunum og af því að maður fær stöðuga endurgjöf og skilning á því hvað er betra, sterkara og snarpara þá fer manni svo hratt fram. Vita oft ekki af því „Þegar við Örn, maðurinn minn, vorum að opna OsteoStrong á Íslandi og ég var að segja fólki frá því að við ætluðum að hjálpa með- limum okkar að verða mjög sterk á bara 10 mínútum, einu sinni í viku, þá kom það mér svo á óvart hvað margar konur á öllum aldri spurðu strax: En hvað getur þú gert í sam- bandi við grindarbotninn í mér? Þetta virtust vera konur óháð aldri og óháð hversu „fit“ þær voru sem kom mér á óvart. Aðalvandamálið byrjar yfirleitt við barneignir og getur bæði skánað en líka ýkst eftir það og svo versnað með aldrinum. Oft vita konur ekki að þetta ferli sé hafið og þaðan af síður hvað eigi að gera í því. Síðast en ekki síst getur þetta valdið verkjum í kynlífi eða bara áhugaleysi á kynlífi sem getur verið mjög leiðinlegt fyrir innilegt samlíf,“ segir Svanlaug. Stórt falið vandamál „Við erum með einfalt trikk í OsteoStrong sem hjálpar til en yfir þessi tvö ár sem við erum búin að vera í rekstri þá komst ég að því hvað þetta er bara miklu stærra vandamál en ég hefði trúað áður. Að geta ekki farið á tram- pólín með krökkunum eða sippað í CrossFit vegna möguleika á þvagleka er glatað. Að finna fyrir verkjum í kynlífi er ömurlegt en svo bara hreinlega vissi ég það ekki að konur aðeins eldri en ég eru margar að upplifa legsig eða blöðrusig sem í sinni verstu mynd lýsir sér þannig að líffærin hrein- lega lafa út um leggöngin og það þarf aðgerð til þess að hengja þau upp, sem stundum lagar þvagleka, en stundum alls ekki. Ég er búin að vera að leita að vöru sem gæti hjálpað og verið þýðingarmikil og hélt að ég þyrfti að fara að láta búa hana til sjálf, mér fannst allt eitthvað svo marklaust. Þá loksins fann ég Grindarbotnsþjálfann og hann var fyndinn, skemmtilegur, nákvæmur og ég gat loksins séð nákvæmlega hvað grindarbotninn var að gera. Allt í einu skildi ég allt upp á nýtt! Fékk allt aðra tengingu við grindarbotninn, fann í fyrsta skipti fyrir alvöru árangri,“ segir Svanlaug. Þýðingarmikill árangur „Ég myndi aldrei hafa fyrir því að tala fyrir einhverju sem ég væri ekki búin að prófa sjálf og sjá þýðingarmikinn árangur. Þetta var ekki mikið vandamál hjá mér en allar konur og sérstaklega þær sem hafa eignast börn þurfa að huga að grindarbotnsvöðvunum. Mér sjálfri fannst ég fá alger- lega nýja tengingu við grindar- botninn og glænýjan skilning á því hvernig vöðvarnir virka. Eftir að hafa notað appið þá veit ég að ég var með aðeins ofvirka þvag- blöðru sem þýddi fyrir mig að þegar að ég var að fara að sofa þá hélt ég kannski að ég þyrfti að fara á klósettið þegar ég þurfti þess ekki. Maður svarar spurningum í appinu sem fylgir Grindarbotns- þjálfanum sem býr svo til æfinga- kerfi fyrir mann. Með auknum styrkleika og snerpu grindarbotnsins geta konur þannig loks- ins hoppað á trampólíni, fyrirbyggt þvagleka, minnkað líkur á legsigi – og aukið unað í kynlífi. Er píkusport nýja þjóðarsportið? Með Grindarbotnsþjálfanum spilar þú tölvuleik og stýrir honum með grindarbotnsvöðvunum. Með auknum styrkleika og snerpu grindarbotnsins öðlast konur betri heilsu og meiri lífsgæði. Svanlaug Jóhanns- dóttir segir lítið rætt um grindarbotninn og grindar- botnsæfingar þrátt fyrir að vandamál tengd honum séu bæði algeng og geti haft í för með sér hvimleiðar og hamlandi af- leiðingar. MYND/ EYDÍS EYJÓLFS- DÓTTIR Grindarbotnsþjálfinn gerir konum kleift að leika sér í tölvuleik á meðan þær horfa á grindarbotninn vinna. Fyrir mig beindust því æfing- arnar sérstaklega að því að þjálfa hægu vöðvaþræðina í grindar- botninum. Ég var ekki búin að taka eftir því að þetta var ekki eins og ég var fyrir barneignir en nú er ég önnur. Mér fannst skemmtilegt hvernig ég fann líka strax mun inni í svefnherberginu og það sem kom mér kannski mest á óvart var hvernig þetta hafði áhrif á það hvernig ég gekk eða líkamsstöð- una. Það var svo allt í einu Ó! – á að gera þetta svona!“ segir Svanlaug og hlær. Grindarbotnsþjálfinn er hann- aður í París í samstarfi við þeirra færustu sjúkraþjálfara sem sér- hæfa sig í vandamálum í grindar- holinu. Á honum er 100 daga skilafrestur. Grindarbotnsþjálfinn fæst á pikusport.is og í Borgartúni 24 hjá OsteoStrong. KYNNINGARBLAÐ 27 M I ÐV I KU DAG U R 3 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 HEILSA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.