Fréttablaðið - 30.12.2020, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 30.12.2020, Blaðsíða 30
Hafnarfjarðarbær rekur Lífsgæðasetrið en leigir út aðstöðu í húsinu til rekstraraðila. Húsið á sér rúmlega 90 ára sögu en það gegndi áður hlutverki St. Jósefsspítala. Spítalinn var byggður og rekinn af St. Jósefs- systrum til ársins 1987 þegar Hafnarfjarðarbær eignaðist fimmtán prósenta hlut í húsinu og ríkið tók við rekstrinum og rak til ársins 2011. „Allri sjúkrahúss-starfsemi í húsinu var lokað árið 2011. Húsið stóð síðan autt og var að drabbast niður,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri í Hafnarfirði. „Okkur fannst það mjög miður og vorum við fulltrúar Hafnarfjarðarbæjar í ítrekuðu sambandi við ríkisvaldið sem átti meirihluta í húsinu um að koma einhverri starfsemi þarna inn. Niðurstaðan varð að lokum sú að Hafnarfjarðarbær keypti húsið með því skilyrði að þar yrði komið upp einhvers konar almannaþjónustu.“ Þegar bærinn var kominn með yfirráð yfir húsinu var settur af stað starfshópur til að vega og meta hvernig hægt væri að koma því í notkun. Ákveðið var að koma á laggirnar lífsgæðasetri með áherslu á forvarnir, heilsu og verk- efni sem efla lífsgæði fólks. Það er mjög mikilvægt að halda kostnaðaráætlun „Við vissum alltaf að við yrðum að fara í töluverðar endurbætur á húsinu. Í okkar huga hefur verið mikilvægt að gera þær skynsam- lega og í áföngum og undir virku eftirliti okkar sem berum ábyrgð- ina. Því var skipaður sérstakur framkvæmdahópur sem formaður bæjarráðs veitir forystu og við f leiri kjörnir fulltrúar sitjum í ásamt embættismönnum. Þannig er hægt að fylgjast vel með hvort framkvæmdakostnaður haldi ekki örugglega áætlun,“ segir Rósa. „Síðastliðið sumar var ákveðið að klára utanhússviðgerðir en húsið var illa farið og margar rúður brotnar. Það var strax ákveðið að gera allt húsið og gluggana upp í upprunalegri mynd og anddyri sem sett var framan á húsið fyrir um 25 árum var rifið burt. Þá var einnig unnið að steypuviðgerðum og húsið málað. Núna er verið að klára framkvæmdir að utan og á lóðinni og húsið er orðið hin mesta bæjarprýði.“ Lífsgæðasetrið var formlega opnað í september í fyrra þegar starfsemi á annarri hæð hússins var tekin í notkun, eftir miklar endurbætur á þeirri hæð. Rósa útskýrir að auglýst hafi verið eftir áhugasömum rekstraraðilum sem væru að vinna að verkefnum tengdum heilsu og lífsgæðum og vildu leigja aðstöðu á hæðinni fyrir sinn rekstur. „Núna höfum við verið með rekstur á þessari hæð í eitt ár sem gengur mjög vel og mikil ánægja er með,“ segir Rósa. Hafnarfjarðarbær hefur áform um að halda áfram fram- kvæmdum innanhúss svo hægt sé að koma húsinu öllu í útleigu og það verði sjálf bært. Á næsta ári munu Alzheimersamtökin og Parkinsonsamtökin f lytja inn á þriðju hæð hússins en Oddfellow- reglan mun sjá að mestu leyti um kostnaðinn við endurgerð þeirrar hæðar. „Það er okkur mikilvægt að rekstur hússins verði sjálf bær en okkur rann blóðið til skyldunnar í upphafi að bjarga þessu fallega húsi sem Guðjón Samúelsson teiknaði og er eitt af fallegri húsum á landinu. Við vildum koma aftur góðri starfsemi í húsið í anda nunnanna sem komu því á laggirnar og að sögu þess yrði sýndur sá sómi sem því ber. Þetta er fallegt samfélagsverkefni sem við erum ákaflega stolt af,“ segir Rósa.“ Lífsgæðasetur St. Jó er í anda stefnu Hafnarfjarðarbæjar um að vera heilsueflandi samfélag en bærinn gerði samkomulag um þá stefnu við landlækni árið 2015. „Við erum að vinna á öllum sviðum bæjarins að verkefnum sem styðja við heilsueflingu fólks. Lífgæðasetur St. Jó er stórt verk- efni í þeirri áætlun,“ útskýrir Rósa. Aðlaga sig aðstæðum Í mars síðastliðnum var Ragn- heiður Dögg Agnarsdóttir ráðin verkefnastjóri Lífsgæðaseturs St. Jó. Hún tók við starfinu á tíma mikilla áskorana þegar fyrsta bylgja COVID reið yfir landið. Ragnheiður segir að þessar sér- stöku aðstæður í ár hafi kallað á mikla útsjónarsemi til að geta haldið úti starfi í húsinu. „Eins og staðan er í dag eru fimmtán aðilar í húsinu sem veita þjónustu. Það eru meðal annars markþjálfar, jógakennarar, fjöl- skylduráðgjöf, Litla kvíðameð- ferðarstöðin, Janus heilsuefling, Sorgarmiðstöðin og Örmælir, fyrirtæki sem býr til mælinga- búnað fyrir lífeðlisfræðilegar mælingar,“ útskýrir Ragnheiður. „Starfsemin er að hluta við- kvæm en f lestum hefur gengið vel að aðlaga sig þessum sérstöku aðstæðum. Ég nefni sem dæmi að Janus heilsuefling færði sig mikið yfir á netið en þau vinna með fólki sem er komið yfir sex- tugt í heilsueflingu. Sorgarmið- stöðin sem einnig er með mikið af hópastarfi hefur líka þurft að f lytja hluta starfsemi sinnar yfir á netið. En margir í húsinu vinna mikið maður á mann, eins og við fjölskylduráðgjöf, markþjálfun og sálfræðiaðstoð, þar gildir bara grímuskylda og tveggja metra reglan.“ Ragnheiður segir árið hafa verið lærdómsríkt fyrir alla í húsinu. „Það er mikilvægt að hafa getað haldið húsinu lifandi þrátt fyrir erfiða tíma. Við slökktum ekki bara ljósin og tæmdum húsið þegar COVID skall á, við reyndum að finna bestu leiðir til að halda starfinu gangandi en fylgja auðvit- að um leið öllum reglum. Sumarið var nýtt í utanhússviðgerðir eins og Rósa sagði frá. Það er ánægju- legt að húsið sé loks að verða eins fallegt og það var þegar það var upphaflega byggt árið 1926. Við vonum að á 100 ára afmælinu árið 2026 verði komið mikið líf og fjör í húsið og enn meiri starfsemi en er núna,“ segir hún. Víðtæk þjónusta í húsinu „Við sjáum fyrir okkur að þrjú til fjögur félagasamtök geti verið í húsinu og kannski 50-60 manns að njóta þjónustu þeirra daglega, til dæmis á dagdeildum. Svo verða kannski 20-30 aðrir þjónustuað- ilar í húsinu sem allir vinna að því að stuðla að auknum lífsgæðum fólks,“ segir Ragnheiður. „Við viljum að fólk geti fengið sem víðtækasta þjónustu í húsinu og að við þurfum aldrei að vísa því úr húsi glími það við fjölþættan vanda. Sem dæmi þá er hægt að fá meðferð við kvíða á Litlu kvíða- meðferðarstöðinni og viðbótar- þjónusta við það gæti verið að hitta markþjálfa og kannski fara í jóga og svo framvegis. Allt undir sama þaki.“ Á seinni hluta næsta árs er vonast til að hægt verði að fjölga leigurýmum í húsinu. Ef allar áætlanir ganga eftir verður tvö- földun á leigurýmum en að sögn Ragnheiðar er nú þegar langur biðlisti eftir þeim. „Við segjum stundum að systurnar séu einhvern veginn ennþá með okkur. Fólk talar um að andinn hér sé alveg sérstakur. Fólk sem kemur hingað er ekki endilega veikt heldur kemur það hingað til að takast á við heilsu- farslegar áskoranir á uppbyggi- legan og jákvæðan hátt. Það verður mjög spennandi á næsta ári að klára húsið og fylla það af enn meira lífi.“ Fjölþætt þjónusta undir einu þaki Lífsgæðasetur St. Jó var opnað í húsnæði St. Jósefsspítala í Hafnarfirði haustið 2019. Lífsgæða- setrið er rekið af Hafnarfjarðarbæ en öll starfsemi í húsinu miðar að því að auka lífsgæði fólks. Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Ragnheiður Dögg Agnarsdóttir verkefnastjóri Lífsgæðaseturs St. Jó eru bjartsýnar á framtíð hússins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Húsið hefur farið í gegnum miklar endurbætur. MYND/OLGA BJÖRT ÞÓRÐARDÓTTIR Við vildum koma aftur góðri starfs- semi í húsið í anda nunnanna sem komu því á laggirnar og að sögu þess yrði sýndur sá sómi sem því ber. KYNNINGARBLAÐ 3 M I ÐV I KU DAG U R 3 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 HEILSA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.