Fréttablaðið - 30.12.2020, Blaðsíða 31
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Hinn efnilegi 19 ára markvörður Jökull Andrésson stóð sig með prýði hjá Exeter City í haust. MYND/AÐSEND
Markmaðurinn Jökull er einungis 19 ára gamall en hefur verið á atvinnu-
mannasamningi hjá Reading frá
því hann var 17 ára. Jökull kemur
úr mikilli fótboltafjölskyldu en
bræður hans Axel Óskar og Örn
Andréssynir hafa allir spilað fyrir
Reading.
„Það eru þrjú ár á milli okkar
allra og þegar ég var 13 ára ákváð-
um við fjölskyldan að flytja öll til
Englands og fara í fótboltaheiminn.
Við bræðurnir spiluðum allir fyrir
Reading á sama tíma, þegar ég
var í undir 18 ára liðinu var Axel í
undir 21 árs og Örn í undir 15 ára,“
útskýrir Jökull en hann er núna
nýlega komin í aðallið Reading sem
spilar í meistaradeild enska boltans.
„Ég er núna þriðji og fjórði
markmaður hjá þeim, en ég hef
ekki spilað atvinnumannaleik
með þeim. Ég er ennþá ungur og að
brjótast inn í liðið. Núna er verið að
senda mig í lán hingað og þangað
svo ég fái reynslu, Ég vona svo að
ég fari að brjótast inn í liðið hjá
Reading þegar ég er orðinn aðeins
eldri,“ segir hann.
Fyrsti atvinnuleikurinn
Í haust fékk Jökull tækifæri til að
spila fyrsta atvinnumannaleikinn
fyrir Exeter City í D-deild enska
boltans. En Jökull var fenginn til
Exeter á neyðarláni í viku sem
síðan var framlengt. Jökull útskýrir
að hann hafi frétt af láninu mjög
óvænt með litlum fyrirvara.
„Ég var á leiðinni til Man chester
með aðalliðinu í Reading. Allt
liðið var að fara þangað til að
spila og þeir sem ekki spiluðu
með liðinu áttu að æfa þar. Ég var
nýbúinn að vera í fimm klukku-
tíma rútuferð til Manchester sem
var alveg hundleiðinlegt og var
loksins komin upp á hótelher-
bergið. Ég var búinn að slaka á þar
í svona 10 mínútur þegar mark-
mannsþjálfarinn minn kemur
upp í herbergið og segir: Þú þarft
að fara beinustu leið til baka
því þú ert að fara að spila fyrsta
atvinnuleikinn þinn á morgun
með Exeter City.“
Jökull fór því beint aftur í sex
tíma lestarferð og maður frá Read-
ing bjargaði honum um einhvern
mat þar sem ekki var hægt að fara
í búð út af COVID.
„Ég fékk beikon og tómata-
samloku, súkkulaði og Diet Coke
daginn fyrir fyrsta atvinnu-
mannaleikinn minn, sem var
áhugavert. Vanalega myndi ég
ekki fá mér þannig mat fyrir leik
en það þurfti bara að vera svona.
Ég þarf yfirleitt að passa vel hvað
ég borða,“ segir Jökull.
Hann útskýrir að næsta dag hafi
hann verið sóttur á sendiferðabíl
því Exeter er ekki ríkasti klúbbur í
heimi. „Það var þess vegna ekkert
verið að sækja mig í limmósínu.
Við vorum þrír í bílnum sem
sátum þétt saman því bíllinn var
þröngur. Ég hafði aldrei hitt þá
áður en þetta voru rosalega fínir
gaurar,“ segir Jökull.
„Fólkið í Exeter var allt æðis-
legt. Hvernig þau komu fram við
mig var frábært. Ég er 19 ára og
hafði aldrei spilað atvinnuleik
í lífinu og þeir tóku bara séns á
mér, sem betur fer fór þetta allt
vel þarna.“
Er á góðum stað núna
Fólkið hjá Exeter var greinilega
líka ánægt með Jökul því neyðar-
lánið var framlengt oftar en einu
sinni. Jökull er núna aftur farinn
til Reading, æfingar eru stífar alla
daga kringum hátíðirnar og lítið
jólafrí fyrir atvinnufótboltamenn.
„Ég verð þess vegna að passa
mig að borða líka hollt um jólin
þó ég megi auðvitað leyfa mér
aðeins. Það var leikur á öðrum í
jólum svo það voru æfingar alla
daga í kringum jól. Það er mikið
prógramm í kringum jólin og það
er haldið vel utan um allt fyrir
okkur. Það eru íþróttafræðingar
sem passa upp á að við borðum
rétt og æfum rétt. Reading gengur
rosalega vel núna í meistaradeild-
inni svo þeir eru mjög strangir
við okkur og passa að við gerum
allt rétt svo við komumst upp úr
deildinni,“ útskýrir Jökull.
Hann segir framtíðardraumana
í boltanum vera að spila í ensku
úrvalsdeildinni en til að byrja með
stefnir hann að því að halda áfram
á þeirri leið sem hann er núna.
„Ég er á mjög góðum stað núna
fótboltalega séð. Mig langar að
halda áfram að komast á lán
og spila svona 20 leiki til að fá
reynslu. Svo langar mig að fá að
spila með Readingliðinu. Þeir hafa
verið að spila rosalega vel á þessu
ári svo það er aldrei að vita nema
við komust upp í úrvalsdeildina.
Það væri auðvitað draumurinn
að spila í úrvalsdeildinni. Ég er
allavega að gera allt mitt besta og
það er ekkert sem stoppar mann
núna.“
Draumurinn er að
spila í úrvalsdeildinni
Í haust spilaði Jökull Andrésson sinn fyrsta atvinnuleik
í fótbolta. Hann hefur æft frá unga aldri og fær góðan
stuðning við að borða rétt og æfa rétt til að ná árangri.
4 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U RHEILSA
HUGSAÐU UM
HOLLUSTUNA!