Fréttablaðið - 30.12.2020, Blaðsíða 39
Meðfram jóganu hefur Salome stundað hestamennsku, dans og sund.
„Ég hef einmitt náð að upplifa svip
aða tilfinningu í þessum greinum
eins og þegar ég hugleiði. Þá finn
ég kyrrð í huga og tilfinningum,“
segir hún.
Salome er menntaður jóga
kennari frá Jógaskóla Kristbjargar.
„Tíminn sem ég lærði hjá Krist
björgu var alveg æðislegur og
opnaði fyrir mér nýja sýn. Ég fór í
námið aðallega til að kafa dýpra
ofan í jógafræðin og öðlast betri
skilning á jógaheiminum, en ekki
endilega til að vera kennari. Þegar
náminu lauk bauðst mér að kenna
með vinkonu minni úr náminu og
ákváðum við að setja saman tíma
í Gerðubergi. Í kjölfarið á náminu
hjá Kristbjörgu sótti ég svo nám
skeið í bæði tónheilun og í áfalla
miðuðu jóga.“
Jógabók fyrir börn
Salome gaf nýverið út barnabók
ina Gullveig og Tobbi á ferðalagi
þar sem hún samtvinnar sögu og
jógastöður í einstaka og skemmti
lega barnabók sem hjálpar
börnum að stunda jóga, hugleiðslu
og nálgast innri frið. Salome segist
ekki hafa unnið markvisst með
börnum í jóga. „En ég hef aðeins
unnið með börnin í kringum mig
að undirstöðuatriðum í jóga, eins
og hugleiðslu, öndunaræfingum
og grunnstöðum. Það sem kom
mér svolítið á óvart er hvað mörg
börn leita eftir því að finna meiri
kyrrð og ró, en kannski er það ekki
skrítið því stundum förum við
fram úr okkur í amstri dagsins.“
Bókin segir frá góðum vinum
sem nota jóga og hugleiðslu til
að leysa ótrúlegustu þrautir. Í
bókinni er stiklað á samkennd,
vináttu, umburðarlyndi, þakklæti
og fyrirgefningu. „Í sögunni sam
tvinnast þessi boðskapur og ævin
týri félaganna og hvernig hægt
er að nýta sér jógafræðin í amstri
dagsins, með því leitast við að búa
til okkar eigið jafnvægi. Bókinni
fylgir hljóðbók þar sem hægt er
að hlusta á alla söguna og leggja
bókina frá sér, hugleiða og gera
æfingarnar. Ef maður er ekki alveg
öruggur á því hvernig jógastaðan
er framkvæmd, þá fylgir líka
snjallforrit með bókinni sem sýnir
nokkrar af stöðunum sem krakk
arnir læra í bókinni.“ Hægt er að
skoða bókina enn betur á síðu
útgefanda, sysla.is, og bókin fæst í
helstu bókaverslunum landsins.
Vildi óska að hún hefði
kynnst jóga fyrr á lífsleiðinni
„Ég er svo þakklát fyrir að hafa
kynnst jóga því það hefur kennt
mér svo margt ómetanlegt. Mér
hefur fundist jóga opna fyrir mér
annan heim og hafa gert mig víð
sýnni. Þá hef ég sérstaklega heillast
af jógaheimspekinni og öndunar
æfingunum sem gefa manni
tækifæri til að skoða samskipti
og heiminn út frá öðru sjónar
horni en maður er vanur. Oftast er
maður svo litaður af sínu nánasta
umhverfi og því er svo dýrmætt að
kynnast nýrri sýn og fá að skoða
heiminn með öðru hugarfari. En
svo er það tilfinningin sem ég fæ
þegar ég hugleiði, iðka öndunar
æfingarnar og næ að sameina
þessa þætti þegar ég fer í jógastöð
urnar, þessi tilfinning hefur svo
endurnærandi áhrif á mig.“
Náði stundum ekki að anda
almennilega ofan í lungun
„Ég vildi óska þess að ég hefði lært
jóga miklu fyrr á lífsleiðinni og náð
að tileinka mér þessi fræði fyrr inn
í mitt daglega líf. Þess vegna ákvað
ég að skrifa þessa bók. Ég var
stundum svolítið kvíðið barn, en
vissi eiginlega ekki hvað það var.
Mér fannst ég stundum ekki ná að
anda almennilega ofan í lungun,
eins og andardrátturinn næði bara
rétt ofan í hálsinn. Ég hélt alltaf
að ég væri með svona léleg lungu,
en lærði svo síðar meir að finna
róna, slaka á og anda djúpt að mér,
halda andanum inni og anda vel
frá. Þessi æfing, sem hljómar svo
auðveld, hjálpaði mér mjög mikið.
Það er oft svo mikill hraði á öllu og
öllum að við gleymum að staldra
við og ég er viss um að þessar
æfingar geti gagnast mörgum vel.
Mér fannst alveg vanta bækur sem
fara inn á þessi fræði fyrir börn hér
á Íslandi, þar sem jógafræðin sam
tvinnast örlítið íslenska umhverf
inu.“
… eins og andar-
drátturinn næði
bara rétt ofan í hálsinn.
Salome Friðgeirsdóttir
Jóhanna María
Einarsdóttir
johannamaria@frettabladid.is
Við þráum öll ró og innri kyrrð
Salome Friðgeirsdóttir er ein af þeim sem eiga jógaástundun mikið að þakka en hún hefur nú
stundað jóga að staðaldri síðustu 20 árin. Þá óskar hún þess að hún hefði kynnst jóga sem barn.
Salome Friðgeirsdóttir hefur
stundað jóga í tuttugu ár og segir
alla þurfa á innri kyrrð að halda,
ekki síst börn. MYNDIR/AÐSENDAR.
Salome gaf út barnabók þar sem hún tvinnar jógastöður inn í söguþráðinn á nýstárlegan og skemmtilegan hátt.
Félagarnir Gullveig og Tobbi ferðast um víðan völl og læra að stunda jóga
og hugleiðslu til þess nálgast innri frið og finna sitt eigið jafnvægi.
Morgundagurinn
verður betri með
After Party™
Amínósýrur, Rósepli, Cactus extract, öflug
blanda af B-vítamínum og Magnesíum.
Vinnur gegn vökvatapi sem á sér
stað við áfengisneyslu
2 töflur fyrir fyrsta drykk
2 töflur fyrir svefn
Fæst í apótekum og heilsuhillum verslana I www.artasan.is
12 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U RHEILSA