Fréttablaðið - 30.12.2020, Blaðsíða 7
Þú færð Víg Snorra á næsta
flugeldamarkaði björgunarsveitanna
Samsett kaka sem skýtur upp
þyrpingu af 10 kúlum í einu
með gulllituðum hala. Kúlurnar
springa í rauðar, grænar og gular
stjörnur með brakandi leiftri.
skot
53
SEK
4
5
16
100
kg
✿ Staðsetning vindmyllugarðs Zephyr á Mosfellsheiði.
Þingvallavatn
Mosfellsheiði
Þingvellir
Reykjavík
SKIPULAGSMÁL Hæð vindmylla
í fyrirhuguðum vindorkugarði
Zeph yr Iceland ehf. á Mosfellsheiði
skapar stórfellda árekstrarhættu
fyrir sviff lug að sögn stjórnar Svif-
f lugfélags Íslands.
Zephyr Iceland ehf., sem er
dótturfyrirtæki norska vindorku-
fyrirtækisins Zephyr AS, hyggst
byggja allt að 200 MW vindorku-
garð á Mosfellsheiði. Rætt er um
þrjátíu vindmyllur sem yrðu 150 til
200 metra háar með spaða í hæstu
stöðu.
Meðal þeirra sem sendu inn
athugasemdir til Skipulagsstofn-
unar er stjórn Sviff lugfélags Íslands
(SFÍ). Segir stjórnin fyrirhugaða
staðsetningu vindorkugarðsins
vera í miðju skilgreinds æfinga-
svæðis lítilla loftfara og steinsnar
frá skilgreindu svæði sviff lugs á
Sandskeiði og Bláfjöllum ásamt
Sandskeiðsf lugvelli og mikilvægu
sviff lugssvæði við Hengil.
„Ljóst er að öll truflun á f lugskil-
yrðum og takmörkun á f lugfrelsi
sem kann að stafa frá fyrirhuguðu
vindorkuveri mun skerða stórkost-
lega eða eyðileggja möguleika á
svæðinu ef af byggingu vindorku-
garðsins verður. Hæð vindmylla
í fyrirhuguðum vindorkugarði
skapar einnig stórfellda árekstrar-
hættu fyrir sviff lug,“ segir í athuga-
semdum stjórnar Sviff lugfélagsins.
Matsáætlun fyrir vindorkugarðinn
nái á engan hátt til mats á nei-
kvæðum áhrifum á veðurfarslegar
forsendur til sviff lugs og möguleika
félagsins á að halda áfram starfsemi
á Sandskeiði.
„Enn fremur eru gerðar alvar-
legar athugasemdir vegna þeirrar
hættu sem vindorkugarður á þess-
um stað myndi valda f lugumferð
og vegna þess rasks sem garðurinn
myndi valda á starfsemi f lugíþrótta
á Íslandi í víðu samhengi,“ segir í
stjórn SFÍ. Mörg atriði sem tengist
f lugi séu órannsökuð, til dæmis
áhrif loftiða og ókyrrðar sem
vindmyllurnar geti skapað, eins og
erlendar rannsóknir gefi til kynna.
„Ljóst er að rastir frá vindorku-
görðum geta náð í margra kíló-
metra fjarlægð frá uppruna sínum.
Kraftur loftiða minnkar eftir því
sem þær fjarlægjast upprunapunkti
en jafnframt stækkar áhrifasvæði
þeirra verulega,“ bendir Sviff lug-
félagið á. Þegar margar vindmyllur
séu á sama svæði verði samspil
þeirra ófyrirsjáanlegt. „Rastirnar
geta skapað stórkostlega hættu
fyrir smærri f lugvélar vegna þeirra
krafta sem þeim fylgja. Í verstu til-
vikum geta f lugvélar orðið fyrir
verulegum skemmdum og/eða
[orðið] stjórnlausar.“
Þá undirstrikar Sviff lugfélagið
að sviff lug á Sandskeiði byggist á
hagnýtingu ótruf laðra náttúru-
legra vinda og veðurfars. „Hvers
kyns truf lun á þessum aðstæðum
hefði í för með sér stórfelld, nei-
kvæð áhrif á möguleika til sviff lugs
á skilgreindum flugsvæðum á Mos-
fellsheiði, á Sandskeiði og við Blá-
fjöll,“ heldur stjórnin fram. Fyrir-
liggjandi rannsóknir á áhrifum
vindorkugarða á vinda- og veður-
far gefa til kynna að vindorku-
garðurinn myndi valda stórfelldri
truf lun á náttúrulegu vinda- og
veðurfari í margra kílómetra radí-
us. „Slíkt myndi hafa í för með sér
stórfellda skerðingu á möguleikum
til sviff lugs á öllu f lugsvæði SFÍ og
þar með kippa grundvelli undan
rekstri félagsins sem er eina félag-
ið á Íslandi sem stundar og kennir
sviff lug.“
Vill Sviff lugfélagið að mats-
áætlunin nái til veðurfarslegra
og f lugtengdra þátta með til-
heyrandi rannsóknum og mati.
Einnig kveðst félagið taka undir
ábendingar og athugasemdir frá
Flugmálafélagi Íslands, Félagi
f lugmanna og f lugvélaeigenda á
Íslandi og Fisfélags Reykjavíkur.
„Vill stjórn SFÍ árétta að hún leggst
eindregið gegn öllum áformum um
byggingu vindorkugarðs á Mos-
fellsheiði vegna þeirra neikvæðu
áhrifa sem slíkt mun hafa á hags-
muni SFÍ,“ segir að lokum.
gar@frettabladid.is
Svifflugmenn telja vindmyllur
á Mosfellsheiði stórhættulegar
Truflun frá áformuðum vindorkugarði á Mosfellsheiði myndi leiða til stófelldrar árekstrarhættu og jafn-
vel eyðileggja möguleika til flugs á svæðinu og kippa grundvelli undan rekstri Svifflugfélags Íslands, að
sögn stjórnar félagsins. Gert er ráð fyrir þrjátíu vindmyllum sem verði allt að tvö hundruð metra háar.
Áætlað er að vindmyllur á Mosfellsheiði verði á endanum þrjátíu að tölu. Myndin er frá Texas. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Vindorkugarðurinn á Mosfellsheiði á að vera þar sem vindmyllutáknin eru.
Svifflugvöllurinn
á Sandskeiði
KÍNA Kínverjar staðfestu á sunnu-
dag framsalssamning við Tyrkland
frá árinu 2017. Mannréttindasam-
tök hafa hvatt Tyrki til að hætta við
að staðfesta samninginn, enda setji
hann flóttamenn Úígúra í landinu
í hættu.
Arabnews greinir frá því að
Kínverjar hafi notað bóluefnis-
sendingar til að þrýsta á Tyrki í
málinu. Tyrkir hafa lengi tekið við
úígörskum flóttamönnum frá Kína.
Í Tyrklandi dvelja nú 60 þúsund
Úígúrar, þar af 50 þúsund f lótta-
menn. Mannréttindabrot Kínverja
á Úígúrum eru vel þekkt og hafa
þeir þurft að sæta ýmiss konar illri
meðferð. Talið er að markmið Kín-
verja sé að afmá þjóðareinkenni og
tungu Úígúra.
Fyrir utan Kína og Tyrkland búa
hundruð þúsunda Úígúra í Mið-
Asíu, fyrrum sovétlýðveldum á
borð við Kasakstan, Úsbekistan
og Kirgistan. Hingað til hafa Tyrkir
ekki viljað framselja Úígúra til Kína.
Mannréttindavaktin, Nordic Moni-
tor og fleiri óttast að ef Tyrkir stað-
festa samninginn verði ríki Mið-
Asíu milliliðir um framsalið.
Framsalssamningurinn er merki
um aukin samskipti milli Ankara og
Peking. Stjórn Erdogans hefur verið
treg til að fordæma mannréttinda-
brot Kínverja, svo sem innan Sam-
einuðu þjóðanna. Viðskipti milli
ríkjanna hafa aukist og stjórn Kína
er þekkt fyrir að nota þau til að ná
fram pólitískum markmiðum.
Barátta Kínverja gegn Úígúrum
fellur þó ekki undir skilgreiningu
þjóðarmorðs. Samkvæmt opinberri
stefnu kommúnistaf lokksins er
verið að „aðstoða Úígúra úr fátækt“.
Utanríkisráðherra Kínverja fundaði
símleiðis með tyrkneskum kollega
sínum nýlega. Í yfirlýsingu eftir
fundinn kom fram að bæði lönd
myndu berjast saman gegn hryðju-
verkaógninni. – khg
Kínverjar reyna að fá Úígúra framselda
Tengsl Tyrklands og Kína hafa
aukist í tíð Erdogans og Jinping.
VIÐSKIPTI Gengi á Bitcoin-rafmynt-
inni hefur verið á mikilli siglingu á
síðari hluta ársins og fór gengið á
dögunum yfir 28 þúsund dollara á
hverja mynt, sem nemur rúmlega
3,5 milljónum króna. Til saman-
burðar var gengi á hverja mynt
rúmlega 7 þúsund dollarar í byrjun
árs og fór lægst í rúmlega 5 þúsund
dollara um miðjan mars. Gengi
myntarinnar hefur því margfaldast
það sem af er ári og það sama gildir
um áhuga Íslendinga.
Eins og Fréttablaðið greindi frá í
maí setti fjártæknifyrirtækið Mynt-
kaup ehf. samnefndan vef í loftið
þar sem Íslendingum gefst kostur á
að kaupa og selja rafmyntina.
Patrekur Maron Magnússon,
framkvæmdastjóri Myntkaupa,
segir að fyrirtækið hafi strax fundið
fyrir miklum áhuga Íslendinga á
myntinni og að hann hafi aukist
eftir því sem líður á árið.
„Viðtökurnar strax í byrjun
voru framar öllum okkar vonum,
sérstaklega hjá eldri kynslóðinni.
Eftir því sem gengi myntarinnar
hefur hækkað á árinu hefur áhugi
Íslendinga greinilega aukist sam-
hliða því,“ segir Patrekur.
Til marks um það hafi Íslend-
ingar stundað viðskipti fyrir um
2 milljónir evra, um 313 milljónir
króna, það sem af er desember-
mánuði. „Það er sextánföld aukning
frá því í október þannig að það er
alveg ljóst að áhuginn fer vaxandi,“
segir hann.
Ljóst er að mikil áhætta er fólgin
í að fjárfesta í Bitcoin enda verð-
sveiflurnar miklar. Á meðan aðrir
telja að gengið eigi eftir að marg-
faldast á næstu árum telja aðrir að
um sé að ræða bólu sem muni óhjá-
kvæmilega springa að lokum.
Patrekur segist hafa fulla trú á
að myntin sé komin til að vera og
eigi mikið inni. „Bitcoin er búin að
vera til í ellefu ár og er í heildina
um hálfrar trilljónar dollara virði.
Bankar og erlendir vogunarsjóðir
eru farnir að fjárfesta í myntinni
og á dögunum fór PayPal að bjóða
upp á viðskipti með rafmyntina.
Við hefðum ekki farið í þá vegferð
að stofna þetta fyrirtæki ef við
hefðum ekki trú á áframhaldandi
vexti Bitcoin,“ segir Patrekur. – bþ
Landinn kaupir
rafmynt grimmt
Patrekur Maron Magnússon,
framkvæmdastjóri Myntkaupa.
3 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð