Fréttablaðið - 30.12.2020, Blaðsíða 69

Fréttablaðið - 30.12.2020, Blaðsíða 69
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Halldór Guðmundsson Grundargötu 28 í Grundarfirði, lést á heimili sínu sunnudaginn 7. desember. Gunnar Karl Halldórsson Bryndís Halldórsdóttir Einar Stefán Jóhannesson Halldóra Halldórsdóttir Ásgeir Ingvi Jónsson barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, Vigdísar Guðbjarnadóttur dvalarheimilinu Höfða, áður til heimilis að Einigrund 22, Akranesi. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Höfða. Guð blessi ykkur öll. Vignir Jóhannsson Karen Goss Brynja Jóhannsdóttir Magnús Ebenesersson ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubarn. Frakkanum Patrick Gervasoni var vísað úr landi þennan mánaðardag árið 1980 eftir miklar deilur. Hann var eftirlýstur fyrir að neita að gegna herskyldu í heimalandinu en flúði fyrst til Danmerkur og sótti skriflega um hæli á Íslandi í apríl 1980. Kom svo með Smyrli til landsins í september til að þrýsta á um afgreiðslu málsins. Þar fram- vísaði hann hollensku atvinnu- skírteini undir nafninu Dominique Licien van Hoove og kvaðst hafa glatað vegabréfinu á leiðinni. Málið velktist í íslenska dóms- kerfinu og fjölmiðlar og almenn- ingur blandaði sér í það, haldinn var fjölmennur útifundur á Lækjartorgi í október þar sem siðferðis- og mannúðarrök voru áberandi. Dómsmálaráðherrann, Friðjón Þórðarson, taldi að gæta þyrfti öryggis landsins, deila mætti um hvort um pólitískan flóttamann væri að ræða en útilokað væri að hafa landið opið fyrir hverjum sem væri. Þ E T TA G E R Ð I S T: 3 0 . D E S E M B E R 19 8 0 Landflótta manni vísað brott frá Íslandi Þegar ég byrjaði að vinna hjá Ríkisútvarpinu á Akureyri á nýársdag 1991 bjó fjölskyld-an á Siglufirði. Þá voru ekki komin nein jarðgöng með fram ströndinni til austurs og ég þurfti því að keyra um Skagafjörðinn og Öxnadalsheiði til Akureyrar. Það voru eitthvað um 200 kílómetrar. Erna Ind- riðadóttir, þáverandi stöðvarstjóri sem réði mig, sagði: „Þú byrjar 1. janúar og þú verður með útvarpsfrétt í hádeginu um hvernig gamlárskvöld gekk fyrir sig.“ „Já, allt í lagi,“ sagði ég, vaknaði svo klukkan fjögur um morguninn á nýárs- dag og var með hefðbundinn pistil frá Akureyri um gamlárskvöld í hádegis- fréttum á nýársdag, það hefði verið annasamt hjá löggunni og allt það. Þarna markaði ég mér spor. Nokkrum mánuðum síðar flutti öll fjölskyldan frá Siglufirði til Akureyrar.“ Þetta segir Karl Eskil Pálsson fréttamaður sem fagnar þriggja áratuga starfsferli um þessi ára- mót og er nú á N4. „Ég vann í tuttugu ár hjá RÚV og það var alltaf reiknað með pistli frá mér í hádegisfréttum útvarps í hádeginu á nýársdag,“ lýsir hann. „Stundum var ég á jólum og áramótum í útlöndum en alltaf sá ég um að gera innlenda frétt í hádeginu á nýársdag, allir vaktstjórar vissu af þessu og reiknuðu með pistli.“ Á RÚV í 20 ár Frásögnin í nýárspistlinum bendir til að Karl Eskil sé f ljótur að vinna en hann gerir lítið úr því. „Ég hef alltaf lagt áherslu á að fá minn tíma til að undir- búa viðtöl eða umfjöllun. Með árunum skapast auðvitað ákveðin reynsla sem kemur til góða en engu að síður skiptir undirbúningurinn miklu máli. Hitt er svo annað að íslenskt fjölmiðlafólk þarf almennt að skila töluverðu efni, stund- um vill slíkt koma niður á gæðunum, eðlilega.“ Karl Eskil kveðst hafa starfað á frétta- stofu RÚV í slétt tuttugu ár. „Stofnunin var í miklum fjárhagsvanda og ég lenti í þriðju fjöldauppsögninni, það var auð- vitað mikið högg. Sem betur fer var ég snöggur að jafna mig og fór að starfa sem sjálfstæður fjölmiðlamaður með áherslu á skrif um atvinnumál. Þá kom sér vel að njóta trausts margra og vera þokkalega tengdur, enda var ég f ljótlega kominn með ágætis verkefni. Eftir þrjú ár tók ég boði um að gerast ritstjóri Vikudags á Akureyri. Að tveimur árum liðnum lá leiðin á sjónvarpsstöðina N4, þar hef ég starfað í rúmlega fimm ár. N4 er á mikilli siglingu og verkefnastaðan líklega aldr- ei verið eins góð og nú. Stundum finnst mér uppsögnin á RÚV hafa verið mín gæfa, það er almennt ekki gott að vera of lengi á sama stað.“ Traustið það mikilvægasta Karl Eskil segir að því fylgi tilhlökkun að mæta til starfa f lesta daga. „Fjölmiðlun er afskaplega lifandi starf, manni gefst kostur á að vera viðstaddur og segja frá ýmsum merkilegum viðburðum. Á löngum ferli er auðvitað ekki allt jákvætt, það skiptast á skin og skúrir í atvinnu- og mannlífi. Að þurfa á vett- vang vegna dauðaslyss eða bruna er alltaf átakanlegt og erfitt að segja frá. Í slíkum tilvikum er reynslan góður kostur. Það sem stendur upp úr er þakklæti fyrir að hafa verið treyst fyrir því að miðla viðhorfum annarra til lands- manna og segja fréttir. Traustið er það mikilvægasta í fjölmiðlun, ekki endilega að vera fyrstur með fréttirnar.“ Innihaldsríkt líf Miklar breytingar hafa orðið á starfsum- hverfi Karls Eskils á síðustu 30 árum, eins og hann lýsir. „Þegar ég var að byrja voru faxtækin mikil þarfaþing og tölvurnar einungis búnar einföldu ritvinnsluforriti. Nú er er ég líka elstur á N4 en þegar ég var að byrja í frétta- mennsku voru f lestir vinnufélagarnir eldri, svo maður tali nú ekki um viðmæl- endur. Ég þarf oft að leita til samstarfs- fólksins með ýmislegt og það leitar líka til mín, sækir meðal annars í reynsluna. Þessi gagnkvæma virðing gerir vinnuna skemmtilega og lífið um leið innihalds- ríkt. Verkefnalistinn næstu mánuði er ansi langur. Því get ég ekki verið annað en bjartsýnn á þessum tímamótum – en líka þakklátur og það er ég klárlega.“ gun@frettabladid.is Nýárspistill varð að hefð Fréttamannsferill Karls Eskils Pálssonar spannar nú þrjá áratugi. Þegar hann hófst voru faxtækin þarfaþing. Hér lítur Karl í baksýnisspegilinn og líka fram á veginn. „Fjölmiðlun er afskaplega lifandi starf,“ segir Karl Eskil. MYND/AUÐUNN NÍELSSON Þá voru ekki komin nein jarð- göng meðfram ströndinni til austurs og ég þurfti því að keyra um Skagafjörðinn og Öxnadals- heiði til Akureyrar. Það voru eitthvað um 200 kílómetrar. Merkisatburðir 1880 Gengið er á ís frá Reykjavík upp á Kjalarnes eftir hörð og langvarandi frost. 1883 Fyrstu kirkjuhljóm- leikar á Íslandi eru haldnir í Dómkirkjunni í Reykjavík. 1887 Bríet Bjarnhéðins- dóttir flytur fyrst kvenna á Íslandi opinberan fyrirlestur í Góðtemplarahúsinu í Reykja- vík, sem nefnist Fyrirlestur um hagi og rjettindi kvenna. 1922 Ríkin Rússland, Hvíta- Rússland, Úkraína og Suður- Kákasus mynda Sovétríkin. 1954 Flugfreyjufélag Íslands er stofnað. 1993 Vatíkanið og Ísrael taka upp stjórnmálasamband. 1995 Mínus 27,2°C, mælist í Altnaharra í Skosku hálöndunum og er lægsti hiti sem mælst hefur í Bretlandi. 2002 Kröftugt eldgos hefst á Strombólí við Ítalíu. 2006 67 ára gömul kona eignast tvíbura á sjúkrahúsi í Barcelona. 2007 Íslenska sjónvarpsþáttaröðin Pressa hefur göngu sína á Stöð 2. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og unnusti, Birgir Svan Símonarson skáld og kennari, lést á líknardeild Landspítalans á jóladag 25. desember. Útför fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 8. janúar klukkan 15. Símon Örn Birgisson Steinar Svan Birgisson Guðný Jónsdóttir tengdabörn, barnabörn og aðrir aðstandendur. 3 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.