Fréttablaðið - 30.12.2020, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 30.12.2020, Blaðsíða 43
Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Fólk sem komið er um fimm-tugt fer að missa vöðva-massa, oft vegna hreyfingar- leysis. Þetta er hægt að forðast með styrktaræfingum, til dæmis með lóðum. Hreyfingarleysi getur leitt til lakari lífsgæða á efri árum. Með því að stunda styrktaræfingar er hægt að byggja upp bæði vöðva- styrk og jafnvægi sem er afar mikilvægt. Það er aldrei of seint að byrja. Jafnvel þótt fólk sé orðið mjög fullorðið eru þessar æfingar til bóta. Styrktaræfingarnar gera líkamann sterkari og fólk verður færara að hugsa um alls kyns hluti í daglegu lífi. Þá hafa æfingarnar jákvæð áhrif á geðheilsu og geta stuðlað að þyngdartapi. Fimm kostir styrktarþjálfunar: n Skilar jákvæðum árangri óháð aldri n Eykur og viðheldur vöðva- massa n Veitir betra jafnvægi og stöðugleika n Styrkir bein n Bætir heilsuna Allt er betra en ekkert þegar kemur að hreyfingu. Fullorðið fólk og aldraðir ættu að hreyfa sig í að minnsta kosti tvo og hálfan tíma á viku. Slík hreyfing ætti að innihalda styrktaræfingar til að vinna gegn lífsstílssjúkdómum. Gott er að hreyfa sig undir stjórn fagaðila til að ná sem bestum árangri. Forðastu kyrrsetu og reyndu að nota stiga frekar en lyftu. Árangursrík þjálfun snýst ekki um að æfa í marga tíma heldur fá mikið út úr þeim tíma sem notaður er. Allir eldri en 65 ára ættu að styrkja sérstaklega fætur, mjaðm- ir, kvið, bak, bringu, herðar og handleggi. Þá er gott að styrkja grindarbotninn um leið. Þá skal ávallt byrja með léttri upphitun í 10-15 mínútur. Reyndu að gera æfingar sem þér finnast skemmti- legar. Fólk finnur mjög f ljótt mun á sér þegar það byrjar að stunda styrktaræfingar. Með hjálp þjálfara getur fólk aukið þyngdina á lóðunum eftir því sem það nær betri tökum á æfingunum. Er ekki kominn tími til að setja sér markmið á nýju ári? Styrktaræfingar fyrir góða heilsu Ef fólk stundar einhvers konar styrktaræfingar að minnsta kosti tvisvar í viku eykur það til muna betri heilsu á efri árum. Bæði ungir og þeir sem eldri eru ættu að stunda líkamsrækt þar sem styrking er í forgrunni. Styrktaræfingar eru mjög góðar fyrir líkamann og ekkert síður fyrir hina andlegu heilsu. Fólk sem stundar æfingar bætir lífsgæðin. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Hamingja og heilsa er sextán vikna námskeið sem hjálpar þátttakendum að byggja upp sjálfstraust, læra inn á sjálfa sig, búa til heilbrigðar venjur, forð- ast allar öfgar og finna jafnvægi í lífinu segir Edda Dögg Ingibergs- dóttir, eigandi Hope, sem hefur haldið námskeiðið í nokkur ár með góðum árangri. „Mér fannst vanta námskeið sem einblínir á að breyta hugarfari og vinna í hugs- unarhætti og andlegri heilsu fyrst, þar sem það er það mikilvægasta sem að við höfum. Ef okkur líður vel og við erum ánægð með okkur, þá er það allt sem skiptir máli en ekki talan á vigtinni,“ segir Edda Dögg. Hún segist hafa stofnað Hope því henni fannst vanta betri lausn til að hjálpa fólki til að breyta um lífsstíl og halda í þann árangur sem það nær til frambúðar. „Námskeiðið mitt hefur þróast á löngum tíma en mér finnst allt of mikil áhersla á líkamlegan árangur í þjóðfélaginu. Það skiptir ekki máli hvernig að þú lítur út ef að þú ert ekki með sjálfs- traust og ánægð(ur) með sjálfan þig. Ég lét þessa hugsun leiða mig áfram í að búa til námskeið sem einblínir á að líða vel með sjálfan sig, vera með sjálfstraust, gott og jákvætt sjálfsálit og almennt heilbrigði varðandi hugsunarhátt, mataræði, og hreyfingu. Hjá mér lærir fólk að vera sinn helsti stuðningsmaður en ekki gagnrýnandi.“ Nýtt efni vikulega Námskeiðið er byggt upp í vikum þar sem þátttakendur fá nýtt fræðsluefni og verkefni í hverri viku sem eru unnin inni í Hope kerfinu. „Verkefnin leiða þig í gegnum ferlið og hjálpa þér að læra hvað hentar þér og þínum lífsstíl. Ásamt verkefnunum heldur þú dag- bók, stundar hreyfingu og mætir í vídeó viðtöl til mín þar sem við förum yfir andlega vellíðan. Það verður nefnilega engin varanleg breyting nema maður byrji fyrst á því að vinna með andlegu hliðina og hugarfarsbreytingu. Ég fer einn- ig yfir og svara öllum verkefnum og dagbókarfærslum. Auk þess fer ég yfir heilbrigt mataræði og þátt- takendur fá æfingaplön sem eru sérsniðin að þeirra þörfum.“ Hún leggur ríka áherslu á að lykillinn að námskeiðinu sé að hún og þátttakendur vinni þetta saman. „Ég fer með fólkinu í gegnum allt ferlið og við erum í mjög miklum samskiptum bæði skriflega og í vídeó viðtölum, í gegnum allt ferlið.“ Andlega hliðin mikilvæg Edda Dögg er með Bachelor of Science gráðu í hreyfifræði (e. kinesiology) með áherslu á þjálfun frá San Franisco State University og meistaragráðu í sálfræði, með áherslu á íþrótta- og heilsusálfræði frá Capella Unviersity. „Ég valdi sálfræði því ég veit af reynslu hvað það er mikilvægt að hafa andlegu hliðina í lagi til þess að ná árangri og að hún er alveg jafn mikilvæg og líkamleg heilsa þegar það er verið að gera lífsstílsbreytingu.“ Hún segir námskeiðið hannað fyrir einstaklinga sem vantar hjálp og stuðning við að auka heilbrigði, andlega vellíðan, gleði og jafnvægi í lífi sínu, ásamt því að breyta yfir í heilbrigðan lífsstíl bæði fyrir líkama og sál. Nýtt námskeið byrjar 4. janúar. Hægt að skrá sig og fá nánari upp- lýsingar á www.hope.is. Andleg heilsa í forgangi Á námskeiðinu Hamingja og heilsa læra þátttakendur meðal annars að byggja upp sjálfstraust, búa til heilbrigðar venjur og finna jafnvægi í lífinu. Næsta námskeið hefst 4. janúar næstkomandi. Edda Dögg Ingibergsdóttir, eigandi Hope, sem hefur haldið námskeiðið Hamingja og heilsa í nokkur ár með góðum árangri. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Á námskeiðinu Hamingja og heilsa lærir þú: n Að auka sjálfstraust n Jákvæðan hugsunarhátt n Að finna gleðina n Að skapa þér venjur n Betri svefn n Hollt mataræði n Markmiðasetningu n Sjálfsstyrkingu n Hreyfingu Ummæli frá viðskiptavinum: n Í Hope er gott að vera. Þú ert hvetjandi, kemur með góðar lausnir og heldur vel utan um mann. Hjá þér hef ég fengið ótal verkfæri til að auðvelda mér skrefin í átt að betri líðan og hef lært að hugsa öðruvísi um sjálfa mig. n Persónulegu fundirnir með þér eru áhrifamiklir n Þessi tími hefur verið einn sá lærdómsríkasti þegar kemur að líkamlegri og andlegri heilsu, breyttu hugarfari og aukinni vellíðan. n Mér hefur aldrei liðið jafn vel andlega og líkamlega. 16 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U RHEILSA info@arcticstar.is - www.arcticstar.is Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618 MARINE COLLAGEN FYRIR HÚÐ, HÁR OG NEGLUR Kollagen er eitt helsta uppbyggingarprótein líkamans. Kollagen er í öllum liðum, liðamótum, vöðvum, sinum og beinum mannslíkamans og: • Seinkar öldrun húðarinnar • Dregur úr sýnilegum hrukkum og fínum línum í húðinni • Eykur rakastig og stinnleika húðarinnar • Lagfæra háræðaslitasvæði • Stuðlar að upptöku kalsíums og kalsíumuppbótar. Vítamín C: • Stuðlar að eðlilegri myndun kollagens fyrir starfsemi brjósks, beina og húðar • Stuðlar að eðlilegri starfsemi tauga- og ónæmiskerfisins • Stuðlar að því að verja frumur fyrir oxunarálagi og draga úr þreytu • Stuðlar að endurnýjun afoxaðs forms E-vítamíns og aukinni upptöku járns. ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA, Framleiðandi er Arctic Star ehf. Allar nánari upplýsingar fast á www.arcticstar.is Arctic Star Marine Collagen Varan fæst í flestum apótekum, heilsubúðum, Hagkaupum, og Fjarðakaup. Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618 info@arcticstar.is - www.arcticstar.is SÆBJÚGNAHYLKI +D3 FYRIR HEILSUNA Arctic Star sæbjúgnahylki+D3 innihalda yfir fimmtíu tegundir af næringarefnum og eru þekkt fyrir: • Hátt próteininnihald og lágt fituinnihald • Að minnka verki í liðum og liðamótum • Að byggja upp brjósk og draga úr tíðni liðskemmda • Að bæta ónæmiskerfið • Að auka blóðflæði • Að auka orku líkamans, stuðla að myndun húð- próteins og insúlíns • Stuðla að eðlilegri upptöku kalsíums og fosfórs • Stuðla að viðhaldi beina, tanna og vöðva • Stuðla að bættri starfsemi ónæmis- kerfisins • D-vítamín hefur hlutverki að gegna við frumuskiptingu. ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA, Framleiðandi er Arctic Star ehf. Allar nánari upplýsingar fast á www.arcticstar.is Arctic Star Sæbjúgnahylki +D3 Varan fæst í flestum apótekum, heilsubúðum, Hagkaupum, og Fjarðakaup.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.