Fréttablaðið - 30.12.2020, Blaðsíða 42
Nadia hefur í mörg horn að líta en hún er löggiltur fast-eignasali hjá Domusnova
fasteignasölu og stundar krefjandi
nám í innanhússhönnun við IED í
Mílanó. Nadia gætir þess að huga
vel að hreyfingu og mataræði
og liður í því er að drekka Kefir
daglega. Um er að ræða drykk
sem á sér aldagamla sögu en kefir
er upprunninn einhvers staðar í
Kákasusfjöllunum. Enginn veit
nákvæmlega hvernig eða hvenær
hann varð til en Kefir er nú einn
eftirsóttasti jógúrtdrykkurinn
vegna þess hve öflugur hann er og
stútfullur af vinveittum gerlum.
Kefir inniheldur svokallaða góð-
gerla, eða probiotics, sem bæta
meltinguna og almenna vellíðan
með því að koma þarmaflórunni
í lag. Þess má geta að orðið „kefir“
er dregið af tyrknesa orðinu „keif“
sem þýðir „góð líðan“.
Ristilinn í lag
Í haust tók Nadia þátt í rannsókn
á vegum Mjólku, sem framleiðir
Kefir hér á landi, til að kanna
áhrif drykkjarins á heilsuna.
„Það kom þannig til að ég sá
færslu á Facebook um að kefir
væri kominn í sölu hjá Mjólku. Ég
varð ekkert smá spennt, þar sem
ég reyndi fyrir mörgum árum að
komast yfir kefir en það var bara
alltof f lókið bæði að nálgast hann
og svo mikil vinna við að halda
honum lifandi að ég gafst upp á
hugmyndinni,“ segir Nadia glað-
lega. Hún hafði lesið sér til um
þennan drykk og komist að því að
kefir styrkir ónæmiskerfið, enda
inniheldur drykkurinn gnótt
efnasambanda og næringarefna
sem ef la ónæmiskerfið. Góðgerl-
arnir í kefir eru bæði fjölbreyttir
og margir.
„Einn þeirra er alveg einstakur
en hann nefnist Lactobacillus
kefiri og vinnur gegn mörgum
skaðlegum bakteríum. Má þar
helst nefna E. Coli. Þessi góðgerla-
hópur kemur jafnvægi á ónæmi-
kerfið og er bókstaflega sagður
skúra burtu vondum bakteríum,“
nefnir Nadia. Annað sem er sér-
stakt við kefirinn eru fjölsykrur
sem nefnast kefiran. Rannsóknir
hafa sýnt fram á að þær vinni gegn
candida sveppasýkingum, sem
margir eru að kljást við.
„Ég hef glímt við það lengi að
Betri líðan með Kefir
Eftir að Nadia Katrín Banine greindist með brjóstakrabbamein fyrir tíu árum ákvað hún að setja
heilsuna í fyrsta sætið. Hún drekkur Kefir reglulega til að halda þarmaflórunni í góðu lagi.
Nadia Katrín tók
þátt í rannsókn
á vegum Mjólku
til að kanna áhrif
Kefirs á melting-
una. Hún fann
mikinn mun á
meltingunni eftir
að hafa drukkið
Kefir daglega í
þrjár vikur. Hún
segir að ristillinn
sé miklu virkari.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
KEFIR er auðugur af lifandi góð-
gerlum sem fjölmargar rannsóknir
hafa sýnt að bæta meltinguna og
viðhalda heilbrigðri þarmaflóru.
GRUNNUR AÐ GÓÐRI HEILSU
mjolka.is
Fylgdu okkur á
vera með frekar latan ristil og þarf
að taka Acidophilus reglulega til
að halda honum gangandi. Ég hef
oft heyrt það sagt að dauðinn byrji
í ristlinum og gífurlega mikið af
alls kyns heilsubresti byrji þar og
ef ristillinn nær ekki að hreinsa
sig þá síga eiturefnin í gegnum
þarmaveggina og út í blóðrásina.
Síðan ég fékk brjóstakrabbamein
fyrir nákvæmlega 10 árum hef ég
reynt að vera meðvituð þessa hluti
og hafa ristilinn í lagi. Þegar mér
bauðst að taka þátt í þessari rann-
sókn hjá Mjólku þurfti ég ekki að
hugsa mig um tvisvar og ákvað að
slá til,“ segir Nadia, sem er ánægð
með árangurinn.
En hvernig fór rannsóknin fram
og hvernig gekk hún?
„Rannsóknin fólst í því að ég
drakk einn Kefir, oftast fyrripart
dags eða í kringum hádegið, í 21
dag og skráði svo nákvæmlega hjá
mér hvort ég fyndi einhverja breyt-
ingu á líðan og orku. Ég get fullyrt
að ristillinn er miklu virkari eftir
að ég fór að drekka Kefir reglulega.
Ég finn greinilega að því fylgir
minni þemba og slen og meiri
orka. Ég get alveg hiklaust mælt
með þessari vöru,“ segir Nadia,
en Kefir er bæði þægilegur sem
millimál eða létt máltíð og hefur
ferskt bragð.
Óvænt áhrif
Var eitthvað sem kom þér á óvart
varðandi Kefirinn? „Það kom
mér skemmtilega á óvart að eitt
sinn drakk ég flösku af Kefir
sem var útrunnin samkvæmt
síðasta söludegi og ég fann að þá
var meira bragð af gerlinum og
fann líka hvernig það ólgaði allt í
maganum. Þannig að ég gæti trúað
að virknin væri meiri í gerlinum
eftir því hversu þroskaður hann
er,“ segir Nadia. Eftir þessa þriggja
vikna rannsókn hefur hún haldið
áfram að drekka Kefir. „Ég kaupi
hann í hverfisbúðinni minni og
mun halda því áfram,“ segir Nadia
Katrín að lokum.
Kefir frá Mjólku:
n Kefir fæst í fimm mismunandi
tegundum.
n Kefir frá Mjólku inniheldur
engan viðbættan hvítan sykur.
n Hreinn Kefir er ketovænn og
inniheldur eingöngu mjólkur-
sykur.
n Jarðarberja og bláberja Kefir
inniheldur aðeins ávaxtasykur-
inn úr náttúrulegum bragð-
efnum.
n Kaffi og blönduð ber innihalda,
auk náttúrulegu bragðefnanna,
(kaldbruggað kaffi / berjakons-
entrat) ögn af agavesírópi, sem
gerir þá drykki aðeins sætari en
hina þrjá.
Ég get alveg hik-
laust mælt með
þessari vöru. Ristillinn
er miklu virkari eftir að
ég fór að drekka kefir
reglulega. Ég finn greini-
lega að því fylgir minni
þemba og slen.
KYNNINGARBLAÐ 15 M I ÐV I KU DAG U R 3 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 HEILSA