Fréttablaðið - 30.12.2020, Blaðsíða 51

Fréttablaðið - 30.12.2020, Blaðsíða 51
Ég er 44 ára, móðir og maki. Ég er eigandi Fitfood ehf. ásamt Bjarna, unnusta mínum, og saman rekum við Bætiefnabúlluna.Ég er Iron Man og Ultra runner og elska að setja mér krefjandi markmið. Ég setti mér það markmið í desember að hlaupa vegalengdina frá heimili mínu á Álftanesi alla leið heim til Ólafsfjarðar, sem eru 414 km. Það gengur mjög vel og mun ég klára það með stæl þann 31. desember,“ segir Telma. Fann ástríðuna 21 árs Telma segir að þrátt fyrir að hún hafi stundað íþróttir á sínum yngri árum þá hafi hún glímt við marg- þættan heilsubrest þegar hún varð eldri. „Ég er uppalin á Ólafsfirði og var alltaf mjög iðin, en skíðaganga og fótbolti voru mínar helstu íþróttagreinar. Um 18 ára aldur tók líf mitt miklum breytingum og ég hætti nánast alveg að hreyfa mig. Með því fylgdi löngun í ruslmat og á stuttum tíma var mér orðið sama um mína heilsu, þunglynd og þreytt á líkama og sál.“ Þremur árum síðar kviknaði heilsuræktaráhugi Telmu og þá varð ekki aftur snúið. „Ég flutti suður 21 árs, keypti mér æfinga- kort í HRESS og byrjaði hjá einkaþjálfara. Heilsan yfirtók hug minn þegar ég fann hvað mér fór að líða vel. Áhugi minn á heilsu varð ótæmandi og það kom ekkert annað til greina en að ég myndi starfa við það að hjálpa öðrum, og nú 20 árum seinna er ég enn að því. Þvílík forréttindi að fá að starfa við það sem ég elska að gera, að huga vel að eigin heilsu og hjálpa öðrum um leið.“ Við erum meira en fitu- og vöðva- fruma og það er ekki til sú leið að bæta heilsuna án fyrir- hafnar. Hjördís Erna Þorgeirsdóttir hjordiserna@frettabladid.is Við hjálpum fólki að breyta mataræði og taka úr því fíknivalda og síðan heila undirliggjandi tilfinningaleg og andleg vandamál sem matarfíknin hefur valdið! Nú í byrjun nýs árs bjóðum við uppá þrjá kosti: 1. 5 vikna Nýtt líf námskeiðið fyrir byrjendur og endurkomufólk sem hefst 4.1.20. 2. 10 daga meðferðarnámskeið með Dr. Toverud í meðferð sem tekur á huglæga, tilfinningalega og andlega þætti vandans, sem hefst 24.1.20. 3. Möguleika á að taka þessi námskeið saman. Endilega kíkið á síðuna okkar og skoðið dagskrána! Matarfíkn er líffræðilegur sjúkdómur sem veldur tilfinningalegu, huglægu og andlegu ójafnvægi FRÁ MATARFÍKNIMIÐSTÖÐINNI: Esther Helga Guðmundsdóttir MSc. og Dr. Guttorm Toverud MFM MIÐSTÖÐIN, Síðumúla 33, 108, Reykjavík esther@mfm.is • 699 2676 • www.matarfikn.is Velgengni í lífinu er langhlaup Telma Matthíasdóttir hefur þjálfað og unnið sem heilsuráðgjafi í fyrirtæki sínu Fitubrennsla.is í 20 ár. Hún elskar að setja sér markmið og lumar á fjölmörgum ráðum til að bæta heilsuna. Telma Matthías- dóttir segir uppskeruna af heilsurækt ótvíræða og ómetanlega. Hvers vegna skiptir máli að huga að heilsunni? „Þú ert þess virði. Það er bara til eitt eintak af þér. Farðu vel með það. Ef við missum heilsuna þá verður allt miklu erfiðara, hér tala ég af eigin reynslu. Á einu auga- bragði hrundi heilsan mín og í dag þarf ég að bera nokkra sjúkdóma, fara í lyfjagjöf á 8 vikna fresti og taka inn lyf. Ég þarf að vanda mig alla daga til að halda öllum einkennum niðri. Heilsan snýst um heildina. Líkamann allan, líf- færin okkar og geðheilsuna. Það er aldrei of oft sagt að holdafar er ekki heilsufar. Við erum meira en fitu- og vöðvafruma og það er ekki til sú leið að bæta heilsuna án fyrirhafnar. Öll erum við vanaföst og það kostar vinnu að bregða út af vananum. En öll vinnan verður vel þess virði. Stattu með sjálfri þér og leggðu mikla áherslu á það að það sem hentar þér er ekki allra og öfugt. Fáðu faglega aðstoð ef þú vilt bæta þína heilsu. Góðir hlutir gerast hægt, en það sem þú upp- skerð er ómetanlegt.“ Lumarðu á ráðum sem gætu nýst fólki sem er áhugasamt um að bæta heilsuna? „Já, og ég mæli með því að þú klippir þetta út úr blaðinu og festir á ísskápinn þinn! n Drekktu Vökvaðu líkama þinn með hreinu, íslensku vatni beint úr krananum. Líkami okkar er í kringum 60% vatn og það er nauðsynlegt til að frum- urnar geti starfað eðlilega. Við þurfum ca. 2 l á dag til að bæta upp það sem líkaminn losar sig við daglega. n Sofðu Farðu í rúmið um kl. 22 og náðu svefni á milli kl. 22 og 02:00 því á þessum tíma fáum við mestu næringuna sem við þurfum úr svefninum. Sofðu í ca. 8 tíma, reyndu að hafa algjört myrkur í herberginu og loftið svalt. Engan skjátíma 60 mín. fyrir svefn. n Nærðu þig Borðaðu einhvern hreinan mat á hverjum degi og minnkaðu unninn mat á móti. Það þarf að hafa pláss fyrir matinn sem nærir okkur, næringu sem líkaminn notar til að byggja sig upp og styrkja sig, ónæmiskerfið, vöðvana, húðina, líffærin og ÞIG! n Hreyfðu þig Að vera á hreyf- ingu veitir vellíðan, léttir lund og losar stress. Finndu það sem þér finnst skemmtilegt. Það þarf ekki að vera flókið, langt og erfitt. Þol og styrkur til skiptis 15-30-60 mín. á dag. n Samvera Njóttu með fjölskyldu og vinum. Umvefðu þig fólki sem þér líður vel með fólki sem leyfir þér að vera eins og þú ert, hvetur þig áfram og hrósar þér. Fólki sem hefur áhuga á að hlusta og er til staðar fyrir þig. n Tímastjórnun Settu þig í fyrsta sæti og lágmarkaðu tíma við sjónvarp, í símanum og við tölvuna. n Hlæja Hlátursköst eru ein besta næring sem ég upplifi og eitt það heilbrigðasta og skemmti- legasta, sagt er að hláturinn lengi lífið! n Gráta Allar tilfinningar eiga rétt á sér og við verðum að losa um þær. Það á engin að læsa van- líðan inn í eigin sál og bera alla ævi. Losaðu! n Þú átt allt gott skilið Settu þér markmið og láttu drauma þína rætast. Ekki gefast upp því vel- gengni í lífinu er langhlaup.“ Telma hvetur áhugasama til að fylgjast með henni á Instagram. „Á Instagram-reikningnum mínum, Fitubrennsla, getur þú fylgst með mínu heilsubrölti og mitt markmið er að hvetja þig til að gera eitthvað eitt á dag fyrir þína heilsu. Heilsan er dýrmæt.“ Súkkulaðibaka Telmu 1 msk. hörfræ + 2,5 msk. vatn 40 g kókosolía 30 g Erýtrýtól strásæta 30 g hnetusmjör 1 tsk. vanilludropar 95 g möndlumjöl 1/4 tsk. matarsódi 1/4 tsk. salt 2 stk. Crisp Milk Chocolate Atkins súkkulaði 3-4 jarðarber Hitið ofninn í 175°C og smyrjið lítið 6” form Byrjið á því að blanda 1 msk. af hörfræjum + 2,5 msk. vatni og hrærið saman, látið standa í 5 mín. Setjið kókosolíu, hnetusmjör og strásætu í skál eða blandara og hrærið saman. Bætið við hörfræjahlaupinu og vanilludropunum. Að lokum þurrefnunum. Saxið súkkulaðið og skerið jarðarber í bita Blandið varlega saman við deigið. Pressið niður í form Bakið í 22-24 mín. Borið fram með ís eða rjóma, Salty Caramel sósu frá Callowfit og berjum. 24 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U RHEILSA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.