Fréttablaðið - 30.12.2020, Side 51
Ég er 44 ára, móðir og maki. Ég er eigandi Fitfood ehf. ásamt Bjarna, unnusta
mínum, og saman rekum við
Bætiefnabúlluna.Ég er Iron Man
og Ultra runner og elska að setja
mér krefjandi markmið. Ég setti
mér það markmið í desember að
hlaupa vegalengdina frá heimili
mínu á Álftanesi alla leið heim til
Ólafsfjarðar, sem eru 414 km. Það
gengur mjög vel og mun ég klára
það með stæl þann 31. desember,“
segir Telma.
Fann ástríðuna 21 árs
Telma segir að þrátt fyrir að hún
hafi stundað íþróttir á sínum yngri
árum þá hafi hún glímt við marg-
þættan heilsubrest þegar hún varð
eldri. „Ég er uppalin á Ólafsfirði og
var alltaf mjög iðin, en skíðaganga
og fótbolti voru mínar helstu
íþróttagreinar. Um 18 ára aldur tók
líf mitt miklum breytingum og ég
hætti nánast alveg að hreyfa mig.
Með því fylgdi löngun í ruslmat
og á stuttum tíma var mér orðið
sama um mína heilsu, þunglynd og
þreytt á líkama og sál.“
Þremur árum síðar kviknaði
heilsuræktaráhugi Telmu og þá
varð ekki aftur snúið. „Ég flutti
suður 21 árs, keypti mér æfinga-
kort í HRESS og byrjaði hjá
einkaþjálfara. Heilsan yfirtók hug
minn þegar ég fann hvað mér fór
að líða vel. Áhugi minn á heilsu
varð ótæmandi og það kom ekkert
annað til greina en að ég myndi
starfa við það að hjálpa öðrum, og
nú 20 árum seinna er ég enn að því.
Þvílík forréttindi að fá að starfa við
það sem ég elska að gera, að huga
vel að eigin heilsu og hjálpa öðrum
um leið.“
Við erum
meira en
fitu- og
vöðva-
fruma og
það er ekki
til sú leið
að bæta
heilsuna
án fyrir-
hafnar.
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@frettabladid.is
Við hjálpum fólki að breyta mataræði og taka úr því fíknivalda og síðan heila undirliggjandi
tilfinningaleg og andleg vandamál sem matarfíknin hefur valdið!
Nú í byrjun nýs árs bjóðum við uppá þrjá kosti:
1. 5 vikna Nýtt líf námskeiðið fyrir byrjendur og endurkomufólk sem hefst 4.1.20.
2. 10 daga meðferðarnámskeið með Dr. Toverud í meðferð sem tekur á huglæga,
tilfinningalega og andlega þætti vandans, sem hefst 24.1.20.
3. Möguleika á að taka þessi námskeið saman.
Endilega kíkið á síðuna okkar og skoðið dagskrána!
Matarfíkn er líffræðilegur
sjúkdómur sem veldur
tilfinningalegu, huglægu
og andlegu ójafnvægi
FRÁ MATARFÍKNIMIÐSTÖÐINNI:
Esther Helga Guðmundsdóttir MSc. og Dr. Guttorm Toverud
MFM MIÐSTÖÐIN, Síðumúla 33, 108, Reykjavík
esther@mfm.is • 699 2676 • www.matarfikn.is
Velgengni í lífinu er langhlaup
Telma Matthíasdóttir hefur þjálfað og unnið sem heilsuráðgjafi í fyrirtæki sínu Fitubrennsla.is í
20 ár. Hún elskar að setja sér markmið og lumar á fjölmörgum ráðum til að bæta heilsuna.
Telma Matthías-
dóttir segir
uppskeruna
af heilsurækt
ótvíræða og
ómetanlega.
Hvers vegna skiptir máli að huga
að heilsunni?
„Þú ert þess virði. Það er bara til
eitt eintak af þér. Farðu vel með
það. Ef við missum heilsuna þá
verður allt miklu erfiðara, hér tala
ég af eigin reynslu. Á einu auga-
bragði hrundi heilsan mín og í dag
þarf ég að bera nokkra sjúkdóma,
fara í lyfjagjöf á 8 vikna fresti
og taka inn lyf. Ég þarf að vanda
mig alla daga til að halda öllum
einkennum niðri. Heilsan snýst
um heildina. Líkamann allan, líf-
færin okkar og geðheilsuna. Það
er aldrei of oft sagt að holdafar er
ekki heilsufar. Við erum meira
en fitu- og vöðvafruma og það er
ekki til sú leið að bæta heilsuna án
fyrirhafnar. Öll erum við vanaföst
og það kostar vinnu að bregða út
af vananum. En öll vinnan verður
vel þess virði. Stattu með sjálfri
þér og leggðu mikla áherslu á það
að það sem hentar þér er ekki allra
og öfugt. Fáðu faglega aðstoð ef þú
vilt bæta þína heilsu. Góðir hlutir
gerast hægt, en það sem þú upp-
skerð er ómetanlegt.“
Lumarðu á ráðum sem gætu nýst
fólki sem er áhugasamt um að bæta
heilsuna?
„Já, og ég mæli með því að þú
klippir þetta út úr blaðinu og festir
á ísskápinn þinn!
n Drekktu Vökvaðu líkama þinn
með hreinu, íslensku vatni beint
úr krananum. Líkami okkar
er í kringum 60% vatn og það
er nauðsynlegt til að frum-
urnar geti starfað eðlilega. Við
þurfum ca. 2 l á dag til að bæta
upp það sem líkaminn losar sig
við daglega.
n Sofðu Farðu í rúmið um kl. 22
og náðu svefni á milli kl. 22 og
02:00 því á þessum tíma fáum
við mestu næringuna sem við
þurfum úr svefninum. Sofðu
í ca. 8 tíma, reyndu að hafa
algjört myrkur í herberginu og
loftið svalt. Engan skjátíma 60
mín. fyrir svefn.
n Nærðu þig Borðaðu einhvern
hreinan mat á hverjum degi
og minnkaðu unninn mat á
móti. Það þarf að hafa pláss
fyrir matinn sem nærir okkur,
næringu sem líkaminn notar
til að byggja sig upp og styrkja
sig, ónæmiskerfið, vöðvana,
húðina, líffærin og ÞIG!
n Hreyfðu þig Að vera á hreyf-
ingu veitir vellíðan, léttir lund
og losar stress. Finndu það
sem þér finnst skemmtilegt.
Það þarf ekki að vera flókið,
langt og erfitt. Þol og styrkur til
skiptis 15-30-60 mín. á dag.
n Samvera Njóttu með fjölskyldu
og vinum. Umvefðu þig fólki
sem þér líður vel með fólki sem
leyfir þér að vera eins og þú
ert, hvetur þig áfram og hrósar
þér. Fólki sem hefur áhuga á að
hlusta og er til staðar fyrir þig.
n Tímastjórnun Settu þig í fyrsta
sæti og lágmarkaðu tíma við
sjónvarp, í símanum og við
tölvuna.
n Hlæja Hlátursköst eru ein besta
næring sem ég upplifi og eitt
það heilbrigðasta og skemmti-
legasta, sagt er að hláturinn
lengi lífið!
n Gráta Allar tilfinningar eiga rétt
á sér og við verðum að losa um
þær. Það á engin að læsa van-
líðan inn í eigin sál og bera alla
ævi. Losaðu!
n Þú átt allt gott skilið Settu þér
markmið og láttu drauma þína
rætast. Ekki gefast upp því vel-
gengni í lífinu er langhlaup.“
Telma hvetur áhugasama til að
fylgjast með henni á Instagram.
„Á Instagram-reikningnum
mínum, Fitubrennsla, getur þú
fylgst með mínu heilsubrölti og
mitt markmið er að hvetja þig til
að gera eitthvað eitt á dag fyrir
þína heilsu. Heilsan er dýrmæt.“
Súkkulaðibaka Telmu
1 msk. hörfræ + 2,5 msk. vatn
40 g kókosolía
30 g Erýtrýtól strásæta
30 g hnetusmjör
1 tsk. vanilludropar
95 g möndlumjöl
1/4 tsk. matarsódi
1/4 tsk. salt
2 stk. Crisp Milk Chocolate
Atkins súkkulaði
3-4 jarðarber
Hitið ofninn í 175°C og smyrjið
lítið 6” form
Byrjið á því að blanda 1 msk.
af hörfræjum + 2,5 msk. vatni og
hrærið saman, látið standa í 5
mín.
Setjið kókosolíu, hnetusmjör
og strásætu í skál eða blandara og
hrærið saman.
Bætið við hörfræjahlaupinu og
vanilludropunum.
Að lokum þurrefnunum.
Saxið súkkulaðið og skerið
jarðarber í bita
Blandið varlega saman við
deigið.
Pressið niður í form
Bakið í 22-24 mín.
Borið fram með ís eða rjóma,
Salty Caramel sósu frá Callowfit
og berjum.
24 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U RHEILSA