Fréttablaðið - 30.12.2020, Blaðsíða 38
Meðferð með OcuSci augn-maska og OCuSOFT froðu/hreinsiklútum
er áhrifarík við hvarmabólgu,
VISMED gervitár/-hlaup virka
vel við augnþurrki og ULTRA
MACULAR™ augnvítamín byggir
á nýjustu NIH (National Institute
of Health, USA) rannsókn á þessu
sviði, AREDS 2, sem sýndi fram á
að samsetning andoxunarefna og
fjölvítamína í ULTRA MACULAR™
minnki líkur um allt að 25% á að
augnbotnahrörnun þróist yfir á
lokastig.
Hvarmabólga
Hvarmabólga er líklega algengasti
augnsjúkdómurinn á Íslandi.
Erfitt er að meta hlutfall fólks með
hvarmabólgu, þar sem sjúkdómur-
inn veldur oft vægum einkennum.
Á hinn bóginn getur hann valdið
einkennum sem eru afar óþægileg
og hafa mikil áhrif á daglegt líf.
Hildur Sigursteinsdóttir,
markaðsstjóri heildverslunar-
innar MAGNUS ehf., segir lítið
vitað um ástæður sjúkdómsins,
en að talið sé að um ofnæmi fyrir
bakteríum sem við erum öll með á
hvörmunum sé að ræða. Hvarma-
bólga getur meðal annars valdið
augnloksþrymlum (chalazion)
sem í börnum kemur oft fram sem
vogris (stye). Hvort tveggja eru
stíflaðir fitukirtlar sem blása út og
valda oft miklum óþægindum.
„Meðferð við hvarmabólgu er
oftast ekki f lókin en hún krefst
töluverðrar natni og reglusemi.
Fyrsta meðferð og oft sú sem ber
mestan árangur er að meðhöndla
augun með heitum OcuSci augn-
maska og hreinsa eftir á með bakt-
eríudrepandi blaut klútum eða
froðu frá OCuSOFT. Við slæmri
hvarmabólgu má nota OUST
Demodex froðu/blautklúta, sem
innihalda terunnaolíu, en sé hún
ekki eins alvarleg er mælt með Lid
Scrub PLUS blautklútum eða Plat-
inum froðu frá OCuSOFT. Beita
þarf meðferðinni að minnsta kosti
einu sinni á dag,“ segir Hildur.
„Slík meðferð er yfirleitt áhrifa-
rík sé henni beitt rétt. En það þarf
þolinmæði því árangurinn kemur
ekki fyrr en eftir tvær til þrjár
vikur.“
Einkenni hvarmabólgu:
n Stíflaðir fitukirtlar í augnlokum
n Sviði, „súrnar í augum“
n Flasa í augnhárum og stírur
n Óskýr sjón
n Aðskotahlutartilfinning, pirr-
ingur
n Smá kláði
n Roði í hvörmum og augum
n Óþægindi í augum eftir tölvu-
vinnu, sjónvarpsáhorf eða
lestur
n Bjúgur á hvörmum
Oft er erfitt að greina
á milli einkenna
hvarmabólgu og þurra
augna en sviði er meira
áberandi í hvarma-
bólgu en aðskota-
hlutartilfinning í
þurrum augum. Hildur
segir að það beri að
leggja áherslu á að þurr
augu og hvarmabólga
fylgjast oft að og þarf því oft að
meðhöndla hvort tveggja.
„Hvarmabólga er yfirleitt
fremur góðkynja sjúkdómur en
getur þó í undantekningartil-
vikum valdið augnskaða og jafnvel
varanlegu sjóntapi. Í þeim til-
vikum verður erting frá hvörmum
svo mikil á auganu að slímhimna
augans vex inn á hornhimnu, eða
að hornhimna augans þynnist og
skemmist,“ útskýrir hún.
„Þar sem ofnæmi kemur inn
í tilurð sjúkdómsins á
einhverju stigi, sennilega gegn
bakteríum sem við erum öll með á
hvörmunum, er gagnslítið að bera
sýklalyf á þá. Þessar bakteríur
eru alls staðar í umhverfi okkar
og setjast aftur á hvarmana þegar
notkun sýklalyfsins lýkur. Flestar
gerðir hvarmabólgu eru því ekki
vegna sýkingar og hvarmabólga er
því jafnan ekki smitandi.“
Sum lyf geta stuðlað að hvarma-
bólgu, svo sem sum krabbameins-
lyf og húðþrymlalyfið Roaccutane.
Hvarmabólga er einnig afar algeng
hjá fólki með ýmsa húðsjúkdóma,
svo sem flösuexem og rósroða.
Þurr augu algengt vandamál
Þurr augu eru afar algengt
vandamál. Hildur segir líklegt að
um 15.000 Íslendingar þjáist af
þurrum augum.
„Þurr augu eru sjúkdómur
þar sem augun framleiða ekki
nægilega mikið af tárum eða
tárin eru ekki nægi-
lega vel samsett og
gufa upp of f ljótt.
Algengasta ein-
kenni þurra augna er
aðskotahlutartil-
finning. Það vekur
sérstaka athygli
að eitt megin-
einkenni
þurra augna er aukið táraflæði og
lýsir fólk því oft svo að þegar það
fer út í íslenska rokið fari tárin
að renna niður vangana. Þessi
tár myndast vegna þess að augað
verður auðertanlegt og viðkvæmt
fyrir til dæmis roki og hita. Þessi
tár myndast í stóru tárakirtlunum
fyrir ofan augun og innihalda
meira vatn en venjuleg tár,“ segir
Hildur.
Hún útskýrir að í mörgum
tilvikum sé um að ræða öldrunar-
áhrif tárakirtlanna þó að yngra
fólk geti líka upplifað þurr augu.
Talið er að um 3/4 fólks 65 ára
og eldra fái þurr augu. Þau eru
algengari hjá konum, sérstak-
lega hjá barnshafandi konum eða
eftir tíðahvörf. Líklega eru um
3.000 Íslendingar með þurr augu
í tengslum við svokallaðan Sjög-
ren’s sjúkdóm og/eða gigtarsjúk-
dóma og aðra sjálfsofnæmissjúk-
dóma og 90% þeirra eru konur.
Fólk með ofnæmi er útsettara fyrir
því að fá einkenni þurra augna auk
þess sem ýmislegt utanaðkomandi
getur valdið eða viðhaldið þurrum
augum, til dæmis ýmis lyf, snerti-
linsur og tölvunotkun að sögn
Hildar.
Oftast er ekki hægt að lækna
þurr augu en unnt er að með-
höndla einkennin. Þekking
og fjöldi meðferðarleiða hefur
aukist. Yfirleitt er byrjað á að nota
gervitár og gervitárahlaup eins
og VISMED sem fást án lyfseðils
í apótekum. VISMED gervitár og
-hlaup innihalda engin rotvarnar-
efni og eru til í dropaglasi og einn-
ig í litlum skammtahylkjum sem
má loka á milli notkunar. Gervi-
tárahlaup er fyrst og fremst notað
fyrir svefn, en það dugir lengur en
venjuleg gervitár. Í VISMED vör-
unum er hýalúron sýra sem meðal
annars eykur endingu þeirra í
augunum. Það er talið að sumar
fitusýrur, þar á meðal Omega-3 til
inntöku, geti dregið úr einkennum
þurra augna.
Helstu einkenni þurra augna:
n Táraflæði
n Óskýr sjón
n Aðskotahlutartilfinning, pirr-
ingur
n Smá kláði
n Sviði
n Óþægindi í augum eftir tölvu-
vinnu, sjónvarpsáhorf eða
lestur
n Roði í augum
Vörn gegn augnbotna-
hrörnun
ULTRA MACULAR™ augnvíta-
mínið hægir á framgangi augn-
botnahrörnunar og er ætlað þeim
sem hafa greinst með sjúkdóminn
og sumum sem eru í fjölskyldum
þar sem sjúkdómurinn er ætt-
gengur. ULTRA MACULAR™ er
eina augn vítamínið á markaðnum
hérlendis sem inniheldur öll nauð-
synleg fjölvítamín og steinefni
sem fólk þarf á að halda til við-
bótar við sérhannaða samsetningu
þeirra efna sem eru fyrirbyggjandi
varðandi framgöngu augnbotna-
hrörnunar.
Að sögn Hildar, er samsetning
ULTRA MACULAR™ byggð á niður-
stöðum nýjustu rannsókna á þessu
sviði sem nefnast AREDS 2.
„AREDS 2 braut blað í fyrir-
byggjandi meðferðarmöguleikum
þar sem sérstaklega hefur verið lagt
upp úr réttum hlutföllum andox-
unarefna og vítamína til að ná sem
bestum árangri,“ segir Hildur. „Allir
sem þjást af augnbotnahrörnun
ættu að íhuga að taka inn ULTRA
MACULAR™ til að fyrirbyggja
frekari þróun augnbotnahrörnunar
og þar með sjónskerðingu. Einnig er
mikilvægt að fara í reglulegt eftirlit
hjá augnlækni samhliða töku augn-
vítamínsins.“
Aðeins þarf að taka inn tvö
hylki af ULTRA MACULAR™ á dag,
ULTRA MACULAR™ inniheldur
meðal annars lítið sink til að hlífa
meltingarveginum og aðalbláber
sem talin eru styðja við nætursjón
auk fullkominnar samsetningar
fjölvítamína og steinefna í sam-
ræmi við ráðlagða dagskammta
(RDS).
Hildur segir marga eiga erfitt
með að gera greinarmun á þeim
augn vítamínum sem í boði eru
á markaðnum í dag. „Það er
mikilvægt að hafa í huga að ULTRA
MACULAR™ augnvítamínið er
byggt á vísindalegum rannsóknum
frá hinni virtu stofnun National
Institute of Health í Bandaríkj-
unum,“ segir hún. „Aldursbundin
augnbotnahrörnun er algengasta
orsök blindu og sjónskerðingar hjá
fólki yfir sextugu á Vesturlöndum
og því skiptir miklu máli að velja
rétt þegar kemur að augnvítam-
ínum. Fyrrnefnd rannsókn, AREDS
2, sýnir einmitt fram á að sú sér-
staka samsetning andoxunarefna
sem hér um ræðir minnki líkur um
allt að 25%, á að augnbotnahrörnun
þróist yfir á lokastig.“
Vörurnar fást í
öllum helstu apó-
tekum.
Hvarmabólgumeðferð
1. Setjið OcuSci augnmaskann í
örbylgjuofn á hæstu stillingu í
20-30 sekúndur.
2. Leggið augnmaskann á lokuð
augun í 3-5 mínútur á dag.
3. Drepa þarf bakteríurnar að
þessu loknu, t.d. með því að
þrífa hvarmana með OcuSoft
klútum eða OcuSoft froðu.
Meðferð með OcuSci augnmaska og hreinsun með bakteríudrepandi OCu-
SOFT froðu eða hreinsiklútum er yfirleitt áhrifarík við hvarmabólgu.
Áhrifaríkar meðferðir sem
gagnast augnvandamálum
Augnsjúkdóma er mikilvægt að meðhöndla rétt. Augnmaski og hreinsiklútar gera gæfumuninn
gegn hvarmabólgu og gervitár virka vel gegn augnþurrki en um 15.000 Íslendingar þjást af
þurrum augum. Þá sýna rannsóknir að augnvítamín geta hægt mjög á augnbotnahrörnun.
KYNNINGARBLAÐ 11 M I ÐV I KU DAG U R 3 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 HEILSA