Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.12.2020, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 30.12.2020, Qupperneq 38
Meðferð með OcuSci augn-maska og OCuSOFT froðu/hreinsiklútum er áhrifarík við hvarmabólgu, VISMED gervitár/-hlaup virka vel við augnþurrki og ULTRA MACULAR™ augnvítamín byggir á nýjustu NIH (National Institute of Health, USA) rannsókn á þessu sviði, AREDS 2, sem sýndi fram á að samsetning andoxunarefna og fjölvítamína í ULTRA MACULAR™ minnki líkur um allt að 25% á að augnbotnahrörnun þróist yfir á lokastig. Hvarmabólga Hvarmabólga er líklega algengasti augnsjúkdómurinn á Íslandi. Erfitt er að meta hlutfall fólks með hvarmabólgu, þar sem sjúkdómur- inn veldur oft vægum einkennum. Á hinn bóginn getur hann valdið einkennum sem eru afar óþægileg og hafa mikil áhrif á daglegt líf. Hildur Sigursteinsdóttir, markaðsstjóri heildverslunar- innar MAGNUS ehf., segir lítið vitað um ástæður sjúkdómsins, en að talið sé að um ofnæmi fyrir bakteríum sem við erum öll með á hvörmunum sé að ræða. Hvarma- bólga getur meðal annars valdið augnloksþrymlum (chalazion) sem í börnum kemur oft fram sem vogris (stye). Hvort tveggja eru stíflaðir fitukirtlar sem blása út og valda oft miklum óþægindum. „Meðferð við hvarmabólgu er oftast ekki f lókin en hún krefst töluverðrar natni og reglusemi. Fyrsta meðferð og oft sú sem ber mestan árangur er að meðhöndla augun með heitum OcuSci augn- maska og hreinsa eftir á með bakt- eríudrepandi blaut klútum eða froðu frá OCuSOFT. Við slæmri hvarmabólgu má nota OUST Demodex froðu/blautklúta, sem innihalda terunnaolíu, en sé hún ekki eins alvarleg er mælt með Lid Scrub PLUS blautklútum eða Plat- inum froðu frá OCuSOFT. Beita þarf meðferðinni að minnsta kosti einu sinni á dag,“ segir Hildur. „Slík meðferð er yfirleitt áhrifa- rík sé henni beitt rétt. En það þarf þolinmæði því árangurinn kemur ekki fyrr en eftir tvær til þrjár vikur.“ Einkenni hvarmabólgu: n Stíflaðir fitukirtlar í augnlokum n Sviði, „súrnar í augum“ n Flasa í augnhárum og stírur n Óskýr sjón n Aðskotahlutartilfinning, pirr- ingur n Smá kláði n Roði í hvörmum og augum n Óþægindi í augum eftir tölvu- vinnu, sjónvarpsáhorf eða lestur n Bjúgur á hvörmum Oft er erfitt að greina á milli einkenna hvarmabólgu og þurra augna en sviði er meira áberandi í hvarma- bólgu en aðskota- hlutartilfinning í þurrum augum. Hildur segir að það beri að leggja áherslu á að þurr augu og hvarmabólga fylgjast oft að og þarf því oft að meðhöndla hvort tveggja. „Hvarmabólga er yfirleitt fremur góðkynja sjúkdómur en getur þó í undantekningartil- vikum valdið augnskaða og jafnvel varanlegu sjóntapi. Í þeim til- vikum verður erting frá hvörmum svo mikil á auganu að slímhimna augans vex inn á hornhimnu, eða að hornhimna augans þynnist og skemmist,“ útskýrir hún. „Þar sem ofnæmi kemur inn í tilurð sjúkdómsins á einhverju stigi, sennilega gegn bakteríum sem við erum öll með á hvörmunum, er gagnslítið að bera sýklalyf á þá. Þessar bakteríur eru alls staðar í umhverfi okkar og setjast aftur á hvarmana þegar notkun sýklalyfsins lýkur. Flestar gerðir hvarmabólgu eru því ekki vegna sýkingar og hvarmabólga er því jafnan ekki smitandi.“ Sum lyf geta stuðlað að hvarma- bólgu, svo sem sum krabbameins- lyf og húðþrymlalyfið Roaccutane. Hvarmabólga er einnig afar algeng hjá fólki með ýmsa húðsjúkdóma, svo sem flösuexem og rósroða. Þurr augu algengt vandamál Þurr augu eru afar algengt vandamál. Hildur segir líklegt að um 15.000 Íslendingar þjáist af þurrum augum. „Þurr augu eru sjúkdómur þar sem augun framleiða ekki nægilega mikið af tárum eða tárin eru ekki nægi- lega vel samsett og gufa upp of f ljótt. Algengasta ein- kenni þurra augna er aðskotahlutartil- finning. Það vekur sérstaka athygli að eitt megin- einkenni þurra augna er aukið táraflæði og lýsir fólk því oft svo að þegar það fer út í íslenska rokið fari tárin að renna niður vangana. Þessi tár myndast vegna þess að augað verður auðertanlegt og viðkvæmt fyrir til dæmis roki og hita. Þessi tár myndast í stóru tárakirtlunum fyrir ofan augun og innihalda meira vatn en venjuleg tár,“ segir Hildur. Hún útskýrir að í mörgum tilvikum sé um að ræða öldrunar- áhrif tárakirtlanna þó að yngra fólk geti líka upplifað þurr augu. Talið er að um 3/4 fólks 65 ára og eldra fái þurr augu. Þau eru algengari hjá konum, sérstak- lega hjá barnshafandi konum eða eftir tíðahvörf. Líklega eru um 3.000 Íslendingar með þurr augu í tengslum við svokallaðan Sjög- ren’s sjúkdóm og/eða gigtarsjúk- dóma og aðra sjálfsofnæmissjúk- dóma og 90% þeirra eru konur. Fólk með ofnæmi er útsettara fyrir því að fá einkenni þurra augna auk þess sem ýmislegt utanaðkomandi getur valdið eða viðhaldið þurrum augum, til dæmis ýmis lyf, snerti- linsur og tölvunotkun að sögn Hildar. Oftast er ekki hægt að lækna þurr augu en unnt er að með- höndla einkennin. Þekking og fjöldi meðferðarleiða hefur aukist. Yfirleitt er byrjað á að nota gervitár og gervitárahlaup eins og VISMED sem fást án lyfseðils í apótekum. VISMED gervitár og -hlaup innihalda engin rotvarnar- efni og eru til í dropaglasi og einn- ig í litlum skammtahylkjum sem má loka á milli notkunar. Gervi- tárahlaup er fyrst og fremst notað fyrir svefn, en það dugir lengur en venjuleg gervitár. Í VISMED vör- unum er hýalúron sýra sem meðal annars eykur endingu þeirra í augunum. Það er talið að sumar fitusýrur, þar á meðal Omega-3 til inntöku, geti dregið úr einkennum þurra augna. Helstu einkenni þurra augna: n Táraflæði n Óskýr sjón n Aðskotahlutartilfinning, pirr- ingur n Smá kláði n Sviði n Óþægindi í augum eftir tölvu- vinnu, sjónvarpsáhorf eða lestur n Roði í augum Vörn gegn augnbotna- hrörnun ULTRA MACULAR™ augnvíta- mínið hægir á framgangi augn- botnahrörnunar og er ætlað þeim sem hafa greinst með sjúkdóminn og sumum sem eru í fjölskyldum þar sem sjúkdómurinn er ætt- gengur. ULTRA MACULAR™ er eina augn vítamínið á markaðnum hérlendis sem inniheldur öll nauð- synleg fjölvítamín og steinefni sem fólk þarf á að halda til við- bótar við sérhannaða samsetningu þeirra efna sem eru fyrirbyggjandi varðandi framgöngu augnbotna- hrörnunar. Að sögn Hildar, er samsetning ULTRA MACULAR™ byggð á niður- stöðum nýjustu rannsókna á þessu sviði sem nefnast AREDS 2. „AREDS 2 braut blað í fyrir- byggjandi meðferðarmöguleikum þar sem sérstaklega hefur verið lagt upp úr réttum hlutföllum andox- unarefna og vítamína til að ná sem bestum árangri,“ segir Hildur. „Allir sem þjást af augnbotnahrörnun ættu að íhuga að taka inn ULTRA MACULAR™ til að fyrirbyggja frekari þróun augnbotnahrörnunar og þar með sjónskerðingu. Einnig er mikilvægt að fara í reglulegt eftirlit hjá augnlækni samhliða töku augn- vítamínsins.“ Aðeins þarf að taka inn tvö hylki af ULTRA MACULAR™ á dag, ULTRA MACULAR™ inniheldur meðal annars lítið sink til að hlífa meltingarveginum og aðalbláber sem talin eru styðja við nætursjón auk fullkominnar samsetningar fjölvítamína og steinefna í sam- ræmi við ráðlagða dagskammta (RDS). Hildur segir marga eiga erfitt með að gera greinarmun á þeim augn vítamínum sem í boði eru á markaðnum í dag. „Það er mikilvægt að hafa í huga að ULTRA MACULAR™ augnvítamínið er byggt á vísindalegum rannsóknum frá hinni virtu stofnun National Institute of Health í Bandaríkj- unum,“ segir hún. „Aldursbundin augnbotnahrörnun er algengasta orsök blindu og sjónskerðingar hjá fólki yfir sextugu á Vesturlöndum og því skiptir miklu máli að velja rétt þegar kemur að augnvítam- ínum. Fyrrnefnd rannsókn, AREDS 2, sýnir einmitt fram á að sú sér- staka samsetning andoxunarefna sem hér um ræðir minnki líkur um allt að 25%, á að augnbotnahrörnun þróist yfir á lokastig.“ Vörurnar fást í öllum helstu apó- tekum. Hvarmabólgumeðferð 1. Setjið OcuSci augnmaskann í örbylgjuofn á hæstu stillingu í 20-30 sekúndur. 2. Leggið augnmaskann á lokuð augun í 3-5 mínútur á dag. 3. Drepa þarf bakteríurnar að þessu loknu, t.d. með því að þrífa hvarmana með OcuSoft klútum eða OcuSoft froðu. Meðferð með OcuSci augnmaska og hreinsun með bakteríudrepandi OCu- SOFT froðu eða hreinsiklútum er yfirleitt áhrifarík við hvarmabólgu. Áhrifaríkar meðferðir sem gagnast augnvandamálum Augnsjúkdóma er mikilvægt að meðhöndla rétt. Augnmaski og hreinsiklútar gera gæfumuninn gegn hvarmabólgu og gervitár virka vel gegn augnþurrki en um 15.000 Íslendingar þjást af þurrum augum. Þá sýna rannsóknir að augnvítamín geta hægt mjög á augnbotnahrörnun. KYNNINGARBLAÐ 11 M I ÐV I KU DAG U R 3 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 HEILSA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.