Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR
Janúar
Náttúran lét vita af sér í árs-
byrjun og hringdi inn nýtt ár
með nokkrum stæðilegum
lægðum með tilheyrandi
óveðri. Veðurstofa Íslands
gaf út gular viðvaranir og
jafnvel appelsínugular svo
almenningur væri meðvit-
aður um hvenær og hvar búast
mætti við versta veðrinu. Því
vakti það reiði í samfélaginu
þegar fregnir bárust af fjöru-
tíu ferðamönnum sem voru
komnir í hrakninga á Lang-
jökli í ársbyrjun, eftir að
fyrirtækið Mountaineers of
Iceland virti veðurviðvaranir
að vettugi og hélt í vélsleða-
ferð í stormi. Kalla þurfti út
björgunarsveitir og tóku um
þrjú hundruð manns þátt í
björgunaraðgerðum. Hópur-
inn komst heilu og höldnu
aftur til byggða, en margir
voru andlega miður sín.
Háski og hættur
Stjórnmálin á árinu mótuðust
auðvitað eins og allt annað
af náttúruhamförum hvers
konar. Snjóflóð, skriður og
veirufaraldur settu svip sinn
á stjórnmálin rétt eins og allt
annað. En þetta var ekki að
sjá á stemningunni í íslensk-
um stjórnmálum í ársbyrjun.
Strax í janúar lá fyrir að kosið
yrði til forseta á árinu. Kom
30. DESEMBER 2020 DV
það þá fáum á óvart að Guðni
Th. Jóhannesson, forseti Ís-
lands, skyldi nota nýársávarp
sitt til þess að tilkynna að hann
hygðist gefa kost á sér til end-
urkjörs: „Því ræður auðna en
segja má tímabært og tilhlýði-
legt að lýsa því nú yfir að ég
hyggst gefa kost á mér til frek-
ari setu hér á Bessastöðum.“
Guðni hafði enda áður lýst því
yfir að hann myndi ekki láta
eitt kjörtímabil sér nægja.
Í baksýnisspeglinum er
margt merkilegt í nýárs ávarpi
forsetans: „Og við höfum
reynt sitthvað saman. Hér
hefur verið harðbýlt, sjósókn
hættusöm og á landi hefur
vá leynst víða, skriðuföll og
snjóflóð, jarðskjálftar og
jarðeldar, hvers kyns háski og
hættur. Nú búa flestir lands-
menn í borg og bæ, en þjóðar-
ímynd okkar hefur mótast
af náinni sambúð við nátt-
úruna og hennar mikla afl.
[...] Blessunarlega hafa ham-
farir af þessu tagi ekki dunið
yfir á nýrri öld. Varnargarðar
voru reistir, viðbúnaður auk-
inn víða. Og blessunarlega
hefur okkur jafnan tekist að
bregðast við áföllum, læra af
biturri reynslu. Í landi elds og
ísa varðar miklu að vera við
öllu búinn.
Aðeins örfáum dögum síðar
skall mikið snjóflóð á varnar-
garðana ofan við Flateyri, þó
með þeim afleiðingum að eitt
hús varð fyrir flóðinu þar
sem ung stúlka grófst undir.
„Átti ekki að geta gerst“
hermdu fyrirsagnir blað-
anna daginn eftir. Stúlkan
fannst heil á húfi eftir um 40
Guðni Th. Jóhannesson hlaut endurkjör á árinu sem einkenndist af baráttunni við kórónuveiruna alræmdu. MYND/SIGTRYGGUR ARI
Erla Dóra
Magnúsdóttir
erladora@dv.is
Heimir
Hannesson
heimir@dv.is ANNÁLL
Nú árið er liðið í aldanna skaut en seint
mun það renna úr minni. Árið sem ein-
kenndist af duttlungum náttúrunnar og
stærsta faraldri þúsaldarinnar.
Stjórnmálin á árinu
mótuðust auðvitað eins
og allt annað af náttúru-
hamförum hvers konar.