Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Blaðsíða 49
stóran slurk af fylgi Ingu
Sæland. Sósíalistaflokkurinn
fær til liðs við sig kanónu úr
verkalýðshreyfingunni sem
verður þeim mikilvægur liðs-
styrkur og hjálpar til við að
koma þeim inn á þing. Ég sé
það ganga eftir og munu þing-
menn Sósíalista vera áberandi
í pontunni á Alþingi á haust-
þingi. Inga Sæland í Flokki
fólksins er hávær. Hún kallar
og hrópar hér en hún fær ekki
þá athygli eða stuðning sem
hún gerir ráð fyrir. Hér reyn-
ist henni erfitt að sjá árangur
erfiðis síns. Flokkurinn fær
ekki hljómgrunn og Inga ör-
magnast.
Píratar munu mælast vel í
könnunum fyrir kosningar,
enda sækja þeir mikið fylgi
til unga fólksins. Hins vegar
hefur unga fólkið sögulega
verið latt við að mæta á kjör-
stað og kjósa. Ég sé þó breyt-
ingu þar á, ekki gífurlega en
þó svo nokkru munar. Unga
fólkið er betur upplýst í dag og
kjörsókn á aldrinum 18-29 ára
verður betri en undanfarna
þrjá áratugi.
Vinstri græn og Katrín Jak-
obsdóttir bíða afhroð í kosn-
ingunum. Ég sé þó tveggja
stafa tölu í framtíðinni en hún
er í lægra falli. Líklega rétt
rúmlega 10 prósent. Hjóna-
band Vinstri grænna og Sjálf-
stæðisflokksins lagðist illa í
kjósendur á vinstri vængnum,
sem finnst þeim ekki lengur
stætt að fylgja Katrínu. Katr-
ín þarf að verjast harðri gagn-
rýni langt fram eftir næsta
ári og sífellt kveður minna
að henni. Undir lok kjörtíma-
bilsins er ljóst að Katrín hefur
þurft að færa alvarlegar fórn-
ir til að halda ríkisstjórnar-
sambandinu lifandi, fórnir
sem hún sér eftir.
Svandís Svavarsdóttir þarf
að verjast harðri gagnrýni
í byrjun árs, svo harðri að
hún hefur ekki upplifað við-
líka áður. Mun það leggjast
verulega á hana andlega og
mun valda því að hún lætur
minna á sér kveða en þjóðin
ætti að búast við í heimsfar-
aldri. Vekur það enn meiri
gagnrýni. Ljós mun koma til
Svandísar og hún tekur góða
ákvörðun sem færir henni sátt
á erfiðum tímum.
Sjálfstæðisflokkurinn spilar
varnarleik í kosningunum og
mælist áfram stærsti flokk-
urinn á Íslandi, þó minnkar
fylgið lítið eitt sem torveldar
honum að mynda starfhæfan
meirihluta. Bjarni Benedikts-
son er áfram í broddi fylking-
ar og verður áberandi í eftir-
minnilegri kosningabaráttu
Sjálfstæðismanna þar sem
engu verður til sparað. Bjarni
mun flytja ræðu í aðdraganda
kosninganna þar sem hann
nær að kreista fram eitt ei-
lífðar smátár, en það mun
vera sérgrein hans í kosninga-
baráttu.
Ungir nýliðar munu reyna
að hrista upp í ásýnd Sjálf-
stæðisflokksins sem er orðin
þreytt. Jafnvel sveitt. Eða
bæði. Já bæði.
Brynjar Níelsson heldur
sínu striki. Orðrómur mun
ganga þess efnis að hann ætli
að segja skilið við þingstörf
en sá orðrómur reynist ekki á
rökum byggður. Hann verður
hins vegar ekki ráðherra,
fremur en að vanda.
Áslaug Arna Sigurbjörns-
dóttir og Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfadóttir verða
áfram í forystu flokksins, þó
mun kveða meira að Þórdísi.
Ég sé Áslaugu áfram reyna að
setja niður fótinn í málefnum
hælisleitenda við litlar vin-
sældir. Þarf hún að verjast
gagnrýni og ásökunum um
grimmd og mun það reynast
henni þungbært. Ég sé hana
taka sér gott sumarfrí þar
sem hún leitar sér sálfræðiað-
stoðar til að vinna úr reynsl-
unni.
Ég sé líka nokkra umræðu
skapast í aðdraganda kosninga
um kostnað sem Sjálfstæðis-
menn hafa varið í almanna-
tengsl og samskiptaráðgjöf.
Mun sú umræða skapa nokkra
tortryggni um trúverðugleika
flokksins og sannleiksgildi lof-
orða hans.
Samfylkingin bætir við
sig fylgi svo nokkru munar.
Hér kemur önnur sterk kona
fram sem öflugur leiðtogi
hjá Samfylkingu en það er
hagfræðingurinn Kristrún
Frostadóttir. Hennar reynsla
úr bankaheiminum er hennar
styrkur og mun hún vinna
öflugt starf fyrir íslensku
þjóðina þegar fram í sækir.
Hún býður sig fram í Reykja-
vík og breytir andrúmsloftinu
heldur betur. Hún fær góðan
hljómgrunn sem leiðtogi og
samviskusöm er hún og þess
vegna tengir þjóðin við hana.
Nokkur nýliðun verður í þing-
flokki Samfylkingar og sé ég
Ágúst Ólaf Ágústsson hverfa
á braut. Logi Einarsson vekur
athygli í kosningabaráttunni
fyrir að klæðast fatnaði með
lóðréttum röndum en hingað
til hafa rendurnar verið lárétt-
ar. Telja margir þetta vott um
afstöðu hans að leiða flokkinn
áfram með nýjum áherslum.
Logi saknar þess að gefa
sér tíma til þess að skapa og
teikna. Hann þreytist á þófinu
en gefst ekki upp.
Viðreisn bætir einnig við
sig og þakka margir Þorgerði
Katrínu Gunnarsdóttur fyrir
það enda er hún sterk, en einn-
ig hávær og skynsöm. Engar
öfgar eru henni að skapi og
hún lætur heldur betur í sér
heyra árið fram undan. Fylgi
Viðreisnar vex ekki eins hratt
og hún hefði viljað. Þorgerður
einblínir hér á heildina. Hún
er eins og sálugur faðir henn-
ar, sem stendur ávallt við hlið
hennar og hún veit það, með
hjarta sem slær í takt við fólk-
ið í landinu og ef hún ákveður
að ganga í takt við hjartslátt
þjóðarinnar þá fyrst nær hún
í gegn. Þorsteinn Víglunds-
son er á öðrum slóðum og það
hefur hefur veikt stöðu Við-
reisnar.
Bæði Samfylking og Píratar
reyna að fá Andrés Inga Jóns-
son, þingmann utan flokka, til
liðs við sig en það gengur ekki
eftir.
Að kosningum liðnum taka
við æsispennandi viðræður
um myndun meirihluta. Þar
sé ég framtíðina afar óskýra
og mun ráðast mikið af því
hvort minni flokkarnir geti
náð samstöðu gegn Sjálf-
stæðisflokknum. Þetta verða
langar og strangar þreifingar
þar sem ekkert er útséð fyrir-
fram. Ég sé þó að Bjarni
Benediktsson verður ekki
forsætisráðherra, jafnvel þó
Sjálfstæðisflokkur myndi
meirihluta. Það verður Katrín
Jakobsdóttir ekki heldur.
Borgarstjórn heldur áfram
að vekja athygli vegna illinda
og stórra mála. Áfram verður
tekist á um Borgarlínuna en
sú umræða fellur þó í skugg-
ann af stóru máli sem kemur
upp á vordögum sem er enn
eitt málið sem varðar framúr-
keyrslu í framkvæmdakostn-
aði borgarinnar. Ég sé Dag B.
Eggertsson segja af sér, ekki
vegna hneykslis eða þess hátt-
ar heldur vegna langvarandi
þreytu og heilsubrests. Dagur
vill ný verkefni og bjartari
daga. Nýr borgarstjóri verður
kona.
Heilbrigðiskerfið
Menn fara ekki kollsteypur
með heilbrigðiskerfið en há
framlög til heilbrigðiskerfisins
verða áberandi í kosningabar-
áttunni. Heilbrigðiskerfið, ný-
sköpun og loftslagsmál verða í
brennidepli. Árið fram undan
eru loftslagsmálin ekki lengur
jaðarmál flokkanna því hér
Alma Möller hverfur úr sviðsljósinu á árinu. MYND/ANTON BRINK
Nýr borgarstjóri
verður kona.
FÓKUS 49DV 30. DESEMBER 2020