Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Síða 49

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Síða 49
stóran slurk af fylgi Ingu Sæland. Sósíalistaflokkurinn fær til liðs við sig kanónu úr verkalýðshreyfingunni sem verður þeim mikilvægur liðs- styrkur og hjálpar til við að koma þeim inn á þing. Ég sé það ganga eftir og munu þing- menn Sósíalista vera áberandi í pontunni á Alþingi á haust- þingi. Inga Sæland í Flokki fólksins er hávær. Hún kallar og hrópar hér en hún fær ekki þá athygli eða stuðning sem hún gerir ráð fyrir. Hér reyn- ist henni erfitt að sjá árangur erfiðis síns. Flokkurinn fær ekki hljómgrunn og Inga ör- magnast. Píratar munu mælast vel í könnunum fyrir kosningar, enda sækja þeir mikið fylgi til unga fólksins. Hins vegar hefur unga fólkið sögulega verið latt við að mæta á kjör- stað og kjósa. Ég sé þó breyt- ingu þar á, ekki gífurlega en þó svo nokkru munar. Unga fólkið er betur upplýst í dag og kjörsókn á aldrinum 18-29 ára verður betri en undanfarna þrjá áratugi. Vinstri græn og Katrín Jak- obsdóttir bíða afhroð í kosn- ingunum. Ég sé þó tveggja stafa tölu í framtíðinni en hún er í lægra falli. Líklega rétt rúmlega 10 prósent. Hjóna- band Vinstri grænna og Sjálf- stæðisflokksins lagðist illa í kjósendur á vinstri vængnum, sem finnst þeim ekki lengur stætt að fylgja Katrínu. Katr- ín þarf að verjast harðri gagn- rýni langt fram eftir næsta ári og sífellt kveður minna að henni. Undir lok kjörtíma- bilsins er ljóst að Katrín hefur þurft að færa alvarlegar fórn- ir til að halda ríkisstjórnar- sambandinu lifandi, fórnir sem hún sér eftir. Svandís Svavarsdóttir þarf að verjast harðri gagnrýni í byrjun árs, svo harðri að hún hefur ekki upplifað við- líka áður. Mun það leggjast verulega á hana andlega og mun valda því að hún lætur minna á sér kveða en þjóðin ætti að búast við í heimsfar- aldri. Vekur það enn meiri gagnrýni. Ljós mun koma til Svandísar og hún tekur góða ákvörðun sem færir henni sátt á erfiðum tímum. Sjálfstæðisflokkurinn spilar varnarleik í kosningunum og mælist áfram stærsti flokk- urinn á Íslandi, þó minnkar fylgið lítið eitt sem torveldar honum að mynda starfhæfan meirihluta. Bjarni Benedikts- son er áfram í broddi fylking- ar og verður áberandi í eftir- minnilegri kosningabaráttu Sjálfstæðismanna þar sem engu verður til sparað. Bjarni mun flytja ræðu í aðdraganda kosninganna þar sem hann nær að kreista fram eitt ei- lífðar smátár, en það mun vera sérgrein hans í kosninga- baráttu. Ungir nýliðar munu reyna að hrista upp í ásýnd Sjálf- stæðisflokksins sem er orðin þreytt. Jafnvel sveitt. Eða bæði. Já bæði. Brynjar Níelsson heldur sínu striki. Orðrómur mun ganga þess efnis að hann ætli að segja skilið við þingstörf en sá orðrómur reynist ekki á rökum byggður. Hann verður hins vegar ekki ráðherra, fremur en að vanda. Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir verða áfram í forystu flokksins, þó mun kveða meira að Þórdísi. Ég sé Áslaugu áfram reyna að setja niður fótinn í málefnum hælisleitenda við litlar vin- sældir. Þarf hún að verjast gagnrýni og ásökunum um grimmd og mun það reynast henni þungbært. Ég sé hana taka sér gott sumarfrí þar sem hún leitar sér sálfræðiað- stoðar til að vinna úr reynsl- unni. Ég sé líka nokkra umræðu skapast í aðdraganda kosninga um kostnað sem Sjálfstæðis- menn hafa varið í almanna- tengsl og samskiptaráðgjöf. Mun sú umræða skapa nokkra tortryggni um trúverðugleika flokksins og sannleiksgildi lof- orða hans. Samfylkingin bætir við sig fylgi svo nokkru munar. Hér kemur önnur sterk kona fram sem öflugur leiðtogi hjá Samfylkingu en það er hagfræðingurinn Kristrún Frostadóttir. Hennar reynsla úr bankaheiminum er hennar styrkur og mun hún vinna öflugt starf fyrir íslensku þjóðina þegar fram í sækir. Hún býður sig fram í Reykja- vík og breytir andrúmsloftinu heldur betur. Hún fær góðan hljómgrunn sem leiðtogi og samviskusöm er hún og þess vegna tengir þjóðin við hana. Nokkur nýliðun verður í þing- flokki Samfylkingar og sé ég Ágúst Ólaf Ágústsson hverfa á braut. Logi Einarsson vekur athygli í kosningabaráttunni fyrir að klæðast fatnaði með lóðréttum röndum en hingað til hafa rendurnar verið lárétt- ar. Telja margir þetta vott um afstöðu hans að leiða flokkinn áfram með nýjum áherslum. Logi saknar þess að gefa sér tíma til þess að skapa og teikna. Hann þreytist á þófinu en gefst ekki upp. Viðreisn bætir einnig við sig og þakka margir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur fyrir það enda er hún sterk, en einn- ig hávær og skynsöm. Engar öfgar eru henni að skapi og hún lætur heldur betur í sér heyra árið fram undan. Fylgi Viðreisnar vex ekki eins hratt og hún hefði viljað. Þorgerður einblínir hér á heildina. Hún er eins og sálugur faðir henn- ar, sem stendur ávallt við hlið hennar og hún veit það, með hjarta sem slær í takt við fólk- ið í landinu og ef hún ákveður að ganga í takt við hjartslátt þjóðarinnar þá fyrst nær hún í gegn. Þorsteinn Víglunds- son er á öðrum slóðum og það hefur hefur veikt stöðu Við- reisnar. Bæði Samfylking og Píratar reyna að fá Andrés Inga Jóns- son, þingmann utan flokka, til liðs við sig en það gengur ekki eftir. Að kosningum liðnum taka við æsispennandi viðræður um myndun meirihluta. Þar sé ég framtíðina afar óskýra og mun ráðast mikið af því hvort minni flokkarnir geti náð samstöðu gegn Sjálf- stæðisflokknum. Þetta verða langar og strangar þreifingar þar sem ekkert er útséð fyrir- fram. Ég sé þó að Bjarni Benediktsson verður ekki forsætisráðherra, jafnvel þó Sjálfstæðisflokkur myndi meirihluta. Það verður Katrín Jakobsdóttir ekki heldur. Borgarstjórn heldur áfram að vekja athygli vegna illinda og stórra mála. Áfram verður tekist á um Borgarlínuna en sú umræða fellur þó í skugg- ann af stóru máli sem kemur upp á vordögum sem er enn eitt málið sem varðar framúr- keyrslu í framkvæmdakostn- aði borgarinnar. Ég sé Dag B. Eggertsson segja af sér, ekki vegna hneykslis eða þess hátt- ar heldur vegna langvarandi þreytu og heilsubrests. Dagur vill ný verkefni og bjartari daga. Nýr borgarstjóri verður kona. Heilbrigðiskerfið Menn fara ekki kollsteypur með heilbrigðiskerfið en há framlög til heilbrigðiskerfisins verða áberandi í kosningabar- áttunni. Heilbrigðiskerfið, ný- sköpun og loftslagsmál verða í brennidepli. Árið fram undan eru loftslagsmálin ekki lengur jaðarmál flokkanna því hér Alma Möller hverfur úr sviðsljósinu á árinu. MYND/ANTON BRINK Nýr borgarstjóri verður kona. FÓKUS 49DV 30. DESEMBER 2020

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.