Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Blaðsíða 50
eru allir flokkar með skýra sýn í þessum málaflokki. Hvernig samfélag viljum við, spyr þjóðin? Endursköpun er svarið. Breytingarnar koma í veg fyrir að allt detti aftur í sama farið og áður. Íslenska þjóðin er hér undir regnboga og það er eins og við skynjum allt með hjartanu núna. Heil- brigð samskipti og samvinna. Meiri meðvitund og góð mann- leg tenging. Ég sé nýsköpun fá aukið vægi í þjóðfélaginu, einkum í ljósi kreppunnar og atvinnuleysisins en margir stjórnmálamenn munu boða nýsköpun sem svarið við efna- hagserfiðleikum þjóðarinnar. Þríeykið hverfur eins skyndilega og það birtist af sviðinu, fara hér úr hvítu sloppunum og hér taka allt önnur verkefni við. Þjóðin er heil og þeirra framlag ekki þarft lengur. COVID-19 Bólusetning fer vel af stað þegar efnið er loksins komið til landsins. Þrátt fyrir óvissu varðandi hvenær hjarðónæmi verður náð sýnist mér að hægt sé að aflétta flestum takmörk- unum fyrir sumarið. Það er í júlí sem við erum endanlega laus úr þessari reynslu. Meiri- hluti þjóðarinnar kýs bólu- setningu. Engar hópsýkingar hér. Hér er birta og heilbrigði og styrkur. Það vekur athygli þegar manneskja sem hefur mikið haft sig frammi varðandi sótt- varnaaðgerðir stjórnvalda og hefur talað gegn þeim sem og bólusetningum, veikist af CO- VID-19. Mun sú reynsla valda því að viðkomandi skiptir snarlega um skoðun og verður áberandi í að hvetja alla til að fara í bólusetningu. Ég sé sláandi niðurstöður rannsókna um langtímaáhrif sjúkdómsins sem mun varpa nýju ljósi á eðli hans og af- leiðingar. Mikið ákall verður frá þjóðinni um aukin endur- hæfingarúrræði þar sem margir eru óvinnufærir eftir að veikjast af veirunni. And- legi þátturinn veldur ótta. Samherjamálið Samherjaskjölin hafa nú þeg- ar dregið töluverðan dilk á eft- ir sér og hér er sýnt að ballið er rétt að byrja. Árið 2021 sýnir átakanlegt uppgjör þeg- ar vorar og þá er talað um að grátt svæði verði annað hvort svart eða hvítt. Allt er uppi á yfirborðinu hér og menn bornir sökum. Heimsbyggðin fylgist með fréttaflutningi af málinu. Lærdómur er numinn. Helgi Seljan stendur uppi sem hetja – sterkari en nokkru sinni áður en andlegur styrk- ur er þverrandi. Stöðugt stríð tekur á. Helgi opnar sig á fyrri hluta árs og nýjar upplýsingar valda miklu fjaðrafoki. Lögregla og fangelsismál Úrbóta er að vænta í fangelsis- málum. Hér er meiri fagleg aðstoð við fanga. Aðgengi til dæmis að læknum, félagsráð- gjöfum, sálfræðingum, náms- og starfsráðgjöfum er meira og betra. Betrun er raunhæfur kostur en breytingar verða á helstu ráðamönnum í fangelsismál- um. Ég sé nokkur stór mál koma upp er varða lögregluna. Ólaf- ur Helgi Kjartansson verður ekki sóttur til saka fyrir það mál sem er til rannsóknar núna og mun stíga fram í eftirminnilegu viðtali þar sem hann varpar ljósi á stór vandamál innan lögreglunnar sem jaðra við spillingu. At- hygli mun vekja að lögreglu- mönnum er refsað fyrir að tjá sig um innri mál lögreglunnar í opinberri umræðu og mun stéttarfélag lögreglumanna sæta gagnrýni fyrir að verja ekki hag félagsmanna sinna. Þöggun og samtrygging verða til umræðu, en ég sé þó um- ræðuna fjara út án þess að hún leiði til breytinga. Því miður. Annað mál varðar fram- göngu lögreglumanna við handtöku þar sem deilt verður um hvort rétt hafi verið staðið að verki. Ofbeldi og sársauki Hér sé ég þrjú hræðileg og myrk atvik. Stúlkur tvær týnast á árinu á dularfullan hátt og leit mun standa yfir að þeim svo mánuðum skiptir þar til þær loksins finnast. Ekki sé ég hvar þær eru en þær fara yfir móðuna miklu af manna- völdum. Sorg mikil birtist hérna, já þjóðarsorg. Fjöl- skylduerjur í Reykjanesbæ verða til þess að maður á full- orðinsaldri er myrtur. Þá sé ég hér ungan mann í Reykja- vík haldið sofandi á spítala að berjast fyrir lífi sínu eftir slagsmál og hræðilegt ofbeldi. Undirheimar láta lítið uppi eftir þetta atvik en það kemur aldrei upp á yfirborðið hvað gerðist í raun og veru. Völvan horfir mæðulega á mig. Blanda af þreytu og uppgjöf. „Það er ljós og birta. Þetta verður ekki auðvelt ár en það verður gott í stóra sam- henginu. Miklar breytingar en það er ljós og það er vilji hjá fólkinu. Ef það getur látið af fávitaskapnum og séð kær- leikann. Það er engin bólu- setning við grimmd og sjálfs- elsku. Mundu það,” segir hún að lokum og bandar hendinni að hurðinni.n Völvan sér þrjú hræðileg og myrk atvik á árinu. MYND/EYÞÓR Enn eru ekki öll kurl komin til grafar í Samherjamálinu. MYNDIR/VALLI Það er engin bólusetning við grimmd og sjálfs- elsku. 50 FÓKUS 30. DESEMBER 2020 DV
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.