Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Síða 50
eru allir flokkar með skýra
sýn í þessum málaflokki.
Hvernig samfélag viljum
við, spyr þjóðin? Endursköpun
er svarið. Breytingarnar koma
í veg fyrir að allt detti aftur
í sama farið og áður. Íslenska
þjóðin er hér undir regnboga
og það er eins og við skynjum
allt með hjartanu núna. Heil-
brigð samskipti og samvinna.
Meiri meðvitund og góð mann-
leg tenging. Ég sé nýsköpun
fá aukið vægi í þjóðfélaginu,
einkum í ljósi kreppunnar og
atvinnuleysisins en margir
stjórnmálamenn munu boða
nýsköpun sem svarið við efna-
hagserfiðleikum þjóðarinnar.
Þríeykið hverfur eins
skyndilega og það birtist af
sviðinu, fara hér úr hvítu
sloppunum og hér taka allt
önnur verkefni við. Þjóðin er
heil og þeirra framlag ekki
þarft lengur.
COVID-19
Bólusetning fer vel af stað
þegar efnið er loksins komið
til landsins. Þrátt fyrir óvissu
varðandi hvenær hjarðónæmi
verður náð sýnist mér að hægt
sé að aflétta flestum takmörk-
unum fyrir sumarið. Það er í
júlí sem við erum endanlega
laus úr þessari reynslu. Meiri-
hluti þjóðarinnar kýs bólu-
setningu. Engar hópsýkingar
hér. Hér er birta og heilbrigði
og styrkur.
Það vekur athygli þegar
manneskja sem hefur mikið
haft sig frammi varðandi sótt-
varnaaðgerðir stjórnvalda og
hefur talað gegn þeim sem og
bólusetningum, veikist af CO-
VID-19. Mun sú reynsla valda
því að viðkomandi skiptir
snarlega um skoðun og verður
áberandi í að hvetja alla til að
fara í bólusetningu.
Ég sé sláandi niðurstöður
rannsókna um langtímaáhrif
sjúkdómsins sem mun varpa
nýju ljósi á eðli hans og af-
leiðingar. Mikið ákall verður
frá þjóðinni um aukin endur-
hæfingarúrræði þar sem
margir eru óvinnufærir eftir
að veikjast af veirunni. And-
legi þátturinn veldur ótta.
Samherjamálið
Samherjaskjölin hafa nú þeg-
ar dregið töluverðan dilk á eft-
ir sér og hér er sýnt að ballið
er rétt að byrja. Árið 2021
sýnir átakanlegt uppgjör þeg-
ar vorar og þá er talað um að
grátt svæði verði annað hvort
svart eða hvítt. Allt er uppi
á yfirborðinu hér og menn
bornir sökum. Heimsbyggðin
fylgist með fréttaflutningi af
málinu. Lærdómur er numinn.
Helgi Seljan stendur uppi
sem hetja – sterkari en nokkru
sinni áður en andlegur styrk-
ur er þverrandi. Stöðugt stríð
tekur á. Helgi opnar sig á fyrri
hluta árs og nýjar upplýsingar
valda miklu fjaðrafoki.
Lögregla og fangelsismál
Úrbóta er að vænta í fangelsis-
málum. Hér er meiri fagleg
aðstoð við fanga. Aðgengi til
dæmis að læknum, félagsráð-
gjöfum, sálfræðingum, náms-
og starfsráðgjöfum er meira
og betra.
Betrun er raunhæfur kostur
en breytingar verða á helstu
ráðamönnum í fangelsismál-
um.
Ég sé nokkur stór mál koma
upp er varða lögregluna. Ólaf-
ur Helgi Kjartansson verður
ekki sóttur til saka fyrir það
mál sem er til rannsóknar
núna og mun stíga fram í
eftirminnilegu viðtali þar
sem hann varpar ljósi á stór
vandamál innan lögreglunnar
sem jaðra við spillingu. At-
hygli mun vekja að lögreglu-
mönnum er refsað fyrir að tjá
sig um innri mál lögreglunnar
í opinberri umræðu og mun
stéttarfélag lögreglumanna
sæta gagnrýni fyrir að verja
ekki hag félagsmanna sinna.
Þöggun og samtrygging verða
til umræðu, en ég sé þó um-
ræðuna fjara út án þess að
hún leiði til breytinga. Því
miður.
Annað mál varðar fram-
göngu lögreglumanna við
handtöku þar sem deilt verður
um hvort rétt hafi verið staðið
að verki.
Ofbeldi og sársauki
Hér sé ég þrjú hræðileg og
myrk atvik. Stúlkur tvær
týnast á árinu á dularfullan
hátt og leit mun standa yfir að
þeim svo mánuðum skiptir þar
til þær loksins finnast. Ekki sé
ég hvar þær eru en þær fara
yfir móðuna miklu af manna-
völdum. Sorg mikil birtist
hérna, já þjóðarsorg. Fjöl-
skylduerjur í Reykjanesbæ
verða til þess að maður á full-
orðinsaldri er myrtur. Þá sé
ég hér ungan mann í Reykja-
vík haldið sofandi á spítala
að berjast fyrir lífi sínu eftir
slagsmál og hræðilegt ofbeldi.
Undirheimar láta lítið uppi
eftir þetta atvik en það kemur
aldrei upp á yfirborðið hvað
gerðist í raun og veru.
Völvan horfir mæðulega
á mig. Blanda af þreytu og
uppgjöf. „Það er ljós og birta.
Þetta verður ekki auðvelt ár
en það verður gott í stóra sam-
henginu. Miklar breytingar en
það er ljós og það er vilji hjá
fólkinu. Ef það getur látið af
fávitaskapnum og séð kær-
leikann. Það er engin bólu-
setning við grimmd og sjálfs-
elsku. Mundu það,” segir hún
að lokum og bandar hendinni
að hurðinni.n
Völvan sér þrjú hræðileg og myrk atvik á árinu. MYND/EYÞÓR
Enn eru ekki öll kurl komin til grafar í Samherjamálinu. MYNDIR/VALLI
Það er engin
bólusetning við
grimmd og sjálfs-
elsku.
50 FÓKUS 30. DESEMBER 2020 DV