Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Blaðsíða 4
17 ÞÚSUND KRÓNUR
SEKÚNDAN Í SKAUPINU
Áramótaskaupið er vinsælasti dagskrárliður Ríkissjónvarpsins
að frátöldum stórleikjum í boltaíþróttum. Auglýsingapláss eru af
skornum skammti og þau dýrustu og eftirsóttustu yfir allt árið.
Stórfyrirtæki sérframleiða metnaðarfullar auglýsingar fyrir tilefnið.
H öfundar Áramótaskaupsins í ár eru annálaðar grínhetjur,
þau Hugleikur Dagsson, Lóa
Hjálmtýsdóttir, Vala Kristín
Eiríksdóttir, Þorsteinn Guð
mundsson, Bragi Valdimar
Skúlason og Katla Margrét
Þorgeirsdóttir. Leikstjóri
er Reynir Lyngdal, líkt og á
síðasta ári, en Skaupið var að
mestu leyti samið í gegnum
fjarfundarbúnað.
Ekki er von á minni gleði en
síðustu ár en Áramótaskaupið
fær almennt í kringum 75%
áhorf samkvæmt upplýsingum
frá RÚV. Til samanburðar má
nefna að aðalkeppni Euro
vision er almennt með um
60% áhorf og mesta áhorf
ársins á RÚV í frumsýningu
var á handboltaleik Íslands og
Rússlands á EM 13. janúar.
Afsakið ekkert hlé
Tíu auglýsingapláss eru á und
an Áramótaskaupinu sem er 60
mínútur og sýnt án auglýsinga
hlés. Töluvert fleiri fyrirtæki
sækja um pláss í Skaupinu en
komast að. Sekúndan kostar 17
þúsund krónur, sem er sama
verð og í fyrra, en 10% álag
bætist á fyrir staðsetningu.
Einhver fyrirtæki eru þó með
afslátt tengdan árlegum við
skiptum. Ekki er óalgengt að
auglýsingar séu 3090 sekúnd
ur að lengd og kosti þá á bilinu
510.000 til 1.530.000 krónur
fyrir utan álag og afslátt.
Ríkisútvarpinu er ekki
heimilt að rjúfa dagskrár
liði fyrir kynningar eða aug
lýsingar nema í tilvikum þar
sem efni fer yfir 70 mínútur
en jafnvel þá er það ekki sjálf
gefið. Hámark má birta átta
mínútur af auglýsingum per
klukkustund. Svo að þrátt fyr
ir að freyðivínsþyrstir lands
menn vildu gjarnan fylla á
glös eða bregða sér á salerni
meðan á Skaupinu stendur er
ekki heimilt að brjóta það upp
með auglýsingahléi.
Sérframleiðsla
„Við erum með auglýsingar
Höfundar skaupsins í ár. MYND/AÐSEND
OnePortal er
vefgátt sem gerir
fyrirtækjum og sveitar-
félögum kleift að veita íbúum
þjónustu allan sólahringinn, allt
árið um kring. R frænir innri ferlar
eru tengdir við þjónustugátt fyrir íbúa
eða viðskiptavini, þar sem þeir
Gæða-
stjórnun á
stóran þátt í góðum
árangri fyrirtækja.
OneQuality er lausn sem
OneSystems bjóða heildarlausn
í skjalamálum fyrirtækja og sveitarfélaga
og þjónustu við viðskiptavini og íbúa þeirra
Hagkvæmar lausnir
með áherslu á rekjanleika,
auðveldan aðgang og gagnsæi.
OneRecords er öug lausn sem auðveldar
fyrirtækjum og sveitarfélögum halda utan
um mál sem eru í gangi á hverjum tíma.
Stjórnendur haf yrsýn yr gang mála
innan fyrirtækisins og notendur
geta á einfaldan máta sótt
lista yr þau mál sem þeir
bera ábyrgð á.
Vilt þú koma
skjalamálunum
í lag?
VELJUM
ÍSLENST - VELJUM
ÍS
LE
NS
KT
-V
EL
JUM
ÍSLENSKT -
Records
Mál - og skjalakerfi
Self-Service
www.one.is
OneSystems - sími: 660 8551 | fax: 588 1057 | www.one.is | one@one.is
www.one.is . one@one.is
sími: 660 8551 . fax: 588 1057
Þorbjörg
Marinósdóttir
tobba@dv.is
þarna sem eru með áramóta
kveðjur til viðskiptavina. Fólk
er meðvitað um að alþjóð er
að horfa og það eru ákveðnar
auglýsingar sem passa þarna
inn. Þú ert yfirleitt ekki að
selja vöru í þessu hólfi. Þarna
er verið að nota tækifærið til
að óska viðskiptavinum gleði
legs árs og byggja upp ímynd.
Þetta er hátíðlegt auglýsinga
hólf,“ segir Elín Helga Svein
björnsdóttir, framkvæmda
stjóri auglýsingastofunnar
Hvíta hússins.
Elín segir að það séu þrír
viðskiptavinir hjá Hvíta hús
inu sem séu með auglýsingar í
þessu eftirsóknarverða plássi
í ár og almennt sé þar mikill
metnaður. „Blöð og sjónvarp
hérlendis eru með miklu meiri
lestur og áhorf en í löndunum
í kringum okkur. Þetta sérís
lenska dæmi að setjast öll nið
ur og horfa saman á grínþátt
á gamlárskvöld er sterk hefð
sem felur í sér að þú nærð til
nánast allrar þjóðarinnar,“
segir Elín Helga. n
Hámark má
birta átta
mínútur af
auglýsingu
per klst.
4 FRÉTTIR 30. DESEMBER 2020 DV