Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Blaðsíða 36
SAUÐ UPP ÚR
Í NETHEIMUM
Þrátt fyrir að árið hafi litast af
samkomubanni, takmörkunum og
öðrum leiðindum gerðist margt
og mikið í heimi dægurmálanna.
Þetta eru málin sem stóðu upp úr
og voru á milli tannanna á fólki.
FAÐERNISMÁL KRISTÍNAR AVON
Í maí steig áhrifavaldurinn Kristín
Avon Gunnarsdóttir fram og sagði
að tími væri kominn til að blása á
sögusagnirnar um faðerni dóttur
hennar. Hún sagðist ekki geta farið
út í búð „út af þessu slúðri“ og að
sögusagnirnar hefðu haft mikil áhrif
á líðan hennar.
Í viðtalinu nafngreindi Kristín Avon
þá aðila sem hún sagði vera annars
vegar föður dóttur sinnar og hins
vegar kærasta sinn.
Eftir að hluteigendur höfðu sam
band fjarlægði DV bæði nöfnin og
slitnaði sama kvöld upp úr sam
bandi hennar og þáverandi kærasta
hennar.
Stuttu seinna steig Kristín fram
í hlaðvarpsþætti Fanneyjar Dóru
Veigarsdóttur, Seiglunni, og sagði
að það hefði verið erfitt fyrir alla
aðila þegar það kom í ljós að dóttir
hennar hefði verið rangfeðruð.
Kristín nefndi ekki hver blóðfaðir
dóttur sinnar væri í því viðtali en
hún leiðrétti að sá maður sem átti
að hafa verið faðir dóttur hennar
væri í raun ekki faðir hennar.
Síðan þá hefur Kristín verið dugleg
að leyfa fylgjendum sínum á Insta
gram að fylgjast með lífi sínu og
greindi frá því í ágúst hver barns
faðir hennar er. Foreldrarnir virðast
nálgast uppeldið í sátt og samlyndi
og óskum við þeim alls hins besta.
MEINTUR LAGASTULDUR ENDAÐI MEÐ AÐ VERA HREIN TILVILJUN
Heitar umræður sköpuðust á sam
félagsmiðlum um hvort lagið Enginn
eins og þú, eftir tónlistarmanninn
Auðun Lúthersson, sem er betur
þekktur sem Auður, væri stolið.
Lagið var gefið út í júlí 2019 og
hefur notið gífurlegra vinsælda. Í
apríl 2019 gaf hljómsveitin Leisure
út smáskífuna On My Mind og þóttu
lögin keimlík. Í kjölfarið var Auður
sakaður um lagastuld.
Pródúsent og meðhöfundur lagsins,
Arnar Ingi Ingason, sagði lagið ekki
vera stolið og líkindin vera algjöra
tilviljun. Máli sínu til stuðnings
birti hann demóútgáfu af laginu frá
febrúar 2019.
SVIÐIN JÖRÐ ÍSLENSKU KLÁMSTJÖRNUNNAR
Berglind Ýr Baldvinsdóttir og fleiri
ósáttir viðskiptavinir kvörtuðu
undan viðskiptaháttum erótíska
leikarans og fylgdarsveinsins
Stefans Octavians.
Stefan hefur getið sér gott nafn sem
erótískur leikari í hommaklámi und
anfarin ár, í byrjun árs færði hann út
kvíarnar og fór að selja hátískuvörur
á netinu. Hann byrjaði á því að selja
Calvin Klein undirföt á Snapchat og
stofnaði síðuna SkyFall2020.com.
Viðskiptavinir sem DV ræddi við
keyptu nærföt af Stefani á Snap
chat, en fengu þau aldrei afhent.
Berglind Ýr var í þungum þönkum
og sagðist sterklega gruna að
um „feik vörur væri að ræða“. DV
ræddi einnig við Beggu Bragadótt
ur sem keypti nærföt að andvirði
nítján þúsund krónur af Stefani.
Henni var lofað endurgreiðslu sem
hún fékk aldrei.
DV náði sambandi við Stefan sem
sagðist vera í uppnámi vegna um
ræðnanna um sig og verslun sína.
Hann þvertók fyrir að hafa svindlað
á viðskiptavinum sínum og sagði
vörurnar vera ekta. „Ég hef ekkert
að fela,“ sagði hann.
Hann sagði að vörurnar væru ekki
að skila sér vegna kórónaveirunnar
og kínversks nýárs. Hann sagði að
það væri „enginn bullshit leikur í
gangi“. Stefan endaði samtalið á
því að viðskiptavinir hans myndu fá
vörurnar eða endurgreitt, en miðað
við umræður á Beauty Tips síðan
þá, þar sem umræðurnar hófust
til að byrja með, þá hefur enginn
fengið vörur afhentar né endur
greiðslu.
Stuttu eftir að DV greindi fyrst
frá málinu var vefverslun Stefans
lokað.
MYND/AÐSEND
MYND/AÐSEND
MYND/VILHELM
36 FÓKUS 30. DESEMBER 2020 DV