Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Page 12
12 FRÉTTIR Hörð átök áttu sér stað innan SÁÁ þegar kosið var um nýjan formann. Þórarinn Tyrfingsson og Einar Her- mannsson tókust þar á og fóru stuðningsmenn beggja mikinn í fjölmiðlum í aðdrag- anda kosninganna. Rafmagn- að andrúmsloft var á fundi aðalstjórnar og mikill hiti í fundargestum. Einar hafði á endanum betur og er tekinn við sem formaður. Banaslys og líkfundur Sá harmleikur átti sér stað í lok júní að hjón létu lífið í mótorhjólaslysi á Vesturlands- vegi þar sem hann liggur í gegnum Kjalarnes. Tildrög slyssins voru rakin til hálku vegna galla í nýlögðu malbiki. Boðað var til mótmæla við húsakynni Vegagerðarinnar í Borgartúni. Í kjölfarið var ráðist í endurskoðun á gæða- eftirliti með lagningu malbiks, og nýlagt malbik á tveim stöð- um fræst upp og endurlagt. Líkfundur varð í smábáta- höfninni í Reykjanesbæ nærri skessuhellinum. Ekki er talið að neitt saknæmt hafi átt sér stað. Júlí Greina mátti miklar tilslak- anir hvað varðar viðbrögð stjórnvalda sem og almenn- ings í mánuðinum. Þannig fór goslokahátíð fram, þó í breyttri mynd. Tilslakanirnar áttu ekki eftir að vara lengi, því þjóðhátíð sem halda átti mánuði seinna var aflýst og þriðja bylgja faraldursins svo- kallaða var þá í þann mund að hefjast. Eins fór fyrir fjöl- mörgum bæjarhátíðum um allt land. Þess var minnst þann 10. júlí að hálf öld var liðin frá eldsvoða á Þingvöllum sem varð Bjarna Benediktssyni afabróður fjármálaráðherra og alnafna Bjarna Ben., konu hans og dóttursyni að bana. Minningarathöfn var haldin á Þingvöllum. Eldsupptök eru enn óupplýst. Húsavík í brennidepli Húsavík varð frægasti bærinn á Íslandi eftir að Eurovision- mynd var frumsýnd á Netflix í lok júní, og vakti myndin mikla athygli. Þar leikur Húsavík stórt hlutverk sem heimabær aðalpersóna myndarinnar, sem fjallar um viðleitni þeirra til að verða fyrstu Íslendingarnir til að vinna keppnina. Kvik- myndin hlaut misjöfn viðbrögð áhorfenda en skemmtanagildið var þó talið mikið, einkum fyr- ir þá sem búa yfir hjarta sem slær fyrir Eurovision. Sveitar- stjóri sagði Húsvíkinga ætla að hagnýta sér þá auglýsingu sem í myndinni fólst. Barinn Ja Ja Ding Dong var opnaður og vís- aði nafnið í lag úr kvikmynd- inni. Eins varð lagið Húsavík úr myndinni eitt vinsælasta lag sumarsins á Íslandi. Kjarabarátta Icelandair við flugfreyjur hélt áfram en öllum flugfreyjum Icelandair var sagt upp þann 18. júlí. Til- kynnti Icelandair að það hygð- ist nota „öryggisfulltrúa“ um borð í vélum sínum. Daginn eftir uppsagnirnar var nýr samningur undirritaður, sem var svo kolfelldur í atkvæða- greiðslu. 73% sögðu nei. Tilkynnt var að kosið yrði til Alþingis næst haustið 2021, þann 25. september nánar tiltekið. Ákvörðunin hlaut nokkra gagnrýni, og þá helst vegna þess hve lítinn tíma ný stjórn fengi til þess að klára fjárlagafrumvarp og að baga- legt væri að reka kosninga- baráttu yfir hásumarið. Fimm voru dæmd til fang- elsisvistar í svonefndu Hval- fjarðargangamáli. Fimm- menningarnir voru ákærðir fyrir amfetamínframleiðslu í sumarbústað og fyrir náttúru- spjöll fyrir að losa spilliefni út í náttúruna. Málið kom upp í febrúar. Stjörnunuddarinn svonefndi, Jóhannes Tryggvi Svein- björnsson, var ákærður fyrir kynferðisbrot gegn fjórum konum. Meint brot hans höfðu lengi verið til umfjöllunar í fjölmiðlum, en fleiri tugir kvenna höfðu stigið fram og sakað hann um að hafa beitt sig kynferðisofbeldi. Mannskæður eldsvoði Harmleikur átti sér stað í miðborginni þann 25. júní þegar eldsvoði varð í íbúðar- húsi á horni Vesturgötu og Bræðraborgarstígs. Eldsupp- tök reyndust vera íkveikja. Þrennt lést í eldsvoðanum og átti bruninn eftir að verða eitt stærsta fréttamál sumarsins. Íbúðarhúsinu hafði verið skipt niður í fjölda útleiguherbergja og var aðbúnaðurinn slæmur og brunavörnum alvarlega ábótavant. Margir veltu vöng- um yfir því hver bæri ábyrgð á harmleiknum. Maðurinn sem kveikti í, eigandi hússins, yfirvöld sem ekki höfðu staðið sig í stykkinu að tryggja rétt- indi erlends verkafólks á Ís- landi, auk þess sem bent var á mikla undirmönnun í slökkvi- liðinu. Karlmaðurinn sem kveikti í húsinu hefur verið ákærður fyrir manndráp og íkveikju. Bruninn hratt af stað mikl- um umræðum um aðbúnað erlends verkafólks á Íslandi. Rannsókn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á brun- anum leiddi í ljós að um ófull- nægjandi brunavarnir hefði verið að ræða, og að ráðist hefði verið í miklar breytingar á húsinu að innan, án aðkomu byggingarfulltrúa. Ekki voru lagðar til neinar reglubreyt- ingar í skýrslu HMS. Önnur bylgja COVID Náttúran hélt áfram að minna á sig með jarðskjálftum. Sá stærsti var af stærðinni 4,5 og varð við Fagrafjall á Reykja- nesi og fannst vel á suðvestur- horni landsins. Eftir tilslakanir í byrjun sumars tókst kórónuveirunni að komast aftur á flug, sem olli annarri bylgju COVID-19 á Íslandi. Því var gripið á það ráð að herða sóttvarna- aðgerðir innanlands sem og á landamærum að nýju. Nú máttu aftur ekki fleiri en 100 koma saman og tveggja metra reglu átti að virða í allri starf- semi. Andlitsgrímur bæri að bera þar sem ekki væri hægt að tryggja tvo metra. Á landa- mærunum áttu allir sem til landsins komu frá áhættu- svæðum að fara í tvöfalda sýnatöku og gæta sóttkvíar á meðan beðið væri eftir niður- stöðum. Ágúst Í kjölfar annarrar bylgju kórónu veirunnar var tekist á um það í umræðunni hverj- um slík smit væru að kenna. Ferðaþjónustan sór þau af sér af miklum krafti en margir sögðu stjórnvöld ganga erinda ferðaþjónustunnar. Gylfi Zo- ega var einn þeirra. Á þessum tíma, um miðjan ágúst, voru 100 manna samkomutak- markanir og einföld sýnataka í boði fyrir erlenda ferðamenn á Leifsstöð. Þetta breyttist á einni nóttu þegar stjórnvöld lögðu á tvöfalda sýnatöku og aflögðu svokallaða heimkomu- smitgát. Nú fóru allir í að minnsta kosti 5 daga sóttkví með sýnatöku í báðum endum. Þeir fáu ferðamenn sem þó sáust á vappi um Reykjavík hurfu eins og dögg fyrir sólu. Í fyrsta sinn á Íslandi var tek- in upp grímuskylda sem átti við í aðstæðum þar sem ekki væri hægt að tryggja tveggja metra reglu. Eins átti að bera grímur í starfsemi sem krafð- ist nálægðar og í almennings- samgöngum. Ný bylgja kórónuveirunnar var þó ekki eignuð ferða- mönnum heldur kennd við unga fólkið sem var talið hafa slakað um of á sóttvörnum yfir sumartímann. Ríkisstjórn í skimun Stór hópsýking kom upp á Hót- el Rangá, sem meðal annars varð til þess að ríkisstjórnin öll var svo send í tvöfalda skimun, en ríkisstjórnin hafði fundað þar með starfsfólki stjórnarráðsins og aðstoðar- mönnum sínum. Smitið á Hótel Rangá reyndist alvarlegt hóp- smit, en um 63 smit voru rakin þangað. Eftir að sóttvarnaaðgerðir voru hertar að nýju fór að bera á nýju fyrirbæri í sam- félaginu, svonefndri farsóttar- þreytu. Þingmenn úr stjórnar- andstöðunni fóru að gagnrýna meirihlutann fyrir stefnuleysi í faraldrinum og þótti mörgum óvissan og ófyrirsjáanleikinn orðinn of mikill. Þriðja bylgja kórónuveirufaraldursins setti svip sinn á síðustu mánuði ársins. MYND/ANTON BRINK 30. DESEMBER 2020 DV Þeir fáu ferðamenn sem þó sáust á vappi um Reykjavík hurfu eins og dögg fyrir sólu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.