Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Side 20
20 FRÉTTIR
Ef heimsfaraldurinn gerði þetta ár ekki nógu
slæmt þá gerðu andlát stjarnanna það. Stjörn-
urnar sem kvöddu okkur á árinu voru margar,
sumar þeirra fóru líka frá okkur alltof snemma.
30. DESEMBER 2020 DV
M
YND/G
ETTY
Erlendar stjörnur
sem féllu frá á árinu
RUTH BADER GINSBURG
Ruth Bader Ginsburg var önnur konan í sögunni til þess
að verma sæti í Hæstarétti Bandaríkjanna. Bill Clinton
tilnefndi hana sem dómara í Hæstarétt árið 1993 en þá
var hún orðin heimsfræg fyrir baráttu sína í þágu jafn-
réttis kynjanna. Ginsburg sat í Hæstarétti í tæpa þrjá
áratugi en hún glímdi við krabbamein síðustu tvo ára-
tugina. Þrátt fyrir það missti hún aldrei af málflutningi
við réttinn. Ginsburg hafði betur gegn krabbameininu
fimm sinnum en það reyndist þó vera banameinið þann
18. september. Hún var 87 ára gömul þegar hún lést.
JERRY STILLER
Gamanleikarinn Jerry Stiller lést
af náttúrulegum orsökum í maí, þá
92 ára. Flestir kannast við Jerry
úr gamanþáttunum Seinfeld en
þar fór hann með hlutverk Frank
Constanza. Árið 1997 var hann
tilnefndur til Emmy-verðlaun-
anna fyrir leik sinn í þáttunum.
Leikarinn Ben Stiller, sonur Jerry
Stiller, minntist föður síns á sam-
félagsmiðlinum Twitter. „Hann var
frábær faðir og afi,“ sagði Stiller.
„Hans verður sárt saknað. Elska
þig, pabbi.“
DIEGO MARADONA
Diego Maradona, ein skærasta
knattspyrnugoðsögn allra tíma,
lést í lok nóvember úr hjartaáfalli.
Maradona var 60 ára að aldri en
hann er af mörgum talinn vera
besti knattspyrnumaður allra
tíma. Maradona er hvað frægast-
ur fyrir það sem kallað er „hönd
guðs“, þegar hann skoraði með
hendinni á HM árið 1986 en vann
mótið það ár með Argentínu.
SIR SEAN CONNERY
Skoski leikarinn Sir Sean Conn-
ery lést í svefni á Bahamaeyjum
þann 31. október á þessu ári, 90
ára gamall. Sean Connery var
hvað þekktastur fyrir hlutverk
sitt í James Bond myndunum en
hann var fyrsti leikarinn sem lék
njósnarann með einkennisnúm-
erið fræga, 007. Connery vann
Óskarsverðlaun árið 1988 fyrir leik
sinn í The Untouchables.
DAVID PROWSE
Þrátt fyrir að hafa leikið eitt stærsta hlutverk allra tíma
þekkja fáir David Prowse í sjón. Prowse lék nefnilega
Svarthöfða í fyrstu þremur Star Wars myndunum. Þá
þekkja eflaust fáir röddina hans þar sem hans rödd var
ekki notuð í myndunum. Leikarinn James Earl Jones
ljáði Svarthöfða rödd sína. Andlit Prowse sást aldrei í
Star Wars myndunum, ekki einu sinni þegar Svarthöfði
tók hjálminn af sér. Þegar það gerðist var það leikarinn
Sebastian Shaw sem fór í búninginn. Prowse var því
einn frægasti en á sama tíma einn óþekktasti leikari
allra tíma. Prowse var 85 ára þegar hann lést.
NAYA RIVERA
Leikkonan Naya Rivera, sem var hvað þekktust fyrir
leik sinn í Glee-þáttunum vinsælu, lést í júlí. Hennar
hafði verið saknað í nokkra daga eftir að fjögurra ára
sonur hennar fannst yfirgefinn á litlum bát á stöðu-
vatni í Kaliforníu. Mæðginin fóru saman út á vatnið
en hann kom einn til baka. Umfangsmikil leit að leik-
konunni hófst en fljótlega gerðu yfirvöld sér grein fyrir
því að hún fyndist líklegast ekki á lífi. Lík hennar fannst
að lokum en talið er að hún hafi nýtt alla sína krafta í
að bjarga syni sínum frá drukknun. Rivera var einungis
33 ára þegar hún lést.
KOBE BRYANT
Andlát körfuboltagoðsagnarinnar
Kobe Bryant kom mörgum í opna
skjöldu í byrjun árs. Kobe Bryant
lést ásamt dóttur sinni, Gianna
Bryant, í þyrluslysi þann 26. janú-
ar. Kobe var einn besti körfubolta-
maður allra tíma en hann vann
NBA-deildina 5 sinnum með Los
Angeles Lakers. Kobe var aðeins
41 árs gamall þegar hann lést og
dóttir hans einungis 13 ára gömul.
Kobe lætur eftir sig eiginkonu og
þrjár dætur.
CHADWICK BOSEMAN
Leikarinn Chadwick Boseman var
einungis 43 ára gamall þegar hann
lést þann 28. ágúst. Þá hafði hann
verið búinn að berjast við ristil-
krabbamein í fjögur ár án þess
að neinn vissi, fyrir utan nánustu
aðstandendur hans. Boseman er
þekktastur fyrir hlutverk sitt sem
T‘Challa í Marvel-kvikmyndinni
Black Panther. Þá sagði Boseman
sjálfur að hann væri stoltastur af
því hlutverki. Boseman var í miðri
baráttu við krabbameinið þegar
hann lék T’Challa.
MYND/GETTYMYND/GETTY
MYND/GETTYMYND/CBS
MYND/AFP MYND/GETTY MYND/SWNS.COM