Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Qupperneq 23
FRÉTTIR 23DV 30. DESEMBER 2020
Uppákomur á
ári veirunnar
Árið 2020 verður í manna minnum árið þar sem
kórónuveiran stal jólunum, eða öllu heldur árinu.
Samkomubönn, tveggja metra regla og reglulegir
upplýsingafundir þríeykisins settu svip sinn á árið-
og eins varð til ný tegund af fréttum – svonefndar
COVID-uppákomur sem vöktu mikla athygli.
ELSTI ÁHRIFAVALDUR Á ÍSLANDI
Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður
Landssambands eldri borgara, varð
óvænt uppnefnd elsti áhrifavaldur
Íslands, eftir að hún var gestur á
reglulegum fundi almannavarna-
deildar ríkislögreglustjóra vegna
kórónuveirunnar þann 4. nóvember.
Þórunn mætti á fundinn til að tala
um aðstæður aldraðra í faraldrinum
og nýtti tækifærið og benti á nær-
ingardrykkinn Næring+ og gerði
gott betur og dró upp tvær fernur
og sýndi.
Drykkurinn er framleiddur af MS
og vakti uppátækið athygli þar sem
ekki er gert ráð fyrir auglýsingum
á upplýsingafundi. Þórunn benti í
kjölfarið á að drykkurinn hefði verið
framleiddur að tilstuðlan Lands-
sambandsins með eldri borgara í
huga og út frá ráðleggingum land-
læknis um næringarþörf hjá hrumu
eða veiku eldra fólki, en næringar-
skortur væri mikið vandamál meðal
eldri borgara. Þórunn kippti sér þó
ekkert upp við áhrifavaldstitilinn og
í samtali við DV sagðist hún taka því
fagnandi því eldri borgarar þyrftu á
því að halda að eiga sér málsvara.
KALLAÐ EFTIR AFSÖGN
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra, komst í hann krappann um
jólin. Hann hafði brugðið sér með
eiginkonu sinni, Þóru Margréti
Baldvinsdóttur, á sölusýningu í Ás-
mundarsal þar sem fjöldi fólks var
saman kominn. Svo mikill fjöldi var
á svæðinu að lögregla greindi frá
því í dagbók sinni að grunur væri
um að sóttvarnareglur hefðu verið
brotnar. Bjarni baðst afsökunar í
samtali við RÚV og nefndi hann þar
konu sína fjórum sinnum á nafn.
Fannst mörgum hann þar ýja að því
að það væri konunni hans að kenna
að hann komst í þessar aðstæður
og hann sjálfur bæri þar enga sök.
Flestir sáu þó í gegn um þetta.
FÖGNUÐU OG BRUTU REGLUR
Valur varð Íslandsmeistari í elstu
deild karla í október eftir að KSÍ
ákvað að blása öll Íslandsmót
af vegna kórónuveirunnar. Vals-
menn fögnuðu þessum tíðindum
vel og mikið á samkomustað á
Hlíðarenda. Hins vegar voru þá
samkomutakmarkanir svo að
ekki máttu fleiri en tuttugu koma
saman, en af myndum og mynd-
skeiðum sem Valsmenn birtu af
fögnuðinum mátti sjá að töluvert
fleiri voru á Hlíðarenda en reglur
heimiluðu.
Sömu sögu var að segja af leik-
mönnum Leiknis sem komust upp í
efstu deild karla í október. Mynd-
band fór í dreifingu sem leikmaður
Leiknis tók í gleðskapnum og mátti
þar sjá kampavínið flæða yfir mann-
skapinn. Ljóst var að fleiri en tutt-
ugu voru þar saman komnir og
engin tveggja metra regla var virt.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
hóf í nóvember rannsókn á sam-
komunum tveimur og meintum
brotum á sóttvarnareglum.
VINKONUHITTINGUR RÁÐHERRA
Þórdís Kolbrún Reykfjörð, ferða-
mála-, iðnaðar og nýsköpunar-
ráðherra, hitti vinkonuhóp sinn í
ágúst og voru myndir af því birtar
á Instagram. Athygli vakti að vin-
konurnar gættu ekki að tveggja
metra reglu á hittingnum og var ráð-
herrann harðlega gagnrýndur fyrir
vikið, enda höfðu margir landsmenn
á þeim tíma þurft að fresta sam-
komum af hverju tagi vegna sam-
komutakmarkana. Eins vakti athygli
að vinafagnaðurinn hafði að hluta til
verið samstarf við fyrirtæki, en Þór-
dís hefur fullyrt að hún hafi borgað
sinn eigin reikning þó svo einhverjar
vinkonur hennar hafi verið í sam-
starfi við veitingastaðinn og hót-
elið sem þær dvöldu á. Þórdís brást
upphaflega við gagnrýninni með
því að afsaka og réttlæta atvikið,
en viðurkenndi síðar að myndir sem
birtust frá þessum degi hefðu verið
„taktlaus og mistök“. Hins vegar
taldi sóttvarnalæknir að ekki hefði
um brot á reglum verið að ræða.
Þórdís sagði í fjölmiðlum að þrátt
fyrir að vera stjórnmálamaður þá
væri hún líka manneskja. „Ég ætla
að vera ég sjálf. En það er snúið að
kalla eftir manneskjulegum mann-
eskjum í pólitík, en leyfa þeim svo
ekki að vera manneskjur. Gleymum
því ekki að það er stór hluti þess
að vera manneskja, að gera mis-
tök, vera taktlaus, hafa ekki alltaf
hugsað hlutina til enda.“
ENSKIR LANDSLIÐSMENN Í BOBBA
Tveir enskir landsliðsmenn í knatt-
spyrnu, Mason Greenwood og Phil
Foden, brutu sóttvarnareglur hér á
landi í september þegar þeir buðu
tveimur íslenskum konum í heim-
sókn til sín á Hótel Sögu. Leikmenn-
irnir áttu að gæta sóttkvíar á meðan
þeir voru hér á landi og var óheimilt
að hit ta aðra aðila. Stúlkurnar
tvær, Nadía Sif Gunnarsdóttir og
Lára Clausen, birtu myndskeið af
hittingnum á samfélagsmiðlum, en
þau skilaboð voru aðeins ætluð af-
mörkuðum hópi. Engu að síður fóru
myndskeiðin í dreifingu og bárust
DV, sem greindi fyrst frá málinu.
Brot ensku leikmannanna vöktu
heimsathygli og áttu stúlkurnar fullt
í fangi við að svara ágangi fjölmiðla í
kjölfarið. Greenwood og Foden voru
reknir úr landsliðinu vegna brotsins
og voru harðlega gagnrýndir fyrir
vikið.
Lára og Nadía urðu svo óvænt skot-
spónn æstra aðdáenda sem kenndu
þeim um uppákomuna, þrátt fyrir að
þær hafi ekki átt að vera í sóttkví á
umræddum tíma.
MYND/AÐSENT SKJÁSKOT
MYND/FJÓSIÐ-STUÐNINGSMANNASÍÐA VALS
SKJÁSKOT/UPPLÝSINGAFUNDUR ALMANNAVARNA
MYND/GETTY