Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Qupperneq 34
34 FÓKUS 30. DESEMBER 2020 DV
MEST LESIÐ FÓKUS 2020
1 SVALA KOMIN MEÐ NÝJAN KÆRASTA – 21 ÁRS ALDURSMUNUR
Söngkonan Svala Björgvins byrjaði í sambandi með 22 ára sjómanni og föður frá Grindavík,
Kristjáni Einari Sigurbjörnssyni. Fregnir af sambandi þeirra vöktu mikla athygli sökum aldurs-
munar á parinu, en Svala er 21 ári eldri en Kristján.
Lífsstílsvefurinn Fókus færir lesendum daglega fréttir af fræga fólkinu, átakanlegar
sögur og lífsstílsfréttir. Hér má sjá það sem vakti mesta athygli á vefnum árið 2020.
INNLENT ERLENT
2 KATRÍN BJÖRK GERÐI SAMANBURÐ Á VERÐI
MATVÖRUVERSLANA – NIÐUR
STAÐAN KOM HENNI Á ÓVART
Katrín Björk Birgisdóttir gerði samanburð á
verði í matvöruverslunum Krónunnar, Nettó
og Bónus. Niðurstaðan kom henni á óvart
og þá sérstaklega hvað var lítill verðmunur
á verslunum.
3 ÍSLENDINGURINN SEM GLEYMDIST Á ÓSKARNUM
– HILDUR VAR EKKI EINI ÍS
LENDINGURINN SEM VAR TIL
NEFNDUR
Íslendingar fylltust stolti þegar Hildur
Guðnadóttir vann Óskarsverðlaun í febrúar
2020, en hún var hins vegar ekki eini Íslend-
ingurinn sem var tilnefndur til verðlauna.
Sigríður Dyekjer var tilnefnd fyrir heimildar-
myndina The Cave. Hún er íslensk-dönsk og
býr og starfar í Kaupmannahöfn.
4 MYND TÖNJU ÝRAR VEKUR KÁTÍNU – SÉRÐ ÞÚ HVAÐ
ER ATHUGAVERT VIÐ MYND
INA?
Athafnakonan og áhrifavaldurinn Tanja Ýr
Ástþórsdóttir deildi mynd á Instagram og
þegar betur var athugað sást að Tanja Ýr
hafði klætt sig vitlaust í skyrtuna og vakti
það mikla kátínu meðal hennar og netverja.
5 ALDA KAREN BREGST VIÐ SKAUPINU
Það var mikið gert grín að Öldu Karen Hjalt-
alín, fyrirlesara og ráðgjafa, í Áramóta-
skaupinu 2019. Alda Karen svaraði gríninu á
skemmtilegan hátt á Instagram stuttu síðar
og þakkaði fyrir sig.
6 MYNDIR AF ÁSDÍSI RÁN VEKJA UNDRUN – „ICE
QUEEN ÞYNGIST UM 100 KÍLÓ“
Fyrirsætan og athafnakonan Ásdís Rán
Gunnarsdóttir birti myndir á Facebook-síðu
sinni og sagði þar frá photoshop-svikum
sem hún varð fyrir í Búlgaríu þar sem hún
býr. Ásdís sagði óvandaðan fjölmiðil hafa
birt myndir af sér sem búið var að breyta í
myndvinnsluforriti til þess að láta hana líta
út fyrir að vera mun þyngri en hún er.
7 KRISTÍN AVON BLÆS Á SÖGUSAGNIRNAR UM FAÐ
ERNI DÓTTUR SINNAR: „RÉTT
SKAL VERA RÉTT“
Áhrifavaldurinn Kristín Avon Gunnarsdóttir
fékk nóg af kjaftasögunum sem gengu um
faðerni dóttur hennar. Hún taldi vera kominn
tíma til að blása á sögusagnirnar.
8 KONAN SEM UPPLJÓSTRAÐI UM FRAMHJÁHALD Í
REYKJAVÍK SÍÐDEGIS FRÆG Á
NÝ – „KLÁRLEGA Í TOPP 5“
Upptaka af símtali konu frá árinu 2007 fór
sem eldur í sinu á ný í nóvember og vakti
aftur mikla lukku meðal landsmanna. Kona
nokkur hringdi í útvarpsþáttinn Reykjavík
síðdegis til að tjá sig um málefni öryrkja
og endaði með að upplýsa hlustendur um
bólfarir mannsins síns með geðhjúkrunar-
fræðingi á Landspítalanum.
9 VIKAN Á INSTAGRAM: „HVAÐ ER SKEMMTILEGRA
EN AÐ DJAMMA MEÐ ÖLLUM
SEM ÞÚ DÝRKAR?“
Vikan á Instagram er vinsæll liður hjá DV.is
sem kemur inn alla mánudagsmorgna. Við
skoðum hvaða myndir slógu í gegn á Insta-
gram í vikunni sem leið.
10 MYNDIN AF GARÐARI BARNUNGUM – DRENG
UR ÞJAKAÐUR AF HEIMILIS
OFBELDI
Garðar Baldvinsson rithöfundur birti ljós-
mynd af sér frá árinu 1969, þegar hann var
8-9 ára gamall drengur, þjakaður af ofbeldi
og streitunni sem fylgdi því. Hann tjáði sig
um skelfilegt ofbeldi sem hann varð fyrir af
hálfu móður sinnar í æsku.
1 MANSTU EFTIR „FALLEGUSTU STÚLKU VERALDAR“?
– SVONA LÍTUR HÚN ÚT 9 ÁRUM
SÍÐAR
Thylane Lena-Rose Blondeau var aðeins tíu
ára gömul þegar hún prýddi síður Vogue og
var kölluð „fallegasta stúlka veraldar“. Í dag
er hún nítján ára gömul og gengur vel í fyrir-
sætubransanum.
2 CSTRENGURINN ER AÐ GERA ALLT VITLAUST
Nýstárlegar nærbuxur, sem minna frekar
á hárband en undirfatnað, slógu í gegn
á árinu. Nærbuxurnar voru vinsælar hjá
Bretum í sumar en hafa lengi verið vinsælar
hjá stjörnunum á rauða dreglinum.
3 „VANDRÆÐALEGA“ AUGNABLIKIÐ MILLI DONALD
TRUMP OG MELANIU TRUMP
EFTIR KAPPRÆÐURNAR
Augnablik á milli Donalds Trump Bandaríkja-
forseta og Melaniu Trump, eiginkonu hans,
eftir fyrstu kappræður í forsetakosning-
unum vakti mikla athygli, þá kuldaleg kveðja
þeirra hjóna. Mörgum þótti augnablikið afar
vandræðalegt.
4 ÁSTÆÐAN FYRIR ÞVÍ AÐ FORELDRAR TELJA 15 ÁRA
SON SINN VERA BARNANÍÐING
Foreldrar komu fram í sjónvarpsþætti Dr.
Phil og sögðu að fimmtán ára sonur þeirra
væri barnaníðingur. Þau þurftu að fjarlægja
drenginn af heimilinu eftir að hann sagðist
ætla að misnota yngri systkini sín.
5 VARAR VIÐ LEÐURBUXUM ÚR ZÖRU – ÁSTÆÐAN
SPRENGHLÆGILEG
Ung kona varaði við leðurbuxum úr Zöru
vegna þess að í hvert skipti sem hún beygði
sig gáfu buxurnar frá sér hljóð sem hljómaði
eins og prump.