Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Side 40
HILDUR GUÐNADÓTTIR
„Hildur Guðnadóttir tónskáld. Hún er með fágaðan stíl
sem er einhvern veginn allt í senn tímalaus og afslapp-
aður en afgerandi. Hún ber alltaf af.“
Bergþóra Magnúsdóttir
STEFÁN SVAN
„Stefán Svan, fatahönnuður og verslunareigandi.
Með vandaðan stíl. Litríkur og þorir að blanda saman
ólíkum efnum og mynstrum.“
Bergþóra Magnúsdóttir
BRÍET
„Bríet söngkona. Með einstakan stíl. Gaman að fylgj-
ast með hvernig hann vex með henni með hverju árinu.
Fer sínar eigin leiðir. Óhrædd að prófa sig áfram.“
Bergþóra Magnúsdóttir
ANDREA MAGNÚSDÓTTIR
„Þetta er mögulega erfiðasta árið til að svara einmitt þessari spurningu.
Þar sem við vorum flest klædd í náttbuxur að neðan, gerðum lítið og hittum
fáa. Sú fyrsta sem kemur upp í huga mér er fatahönnuðurinn og vinkona mín
Andrea Magnúsdóttir. Hún var ein af fáum sem klæddi sig í kjól alla daga í
fyrstu bylgju Covid og hvatti aðrar konur til að gera slíkt hið sama með því
að koma af stað myllumerkinu #kjólaáskorun á Instagram,“ segir Elísabet.
Elísbet Gunnarsdóttir
SAGA SIG, RAGGA GÍSLA, ANDREA RÖFN,
ELIZA REID, GDRN OG BRÍET
„Það gefur og gleður að klæða sig upp og mikið hlakka
ég til að hitta fólk og hafa gaman aftur, þegar það má.“
Elísabet nefnir aðra Íslendinga sem henni þótti ein-
staklega vel klæddir á árinu: „Saga Sig, Ragga Gísla,
Andrea Röfn, Eliza Reid, GDRN og Bríet.“
Elísbet Gunnarsdóttir
Töff í tauinu
Við fengum álitsgjafana Bergþóru Magn-
úsdóttur búningahönnuð, Elísabetu Gunn-
ars tískubloggara, og Kormák Geirharðs-
son verslunarmann til að tilnefna best
klædda Íslendinginn og fara yfir bestu og
verstu trend ársins.
BEST KLÆDD
ÁLITSGJAFAR
Elísabet Gunnars
tískubloggari
Bergþóra Magnúsdóttir
búningahönnuður
Kormákur Geirharðsson
verslunarmaður
MYND/GETTY/
MYND/ANTON BRINK
MYND/ANNA MAGGÝ
MYND/VALLI MYND/ERNIR
MYND/AÐSEND MYND/VALLI
MYND/INSTAGRAM
40 FÓKUS 30. DESEMBER 2020 DV