Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Page 45
verður okkur auðveldari og ég
sé fram á að margir Íslending-
ar nái að ferðast út fyrir land-
steinana með haustinu.
Ferðaþjónustan
Ferðaþjónustan okkar hefur
staðið í ströngu. Það fer að
birta í þeim geira með sumr-
inu en ég sé líka mörg fyrir-
tækjanöfn sem þurfa að skella
í lás. Úrræði stjórnvalda fyrir
atvinnugreinina munu áfram
sæta gagnrýni og ég sé hana
eflast nokkuð á fyrstu mán-
uðum ársins. Hér er einn-
ig sterk kona með veglegar
tengingar í viðskiptalífið. Hún
er hér til að bera þjóðina yfir
erfiða hjalla. Ný útkoma. Hér
er tækifæri sem blasir við
okkur og talan sjö birtist hér.
Við höldum ótrauð áfram og
gerum það sem við byrjuðum
á að vinna að í ársbyrjun. Hjól
atvinnulífsins byrja loksins að
snúast. Ferðamenn koma hing-
að í enn meira mæli en áður í
júlí, ágúst og september, þar
sem við tökum á móti erlend-
um gestum á annan máta en
áður. Ný hugmynd skilar sér
vel hér.
Síðustu þrír mánuðir ársins
sýna að allt sem við höfum
unnið að þegar kemur að
ferðaiðnaðinum þá gerum við
hér áherslubreytingar og mik-
ill árangur næst. Jú, einhver
hópur birtist hér sem öskrar
hátt og gagnrýnir þessar nýju
aðferðir landans þegar kemur
að ferðamönnum. Neikvæðnin
nær alltaf athygli en þessi
hópur fær ekki hljómgrunn.
Nýjungar koma hér fram
þegar ferðaþjónustan er ann-
ars vegar. Menn byrja að
hugsa út fyrir kassann og
skapa tækifæri í kreppunni.
Við drögum heiminn bókstaf-
lega til okkar. Allt er til staðar
hér. Við erum með öll verk-
færin og vættir landsins sjá
um okkur og vernda og milda
höggið af faraldrinum.
Mikið púður verður lagt í
landkynningu og þessi bless-
aða breska auglýsingastofa,
ég skynja nokkra óánægju
með hana og finnst eins og
stjórnvöld sjái eftir ákvörðun
sinni að ráða hana í verkið og
ákveði að fela það innlendum
aðila.
Flugfélög
Hér er ekki að sjá að ný flug-
félög bætist við árið fram
undan. Icelandair blómstrar
sem aldrei fyrr og stjórnend-
ur fagna þegar haustar árið
2021. Hlutabréf í fyrirtækinu
hækka. Sigurbogi birtist hér
yfir flugfélaginu. Fögnuður
mikill hér. Lærdómurinn hef-
ur verið numinn. Hér er eins
og Icelandair sé á sterum mið-
að við síðasta ár. Starfsmenn
endurráðnir og jafnvægi næst.
Ég sé samt einhverja örðug-
leika sem munu hafa áhrif á
gengi hlutabréfanna til hins
verra, en þó er þetta engin
ástæða til að örvænta því mér
sýnist ástandið vara stutt,
enda menn þar á bæ snillingar
í að rétta úr kútnum.
Ég sé nokkuð stóran starfs-
mannafögnuð þegar starfsemi
flugfélagsins kemst aftur á
fullt skrið eftir veirufarald-
urinn, svo stóran að fjallað
verður um hann í fjölmiðlum.
Veitingahús
Hér er komið inn á erfiða
stöðu veitingastaða í miðborg
Reykjavíkur og nágrenni en
hér birtir til og það er eins og
frjór jarðvegurinn sé að skila
góðri uppskeru þegar ágúst-
mánuður árið 2021 líður undir
lok. Kórónuveirufaraldur er
hættur að lama samfélagið
og það er eins og gjaldþrotin
nái ekki yfir töluna tíu. Öll
þessi tómu rými fyllast á ný
í Reykjavík og hér er hröð
uppbygging. Verslunargatan
Laugavegur mun blómstra og
Austurstræti iðar af lífi og
gleði borgarbúa. Lundabúð-
irnar eru ekki eins smitandi
og áður. Það hefur átt sér stað
hreinsun. Ný verslun ýtir und-
ir vinsældir Laugavegs.
Veitingarekstur í Perlunni
lifir þetta af. Grillið deyr
hinsvegar. Það hverfur af
yfirborðinu eins og það hafi
aldrei verið til.
Menntamál
Menntamál, skýrari samskipti
í stað reiði, gagnrýni og ótta.
Hér er talan fimm öflug þeg-
ar heildarmyndin er skoðuð.
Nýjar leiðir í menntamálum
fá hljómgrunn. Listir skipta
þar sköpum.
Ástrík konan sem stendur
hér fremst í flokki er með
alla þjóðina á bak við sig sem
traustur leiðtogi. Þessi nýi
kafli byrjaði á nýju tungli 14.
desember og núna erum við á
leiðinni inn í nýja tíma. Þjóðin
stendur saman. Regnboginn
birtist hér yfir okkur.
Brottfall úr skólum er
minna en búist var við í kjöl-
far aukinnar ásóknar í nám
á COVID-tímum. Þó eru ein-
staklingar sem gefast upp.
Menntakerfið hefur tekið
mikinn þroska eftir faraldur-
inn og ég sé spennandi, nýjar
leiðir kynntar í náminu sem
mun auka aðsókn, einkum hjá
fullorðnu fólki sem er nú þeg-
ar komið á vinnumarkaðinn.
Stafrænar lausnir spila þar
stórt hlutverk og möguleikar
í fjarnámi eflast gífurlega. Ég
sé þó gagnrýnisraddir innan
fræðasamfélagsins sem telja
að slegið sé af árangurs-
kröfum með þessu nýja fyrir-
komulagi, en þessi ástríka
kona sem ég minntist á áðan
mun snúa þá gagnrýni niður
eins og hinn öflugasti MMA-
kappi.
Erfiðleikar
Myrk teikn eru á lofti í and-
legum málefnum þjóðarinnar
í byrjun nýs árs. Þunglyndi,
atvinnuleysi, einangrun og fá-
tækt liggja þungt á landanum.
Sjálfsvíg hér á landi verða
allt of mörg. Hér er einn
tugur mér greinilega sýndur
á árinu fram undan þar sem
Íslendingar og tveir aðfluttir
útlendingar taka eigið líf. Hér
vil ég stoppa stutt við. Hræði-
legt að sjá þetta.”
Völvan þagnar stundarkorn
og fær sér sopa úr dökkum
leirbolla með óræðu innihaldi.
Hendur hennar skjálfa.
„Alveg hræðilegt, en þetta
mun leiða til enn frekari vit-
undarvakningar og stjórn-
völd munu finna fyrir miklum
þrýstingi að veita fjármagni í
sálfræðiþjónustu á næstu fjár-
lögum. Svo það er víst ljósið
í myrkrinu, þótt við kærum
okkur fæst um að bíða lengur
eftir úrbótum.”
Könnun meðal unga fólks-
ins í framhaldsskólum og
efstu bekkjum grunnskóla
mun valda áhyggjum, en hún
mun sýna fram aukna nikó-
tínneyslu ungmenna. Vegna
þessa verður farið í laga-
breytingar og sérstakt átak til
að spyrna við þessari þróun.
Ég sé rafrettur ná auknum
vinsældum á kostnað nikó-
tínpúðanna.
Ég sé mörg stór fíkniefna-
mál á komandi ári og munu
þau í auknum mæli varða
innlenda framleiðslu, enda
áttu fíkniefnasalar erfitt með
að anna eftirspurn í faraldr-
inum sem gerði það erfiðara
að flytja hingað inn efni. Ég
sé mál koma upp sem varðar
mikil veikindi meðal þeirra
sem neyta efna sem hafa verið
framleidd innanlands. Alvar-
leg veikindi þar sem nokkrir
þurfa að leggjast inn á sjúkra-
hús og einn tapar lífinu.
Fólkið
Þetta er árið sem við þurfum
að hlusta á forsetann. Hann
Guðni Th. Jóhannesson birt-
ist hér sem kennari og þetta
er ár kennarans. Ég sé ekki
miklar breytingar fram undan
hjá honum, hann mun halda
áfram að vera viðkunnanlegi
og alþýðlegi sagnfræðingur-
inn sem við höfum fengið að
venjast síðustu fjögur árin.
Enda þarf ekki að breyta því
sem virkar.
Eliza Reid mun láta meira
að sér kveða en áður, enda
orðin dauðþreytt á að teljast
handtaska forsetans. Hún
hefur sína eigin rödd og mun
leyfa henni að heyrast meira
en við höfum áður fengið að
kynnast. Því verður mætt með
blönduðum viðbrögðum, enda
Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra. MYND/SIGTRYGGUR ARI
Nýjar leiðir í menntamálum
fá hljómgrunn. Listir skipta
þar sköpum.
FÓKUS 45DV 30. DESEMBER 2020