Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Blaðsíða 53
KONUR SEM KJÓSA
Hönnun: Snæfríð Þorsteinsdóttir og
Hildigunnur Gunnarsdóttir
Höfundar: Erla Hulda Halldórsdóttir, Kristín Svava
Tómasdóttir, Ragnheiður Kristjánsdóttir og Þorgerður
H. Þorvaldsdóttir
Útgefandi: Sögufélag
DÝRALÍF
Hönnuður: Ólafur Unnar Kristjánsson
Höfundur: Auður Ava Ólafsdóttir
Útgefandi: Benedikt
EIN
Hönnun: Einar Geir
Höfundur: Ásdís Halla Bragadóttir
Útgefandi: Veröld
Kannski eina kápan í ár sem raunverulega á skilið að vera kölluð frumleg.
Hér eru hönnunarreglur þverbrotnar af einstakri list
(að prenta svart letur á rauðan grunn) og útkoman er
þrususterk baráttuforsíða. Hún tekur pláss, fangar
athygli og í einfaldleika sínum kemur innihaldinu skýrt
en ákveðið til skila. Hún er holdgerving kvennabarátt
unnar. Letur, litaval og uppsetning til fyrirmyndar.
GRÍSAFJÖRÐUR
Hönnun: Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir
Höfundur: Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir
Útgefandi: Salka
Dásamlegar teikningar Lóu
heilla mig mikið og þessi kápa
alveg sogar mann að sér, litrík og
spennandi. Lýsir bókinni líka vel,
sem er nú markmiðið.
Lóa klikkar ekki frekar en fyrri
daginn og kápuna á bókinni gæti
hún selt sem sér verk. Það er ein
hver dásamlegur og viðkunnan
legur húmor sem einkennir verk
Lóu og sést glöggt á þessari kápu
og skilar sér í sögunni sjálfri.
FUGLINN SEM GAT EKKI FLOGIÐ
Hönnun: Alexandra Buhl
Höfundur: Gísli Pálsson
Útgefandi: Forlagið/MM
Ótrúlega fallegt myndverk sem
prýðir þessa bók sem fangar inni
haldið fullkomlega.
Málverk á forsíðunni af fuglinum
fræga, sem nú er bara til á mynd
um. Gefur honum líf á þann hátt
sem hann á skilið.
MÖRGÆS MEÐ
BROSTIÐ HJARTA
Hönnun: Anna Margrét Marinosd.
Höfundur: Stefán Máni
Útgefandi: Sögur útgáfa
Ekki það sem maður býst við frá
Stefáni Mána en mjög skemmtileg
kápa.
Áhugaverð kápa sem verður til
þess að maður vill vita meira.
107 REYKJAVÍK
Hönnun: Ragnar Helgi Ólafsson
Höfundar: Auður Jónsdóttir og
Birna Anna Björnsdóttir
Útgefandi: Bjartur
Falleg litasamsetning og mynda
val sem myndar einhverja dyst
ópíska og útópíska veröld. Hef
ekki lesið bókina, en kápan er
forvitnileg.
Virkilega spennandi kápa sem
þarf að staldra við og skoða.
MÖNDULHALLI
Hönnun: Elín Edda Þorsteinsdóttir
Höfundar: Ýmsir
Útgefandi: Una útgáfuhús
Skemmtileg nálgun á myndlíkingu.
Falleg litasamsetning og forvitni
leg kápa.
Falleg og vel leyst myndskreyting.
Samspil skemmtilegs og frumlegs
leturs hönnuðar, lita og teikninga
hönnuðarins mynda samstæða
heild.
Bananakassar hafa sterka tengingu í þjóðarsálina og
áhugavert að nota sem aðalatriði á bókarkápu.
Einföld og ákaflega áberandi hönnun með skemmtilegu tvisti þegar
hlífðarkápan er fjarlægð.
Ekki bara falleg kápa heldur stofustáss. Einfaldur hverdagslegur hlutur eins og bananakassi
getur verið þýðingarmikill og fagur svona einn og yfir
gefinn. Heillandi kápa sem gæti sómað sér í ramma.
Einmana „Ein“ er það fyrsta sem grípur augað. Bókin er í gulum gegn
sæjum rykfrakka. Kápan sjálf er hvít og sé rykfrakkinn fjarlægður kemur
í ljós að bókin heitir í raun Mein, en Mið er gult og sést því ekki í gegnum
gulan rykfrakkann. Skemmtilegt „páskaegg“ í hönnun.
Virkilega sterk og áhrifarík kápa. Hún er áberandi
þrátt fyrir einfaldleikann.
FÓKUS 53DV 30. DESEMBER 2020
FRUMLEGUSTU BÓKARKÁPURNAR
FALLEGAR SEM VÖKTU EINNIG ATHYGLI FRUMLEGAR SEM VÖKTU EINNIG ATHYGLI: