Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Side 56

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Side 56
STJÖRNUBÖRN ÍSLANDS 2020 MYND/INSTAGRAM MYND/INSTAGRAM MYND/INSTAGRAM MYND/FACEBOOK MYND/AÐSEND Þó að margir muni hugsa til árs- ins 2020 sem versta árs aldar- innar var það ekki svart fyrir alla. Það komu fjölmargir gleðigjafar í heiminn sem lýstu upp veröld foreldra sinna og nákominna. Hér eru börn þekktra Íslendinga sem komu í heiminn á árinu. M YN D /G ETT Y M Y N D /IN S T A G R A M KRISTBJÖRG OG ARON EINAR Landsliðsmaðurinn Aron Einar Gunnarsson og einkaþjálfarinn Kristbjörg Jónasdóttir buðu sitt þriðja barn velkomið í heiminn 1. október. Fyrir áttu þau tvo syni, þá Óliver og Tristan. Þau vissu ekki kynið fyrir fæðingu og var þetta drengur, hann fékk nafnið Alexander Malmquist Aronsson. SKÚLI MOGENSEN OG GRÍMA BJÖRG Skúli Mogensen og Gríma Björg Thorarensen eignuðust sitt fyrsta barn saman þann 6. maí síðastlið­ inn. Skúli er fyrrverandi forstjóri WOW air og Gríma er innanhúss­ hönnuður. Sonurinn fékk nafnið Jaki Mogensen. ARNÓR DAN OG VIGDÍS HLÍF Arnór Dan Arnarsson, söngvari Agent Fresco, og Vigdís Hlíf Jó­ hönnudóttir eignuðust dóttur þann 17. október síðastliðinn. Stúlkan fékk nafnið Hanna Lillý Arnórsdóttir. HANNA RÚN OG NIKITA Dansparið Hanna Rún Bazev Óla­ dóttir og Nikita Bazev eignuðust stúlku í byrjun árs, þann 6. janúar. Stúlkan kom þegar Hanna Rún var gengin rúmlega tvær vikur yfir settan dag. Stúlkan fékk nafnið Kíra Sif Bazev og vakti skírnar­ veislan mikla athygli fyrir að vera sérstaklega glæsileg og með glimmerþema. SÓLVEIG OG JAKOB Jakob Birgisson grínisti og Sól­ veig Einarsdóttir hagfræðingur eignuðust dóttur í nóvember sem fékk nafnið Herdís. Jakob hefur slegið í gegn í skemmtanabrans­ anum um árabil með uppistandi sínu, Meistari Jakob. Hann var einnig einn af höfundum Ára móta­ skaupsins í fyrra. SVERRIR OG KRISTÍN Söngvarinn Sverrir Bergmann og Kristín Eva Geirsdóttir eignuðust sitt fyrsta barn í febrúar. Stúlkan fékk nafnið Ásta Bertha Berg­ mann. FANNEY INGVARS OG TEITUR Fyrrverandi fegurðardrottningin og áhrifavaldurinn Fanney Ing­ varsdóttir og unnusti hennar Teitur Páll Reynisson eignuðust dreng þann 23. október síðast­ liðinn. Þau áttu fyrir eina dóttur, Kolbrúnu Önnu. HÖRÐUR OG MÓEIÐUR Landsliðskappinn Hörður Björgvin Magnússon og Móeiður Lárus­ dóttir eignuðust sitt fyrsta barn í maí, hana Matteu Móu Harðar­ dóttur. STEINDI OG SIGRÚN Fjölskylda leikarans Steinþórs Hróa Steinþórssonar og Sigrúnar Sigurðardóttur stækkaði í maí. Þau buðu sína aðra dóttur vel­ komna í heiminn, hana Matthildi Yrsu. MARGRÉT GNARR OG INGIMAR Einkaþjálfarinn Margrét Edda Gnarr og unnusti hennar Ingimar Elíasson eignuðust son þann 13. janúar. Drengurinn fékk nafnið Elías Dagur Ingimarsson. HELGA OG BRAGI Dagskrárgerðarkonan Helga Arn­ ardóttir og Bragi Þór Hinriksson eignuðust dreng í byrjun árs, þann 2. janúar. Það er því ansi stutt í fyrsta afmælið. Drengurinn fékk nafnið Jakob Örn og var skírður á 17. júní, afmælisdegi móður sinnar. ÞURÍÐUR BLÆR OG GUÐMUNDUR Þuríður Blær Jóhannsdóttir og Guðmundur Felixson eignuðust son þann 13. júní. Þetta var fyrsta barn parsins og fékk drengurinn nafnið Arnaldur Snær Guðmundsson. Þuríður Blær er leikkona og meðlimur Reykjavíkurdætra. Hún hefur slegið í gegn í vinsælu þáttaröðinni Ráðherrann. Guðmundur er vinsæll spuna­ leikari sem hefur verið að gera það gott með Improv Ísland. Hann er sonur leikarans Felix Bergssonar. HERMANN HREIÐARS OG ALEXANDRA FANNEY Knattspyrnumaðurinn og þjálfarinn Hermann Hreið­ arsson og Alexandra Fanney Jóhannsdóttir eignuðust son þann 16. október síðastliðinn. Rétt rúmu ári áður eignuðust þau einnig son, og er því óhætt að segja að það sé fjör á heimilinu. HAFÞÓR JÚLÍUS OG KELSEY Kraftajötunninn Hafþór Júlíus og eiginkona hans Kelsey Henson eignuðust dreng 26. september síðastliðinn. Drengurinn fékk nafnið Stormur Magni. Nýlega hitti litla fjölskyldan aðra litla fjöl­ skyldu, eins og sjá má á myndinni. ANNIE MIST OG FREDERIK CrossFit­stjarnan Annie Mist Þórisdóttir eignaðist dóttur 10. ágúst með unnusta sínum Fred­ erik Aeigidius. Stúlkan fékk nafnið Freyja Mist Aeigidius. 56 FÓKUS 30. DESEMBER 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.