Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Side 58
Andrew Bretaprins
Andrew Bretaprins hefur verið talsvert í kastljós-inu í ár vegna tengsla
sinna við bandaríska auð-
kýfinginn og barnaníðinginn
Jeffrey Epstein. Hann hefur
verið sakaður um að hafa nýtt
þjónustu Jeffreys til að fá að-
gang að ungum stúlkum, jafn-
vel barnungum, til að misnota.
Prinsinn hefur neitað þessu,
en undanfarin misseri hafa
sífellt komið fram nýjar frá-
sagnir og gögn renna stoðum
undir ásakanirnar og hafa
dregið úr trúverðugleika hans.
Virginia Roberts Giuffre
steig fram í sumar og lýsti
kynferðisofbeldi sem hún
segist hafa orðið fyrir af
hálfu Andrew Bretaprins þeg-
ar hún var 17 ára. Hún sagði
Jeffrey hafa leigt hana út til
Andrew svo hann gæti mis-
notað hana. Hún hefur sagt
að hún vonist til að Andrew
verði stungið í steininn og fái
klefa við hliðina á Ghislaine
Maxwell.
Ghislaine Maxwell, unnusta
Jeffrey Epstein, var í felum
þegar bandaríska alríkis-
lögreglan FBI handtók hana
í byrjun júlí. Hún er grunuð
um að hafa útvegað Epstein
fjölda ungra stúlka sem hann
nauðgaði og beitti kynferðis-
legu ofbeldi. Hún er einnig
grunuð um að hafa sjálf tekið
þátt í kynferðisofbeldinu.
Í 417 blaðsíðna yfirheyrslu
yfir Ghislaine komu fram
nýjar og áður óbirtar upplýs-
ingar um meint kynferðisof-
beldi Andrew gegn Virginiu.
Ellen DeGeneres
G rínistinn Ellen DeGene-res hefur undanfarin sautján ár stjórnað
þættinum The Ellen DeGene-
res Show. Þátturinn hefur
verið gríðarlega vinsæll, en
þegar fór að líða á árið var
áhorf þáttarins í frjálsu fjalli í
kjölfar harðrar gagnrýni. Ell-
en var sökuð um rasisma, ein-
elti og að stuðla að neikvæðu
vinnuumhverfi bak við tjöld
þáttarins.
Það mætti segja að upp-
hafspunkturinn hafi verið í
mars, þegar samfélagsmiðla-
stjarnan Nikkie de Jager lýsti
upplifun sinni sem gestur í
The Ellen DeGeneres Show.
Hún sagði að Ellen hefði ekki
heilsað sér fyrir þáttinn og
að allir gestir þáttarins hefðu
fengið eigið klósett, en ekki
hún. Nikkie kom í þáttinn til
að ræða um opinberun sína
sem transkona, en þar til hún
greindi frá því hafði það verið
leyndarmál.
Eftir þetta fór boltinn að
rúlla. Sögur um starfshætti
hennar og karakter fóru á flug
um Twitter. Fyrrum starfs-
menn þáttarins fóru ófögrum
orðum um hegðun hennar.
Margir sögðu hana taka ein-
hvern einn starfsmann fyrir á
degi hverjum og nýju starfs-
fólki var ráðlagt að „láta sig
hafa það, því að á morgun
verði það einhver annar.“
Með hverri vikunni virtist
sífellt bætast í hóp þeirra sem
voru ósáttir við Ellen. Meðal
þeirra var fyrrum lífvörður
hennar, Tom Majerack, sem
sagði hegðun hennar hafa ver-
ið „niðrandi“ í garð hans.
Í júlí ræddi BuzzFeed News
við tíu fyrrverandi starfsmenn
og einn sem vann enn hjá
þættinum og sögðust þeir hafa
upplifað kynþáttafordóma á
tökustað, ekki fengið veikinda-
daga greidda og ekki þorað að
kvarta undan aðstæðum.
Í ágúst voru þrír hátt-
settir framleiðendur reknir
frá þættinum og sett var af
stað rannsókn til að komast
til botns í málinu. Í kjölfarið
bað Ellen starfsfólk sitt af-
sökunar og kjör starfsmanna
voru bætt.
Margt úr fortíð Ellenar kom
einnig aftur upp á yfirborðið,
meðal annars frægt viðtal
hennar við stórsöngkonuna
Mariuh Carey árið 2008. Ell-
en hálfpartinn neyddi söng-
konuna til að staðfesta að hún
væri ólétt, eitthvað sem hún
vildi ekki opinbera og viku
seinna missti Mariah fóstrið
og þurfti að tilkynna það í
kjölfarið. Mariah opnaði sig
um viðtalið alræmda við Vult-
ure í september.
„Mér fannst þetta ótrúlega
óþægilegt. Það er það eina
sem ég get sagt. Og ég átti
mjög erfitt með að glíma við
það sem kom á eftir,“ sagði
hún.
Nokkrar stjörnur stigu
fram henni til varnar og lýstu
stuðningi við hana. Þar á með-
al Kevin Hart, Katy Perry og
Steve Harvey.
Ellen sneri til baka á skjáinn
í september og byrjaði á því að
biðjast afsökunar. Það var í
fyrsta og eina skiptið sem hún
hefur tjáð sig opinberlega um
málið. Hún greindist með CO-
VID í byrjun desember.
Stórstjörnurnar
hneyksluðu
á árinu
Árið var sannkölluð rússíbanareið fyrir
alla, en fyrir Ellen DeGeneres, Harry og
Meghan, Britney Spears, Andrew prins
og Kanye West, var árið sérlega erfitt.
Þau voru á milli tannanna á fólki allt
árið og er óhætt að segja að þau séu
flækt í stærstu stjörnuskandala ársins.
Framhald á síðu 60 ➤
Kanye West
Þ að var erfitt ár fyrir rapparann Kanye West. Slúðurmiðlar sögðu
hjónaband hans og raun-
veruleikastjörnunnar Kim
Kardashian vera á hálum ís,
hann bauð sig fram til forseta
Bandaríkjana, en hlaut aðeins
um 60 þúsund atkvæði og svo
olli hann fjaðrafoki á Twitter.
Hann sakaði meðal annars
eiginkonu sína um að hafa
reynt að læsa hann inni. Fjöl-
miðlar drógu þá ályktun frá
Twitter-færslum hans að hann
væri að upplifa maníu á háu
stigi. Rapparinn hefur verið
opinn um geðræn vandamál
sín og að hann sé með geð-
hvarfasýki.
Kim birti í kjölfarið yfirlýs-
ingu á Instagram þar sem hún
bað fólk um að sýna Kanye og
fjölskyldu þeirra skilning á
þessum erfiðu tímum.
Samkvæmt slúðurmiðlum
vestanhafs lifa nú hjónin „sitt-
hvoru lífinu“.
Ellen DeGeners mætti aftur á skjáinn eftir nokkurra mánaða pásu. MYND/GETTY
Andrew Bretaprins og Jeffrey Epstein að ræða saman. MYND/GETTY
Hjónin á góðri stundu á Met Gala árið árið 2019. MYND/GETTY
58 FÓKUS 30. DESEMBER 2020 DV