Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Blaðsíða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Blaðsíða 64
Hrútur 21.03. – 19.04. Ljón 23.07. – 22.08. Naut 20.04. – 20.05. Meyja 23.08. – 22.09. Tvíburi 21.05. – 21.06. Krabbi 22.06. – 22.07. Ástin Það er lögð áhersla á sjálfsástina hjá hrútnum, þegar hann sinnir henni stigmagnast ástin alls staðar annars staðar eins og kraftmikill segull. Hrúturinn þarf að láta af harðri sjálfsgagnrýni og niðurrifi og einblína á styrk- leika sína, til að kynda kraftinn sem býr í brjósti hans. Framinn Það er mikil orka sem fylgir Hrútnum og ef það er ein- hver sem elskar áskoranir, þá er það hann. Hann er ótrúlega klár og fær viðurkenningu fyrir hæfileika sína á þessu ári. Þær áhættur sem þú hefur tekið í starfi munu borga sig margfalt. Fjármálin Það verður nokkuð mikill stöðugleiki í fjármálum og ekki eins mikil óvissa eins hefur verið. Þú ert smátt og smátt að byggja þig upp eftir líðandi ár, en það fer alls ekki illa um þig og þína. Heilsan Þín áhersla fyrir komandi ár er betri andleg líðan. Þú ert grjótharður einstaklingur sem hefur þurft að taka á ýmsu og loks býrðu þér til það andrými sem þú þarft til að huga betur að sálarmálum. Með því gengur allt betur upp hjá þér. Ástin Virkilega mikil ást og kærleikur hjá Ljóninu. Ef þú ert í sambandi þá blossar upp endurgoldin ást og ef þú ert einstæð/ur þá finnur þú þinn sálufélaga. Framinn Aldur er afstæður! Alveg sama hversu fullorðin við erum þá getum við stundum staldrað við og hugsað hvað vil ég verða þegar ég verð orðin stór? Þetta árið langar þig að vinna markvisst að því að finna drauma- starfið þar sem þú nýtur þín best. Fjármálin Þú munt fjárfesta í einhverju sem mun kalla á óvissu í byrjun, en mun svo skila þér góðum fjárhagslegum ávinningi. Þannig að ef einhver ný tækifæri koma til þín þá mæli ég með því að þú skoðir þau vel. Heilsan Það er mikil andleg heilun í kortunum fyrir komandi ár hjá þér. 2021 mun snúast um fyrirgefninguna og svo aðallega að sleppa öllu því sem heldur aftur af þér. Þig langar að byggja upp þínu andlegu hlið og verða sterkari og samkvæmari sjálfum þér. Ástin Svolítið eins og hjá Hrútnum, um leið og þú leggur áherslu á sjálfsástina mun öll önnur ást blómstra. Þú ert að finna þig á ný eftir ný hlutverk í lífinu og nýtur þess að gefa þér tíma í að uppfylla þínar langanir og þrár. Framinn Þú ert tilbúið til þess að taka áhættur og prófa þig áfram í verkefnum sem þig hefur lengi langað að láta verða af. Þessi skref munu fylla þig sjálfstrausti og opna nýjar dyr. Þú færð gott tilboð í febrúar. Fjármálin Þú ert afar nægjusamt en ert nú loks tilbúið til þess að þiggja meira og leggur meiri áherslu á að auka lífsgæði þín. Það kostar vinnu. Þig langar að eiga fallegt heimili og góðan bíl og ert tilbúið til þess að leggja mikið á þig til þess að uppfylla þá drauma á árinu. Gott hjá þér! Heilsan Margir munu á árinu leggja meiri áherslu á andlega heilsu. Þú kemur því til með að prófa óhefðbundnar leiðir í andlega heiminum sem munu hjálpa þér veru- lega mikið, með því að sjá heiminn í nýju ljósi og gera upp gömul mál. Daglegar göngur hjálpa þér að hreinsa hugann og endurnýja orku í janúar. Ástin Það sem er þér ofarlega í huga fyrir komandi ár er hreiðurgerð og að rækta þitt innra barn. Þú ert leið á því að taka lífinu of alvarlega og langar bara að fá að leika þér og hafa gaman. Komdu því til skila við þinn sálufélaga og leikið ykkur saman. Framinn Þú ert á hraðri uppleið, þú munt fá nýja vinnu eða ein- hverja stöðu- og launahækkun í starfi. Vertu ófeimin að gera kröfur því þú ert eftirsótt í því sem þú sérhæfir þig í. Fjármálin Ég sé mikla hreiðurgerð þannig að líklegast er heimilis- fjárfesting í kortunum hjá þér. Sú fjárfesting verður þó praktísk og hógvær, sem er alveg í þínum anda. Heilsan Þú byrjar árið með pompi og prakt. Áramótaheitið þitt gerir þér gott og þú stendur við það. Þú hefur árið með góðri rútínu sem þróast í breyttan og betri lífsstíl. Mikil áhersla á að huga vel að heilsunni og kveðja slæma siði. Ástin Ástin blómstrar og þér líður vel með þínu fólki. Þú munt opna þig meira en venjulega og ert tilbúinn til þess að ræða tilfinningar þínar. Þessi mjúka, viðkvæma hlið fer þér vel og hjálpar þér að sleppa fortíðinni og takast á við betri tíma. Framinn Tvíburinn fer á flug með hugmyndir inn í árið. Þú nærð varla fókus, það er svo margt sem þig langar að verði að veruleika. Lítil gæluverkefni munu vinda upp á sig og verða mögulega að nýjum rekstri. Fjármálin Þú ert heppinn að vera fjölhæfur því þú þarft stundum að púsla saman til þess að ná endum saman. En þú ert á réttri braut með að ná undir þig styrkum fótum. Ég sé fyrir mér stöðuhækkun um mitt árið. Heilsan Þú munt hafa meiri áhuga á því að styrkja innri kjarna. Íþróttir eins og pílates, jóga, Thai Chi og þess háttar styrktaræfingar vekja áhuga þinn og munu að- stoða þig við einbeitingu. Leggðu áherslu á að styrkja bak og kvið. Ástin Krabbinn heldur áfram að gefa af sér og ástin endurspeglast. Núverandi sambönd verða dýpri og fallegri því það er svo magnað að vera berskjaldaður því það gefur öðrum styrk. Framinn Sumir þurfa að hafa aðeins meira fyrir hlutunum en aðrir. En við trúum því innilega að það sé ekki meira á mann lagt en maður í raun ræður við. Það sem drepur okkur ekki gerir okkur svo sannarlega sterkari. Þú sérð ekki fljóta framför í byrjun árs en ekki örvænta, það verða vegleg verðlaun fyrir þína þolinmæði og dugnað. Fjármálin Krabbinn er bara þannig gerður að hann gerir allt sem hann þarf til þess að láta hlutina ganga upp. Hann hefur vissulega þurft að leggja mikið á sig á árinu og vera útsjónarsamur. Hans þrautseigja mun skila sér vel og tæki- færin laðast að honum. Heilsan Tilfinningar eiga það til að festast í taugakerfinu þannig að eftir mikið andlegt álag þarf að gera upp þessar tilfinningar til þess að ná verkjum sem eru hér og þar í líkamanum. Góð blanda af tímum hjá sálfræðingi og sjúkraþjálfara mun aðstoða þig við að koma líkama og sál í gott jafnvægi. 10. janúar Fullt tungl 24. janúar Nýtt tungl 9. febrúar Fullt ofurtungl 23. febrúar Nýtt tungl 9. mars Fullt ofurtungl 20. mars Vorjafndægur 24. mars Nýtt tungl 8. apríl Fullt ofurtungl 5. júní Fullt tungl Tunglmyrkvi - hálfskuggi 20. júní Sumarsólstöður 23. apríl Nýtt tungl 7. maí Fullt ofurtungl 22. maí Nýtt tungl ÁRAMÓTA spáin 64 FÓKUS 30. DESEMER 2020 DV
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.