Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Page 68
68 SPORT 433
UPPGJÖR Á
FURÐULEGU
FÓTBOLTAÁRI
30. DESEMBER 2020 DV
BENEDIKT BÓAS HINRIKSSON
BLAÐAMAÐUR Á FRÉTTABLAÐINU
„Valur 2020 – Heimir Guðjónsson kom í byrjun tíma-
bilsins til okkar í hlaðvarp Vals, Vængjum þandir, og
sigraði hjörtu og hug. Hann kveikti þennan neista
sem hafði horfið árinu áður. Eftir brösuga byrjun kom
sigurinn gegn Kópavogspiltum og eftir það varð þetta
aldrei spurning. KR sigurinn úti, 4-5 var einn af leikjum
sumarsins og fyrri hálfleikurinn gegn Stjörnunni, hljóta
að teljast til bestu 45 mín. sem íslenskt lið hefur spilað.
Það var ótrúlegt að horfa upp á og hlusta á Henry Birgi
í lýsingunni. Hann skilaði því heim í stofu hvað þetta
var ótrúlegt. Vonandi verður þessi fyrri hálfleikur
gefinn út. Sjóðheitar 45 mín. í ísskápnum. Það yrði
bestseller.“
VÍÐIR SIGURÐSSON
BLAÐAMAÐUR Á
MORGUNBLAÐINU
„Frammistaða Söru Bjarkar Gunn-
arsdóttur er það sem stendur
upp úr á knattspyrnuárinu 2020.
Þýskur meistari, þýskur bikar-
meistari, franskur bikarmeistari
og loks Evrópumeistari með Lyon,
þar sem hún skoraði í úrslitaleik
Meistaradeildarinnar gegn sínu
gamla félagi, Wolfsburg. Sara
vann með þessu einstakt afrek
í knattspyrnusögu Íslands, og á
þessu sama ári fór hún fyrir ís-
lenska landsliðinu sem tryggði
sér sæti í lokakeppni EM í fjórða
skiptið í röð.“
MAGNÚS MÁR EINARSSON
RITSTJÓRI FÓTBOLTA.NET
„Á einkennilegu fótboltaári stóð
það upp úr fyrir mér að sjá Liver-
pool verða enskan meistara eftir
30 ára þrautagöngu. Það að liðið
hafi tryggt titilinn á sumarkvöldi
í júní, þar sem liðið var ekki einu
sinni að spila, lýsti því ágætlega
hversu mikið rugl þetta fótboltaár
var. Liverpool tók líka á móti titl-
inum án áhorfenda á Anfield. 30
ára bið eftir titlinum og svo var
ekki hægt að fagna honum. Bilun!
Vonandi fáum við eðlilegri mót,
áhorfendafjölda og meiri stemn-
ingu í fótboltanum innanlands sem
utan árið 2021.“
INGVI ÞÓR SÆMUNDSSON
BLAÐAMAÐUR Á VÍSI.IS
„Þegar Sara Björk Gunnarsdóttir
varð fyrst íslenskra kvenna til að
verða Evrópumeistari og gull-
tryggði sigur Lyon á gamla liðinu
sínu, Wolfsburg, í úrslitaleik
Meistaradeildarinnar. Árið 2020
hjá Söru er eitt besta ár íslensks
íþróttamanns í sögunni. Að fara
úr næstbesta liði heims í besta lið
heims og vinna allt sem hægt er
að vinna. Og bæta leikjametið hjá
kvennalandsliðinu og hjálpa því
að komast á fjórða Evrópumótið
í röð. Það er varla hægt að gera
mikið betur.“
EVA BJÖRK BENEDIKTSDÓTTIR ÞRÓTTAFRÉTTAKONA Á RÚV
„Það sem stendur helst upp úr, eftir þetta
annars stórundarlega ár, er að kvennalands-
liðið hafi komist á fjórða stórmótið í röð. Mó-
mentið fékk kannski ekki að njóta sín jafn vel
og ella, þar sem þær fara inn eftir að úrslit
í öðrum leikjum voru ljós, en ekki beint eftir
sinn sigur gegn Ungverjum. Virkilega gaman
að sjá hvað yngri og reynsluminni leikmenn
voru að fá stór hlutverk. Þær hafa líka góðan
tíma til að aðlagast enn betur þar sem það er
enn töluvert langt í þetta mót og ég hef fulla
trú á þessu liði á EM í Englandi. Líka að U21
karlaliðið hafi sömuleiðis komist á EM – stóðu
sig vel í undankeppninni og framtíðin er aug-
ljóslega björt bæði karla- og kvennamegin.
Það sem hins vegar situr mest í manni er þessi
martröð sem leikur karlalandsliðsins gegn
Ungverjalandi í úrslitunum um EM-sætið var.
Ég man ekki eftir því að hafa verið jafn slegin
yfir fótbolta og þegar við fengum seinna mark-
ið í andlitið í uppbótartíma. Ég held að stór
hluti þjóðarinnar hafi ekki sofið vel þá nótt.“
KRISTJANA ARNARSDÓTTIR ÍÞRÓTTAFRÉTTAKONA Á RÚV
„Þrátt fyrir afar sérstakt fótboltaár er þó
hægt að taka til mörg frábær afrek. Liverpool
varð loksins Englandsmeistari eftir margra
áratuga bið, U-21 árs landslið karla komst á
EM og kvennalandsliðið sömuleiðis. Það sem
stóð upp úr hjá mér á árinu er árangur okkar
bestu fótboltakvenna. Leikmenn kvenna-
landsliðsins hafa tekið stórstígum framförum
og þá sér í lagi ungu leikmennirnir. Sveindís
Jane Jónsdóttir sýndi það til dæmis á árinu að
hún er okkar framtíðarstjarna og Alexandra
Jóhannsdóttir spilaði eins og hún hefði verið
í mörg ár í A-landsliðinu. Ingibjörg Sigurðar-
dóttir var valin besti leikmaðurinn í Noregi
og Glódís Perla Viggósdóttir átti enn eitt frá-
bært árið í Svíþjóð. Áhuginn á kvennaknatt-
spyrnunni er alltaf að aukast og samhliða því
eru stelpurnar okkar að fá tækifæri í atvinnu-
mennsku. Sara Björk Gunnarsdóttir sýndi það
svo í enn eitt skiptið að hún er ein besta fót-
boltakona heims. Að vinna Meistaradeildina
með Lyon, sem er auðvitað eitt besta félagslið
heims, er eitthvað sem allar fótboltastelpur
dreymir um. Ég held allavega að þjóðin geti
farið að setja sig í gírinn fyrir EM 2022, þar
eiga okkar konur eftir að gera góða hluti.“
HÖRÐUR MAGNÚSSON KNATTSPYRNULÝSANDI HJÁ VIAPLAY
„Í mínum huga gnæfir yfir á knattspyrnuárinu
2020 Englandsmeistaratitill Liverpool. Að
Jürg en Klopp skyldi stýra liðinu til sigurs eftir
30 ár, er eitt af mestu afrekum síðustu áratuga.
Pressan sem hefur verið á félaginu á þessum
tíma jókst og jókst. Liðið hafði á þessum tíma
unnið fullt af öðrum titlum m.a. Meistara-
deildina tvívegis og leikið í fjórum úrslitaleikj-
um í Meistaradeildinni. En þetta var sá sem
vantaði. Þetta var líka gert með slíkum stæl
og yfirburðum að annað eins hefur ekki sést.
Þetta lið er eitt það sterkasta í sögu félags-
ins, ef ekki það sterkasta. Blanda af ungum
leikmönnum ásamt tiltölulega óþekktum eins
og Andy Robertson. Klopp hefur byggt þetta
upp á snilldarlegan hátt. Alls ekki með mesta
fjármagnið, langt í frá. Einstakt afrek og liðið
mun halda áfram á sömu braut á næstu árum.“
COVID-19 veiran hefur haft gríðarleg
áhrif á íþróttalíf í heiminum þetta árið.
Það tók tíma að skipuleggja leikárið upp
á nýtt með tilliti til veirunnar, áður en
boltinn gat tekið að rúlla á ný. Þegar
loks kom grænt ljós frá yfirvöldum var
flautað til leiks með breyttu sniði og án
áhorfenda. Boltasérfræðingar landsins
völdu það sem þeim fannst standa upp
úr í fótboltanum á árinu.
MYND/AÐSEND MYND/AÐSEND