Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2020, Page 72
30. desember 2020 | 51. tbl. | 111. árg.
dv.is/frettaskot askrift@dv.is 512 7000
SAND KORN
MYND/ANTON BRINK
LOKI
Gleðilegt
ár, gæskur!
Skiptidíll
Mikið er skrafað við kaffi-
vélar landsins um að Katrín
Jakobsdóttir forsætisráð-
herra hafi nú aukið völd sín
innan stjórnarinnar til muna
með því að gera ekki kröfu
um að stjórnarsamstarfi
meirihlutans verði slitið í
kjölfar Ásmundarsalarheim-
sóknar Bjarna Ben fjármála-
ráðherra. Vilja þeir sem
þekkja til meina að Katrín
sjái sér leik á borði með því
að kalla ekki eftir afsögn
Bjarna. Slík vinahót gætu
rýmkað til fyrir Hálendis-
þjóðgarðsumræðu Vinstri
grænna og stíflað söluna á
Íslandsbanka.
MYND/ERNIR
Stjörnubörn 2021
Fræga fólkið virðist ætla að
fjölga sér fallega á komandi
ári. Sólmundur Hólm og
Viktoría Hermannsdóttir
eiga von á sínu fimmta barni.
Gylfi Þór Sigurðsson fót-
boltamaður og Alexandra
Ívarsdóttir kona hans eiga
von á sínu fyrsta barni. Sjón-
varpshetjan Auðunn Blöndal
og Rakel Þormarsdóttir eiga
von á sínu öðru barni. Einka-
þjálfarinn Egill Einarsson,
betur þekktur sem Gillz, á
von á sínu öðru barni með
sambýliskonu sinni Gurrý
Jónsdóttur. Jónas Már
Torfason, sonur Ölmu Möller
landlæknis, og kærasta hans
Andrea Gestsdóttir eiga von
á tvíburum á næsta ári en
það eru fyrstu barnabörn
Ölmu Möller. n
Um leið og við óskum ykkur gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári, þökkum við viðskiptin
á árinu sem er að líða. Gleðilega hátíð.
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut