Sveitarstjórnarmál - 2020, Blaðsíða 8
SVEITARSTJÓRNARMÁL
8
80. árgangur
Sveitarstjórnarmála
„Sveitarstjórnarmálin
eru hvort tveggja í senn,
einn fjölbreyttasti og
yfirgripsmesti þátturinn í
opinberum málum hverrar
menningarþjóðar.
Vald það og starfræksla
sú, sem að lögum er lagt í
hendur sveitarstjórnanna,
er mikið og vandmeðfarið.“
Þetta eru inngangsorðin
í fyrsta leiðara
Sveitarstjórnarmála sem
Jónas Guðmundsson skrifaði
þann 1. september 1941.
Jónas, sem var einn helsti frumkvöðull
að stofnun Sambands íslenskra
sveitarfélaga og fyrsti formaður þeirra,
lýsir þeirri von sinni í leiðara tímaritsins
að „innan skamms megi takast að koma á
fót félagi íslenzkra sveitarstjórnarmanna,
sem þá að sjálfsögðu tæki við útgáfu
ritsins og setti því ritstjórn, en sú er
venjan um svipuð rit annars staðar, þar
sem ég hef haft spurnir af.“
Í lok leiðarans segir Jónas „Ég legg svo
framtíð þessa rits í hendur íslenzkra
sveitarstjórnarmanna í hreppum og
kaupstöðum landsins. Ég er í engum efa
um, að þeim muni takast að gera það að
tengilið sín í milli í öllu því, sem mestu
máli skiptir í hinu þýðingarmikla starfi
þeirra.“
Það má segja að Jónas hafi lagt góðan
grunn að útgáfu tímaritsins því í ár
gefur Samband íslenskra sveitarfélaga
út 80. árgang tímaritsins og er tímaritið