Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 2020, Blaðsíða 21

Sveitarstjórnarmál - 2020, Blaðsíða 21
SVEITARSTJÓRNARMÁL 21 Voru ekki viðbúin eldgosi Vegna þessarar atburðarásar var lýst yfir óvissustigi almannavarna en það er gert þegar grunur vaknar um að eitthvað sé að gerast af náttúru- eða mannavöldum sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar sé ógnað. Land hélt áfram að rísa dagana eftir að tíðindin bárust og jörð skalf ákaft. Talsverður ótti greip um sig meðal hluta íbúanna og segir Fannar að frá upphafi hafi verið lögð áhersla á að upplýsa íbúa bæjarins um stöðu og framvindu mála og hugsanleg viðbrögð ef til tíðinda skyldi draga. „Þetta reyndi verulega á sveitarfélagið og íbúa þess. Það kom í ljós að við vorum ekki nægilega vel búin undir að bregðast við náttúruvá af þessu tagi. Við vorum með viðbragðsáætlanir fyrir sveitarfélagið og stofnanir þess vegna hættu á eldsvoðum, flóðum og fleiru en ekki vegna eldgosa eða jarðskjálfta. Það var gert ráð fyrir kafla um eldgos í áætlunum fyrir svæðið en sá kafli hafði einfaldlega ekki verið skrifaður nema að litlu leyti. Því hófst strax mikil vinna við gerð og endurskoðun allra viðbragðsáætlana. Það reyndist vera mikið verkefni sem við unnum í samráði við Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, lögreglustjórann á Suðurnesjum, vísindasamfélagið, Veðurstofuna og viðbragðsaðila, bæði hér heima í Grindavík og á landsvísu. Öll vinna okkar hjá sveitarfélaginu beindist að þessu dagana eftir 26. janúar,“ segir Fannar. Fjölsóttur íbúafundur Þann 27. janúar var boðað til íbúafundar í íþróttahúsinu til þess að upplýsa bæjarbúa um stöðu mála. Fundurinn var geysilega fjölsóttur. Um 1.200- 1.400 manns komu til fundarins en tveir aðilar streymdu honum jafnframt á netinu og fékk útsendingin gríðarlega mikið áhorf. Fannar segir að um 90.000 manns hafi fylgst með útsendingunni og skoðað á YouTube. Berlega kom í ljós í fréttum fjölmiðla að sumir íbúanna voru óttaslegnir og því mikilvægt, að sögn Fannars, að vanda alla upplýsingagjöf. „Fundurinn heppnaðist vel. Við og Það skiptir gríðarlega miklu máli við aðstæður sem þessar að veita góðar upplýsingar og raunar það eina sem er í okkar valdi á slíkum stundum, auk þess að fara yfir allan viðbúnað.” íbúarnir fengum þar góðar og gagnlegar upplýsingar frá sérfræðingum, meðal annars fólki frá Veðurstofu Íslands, Jarðvísindastofnun Háskólans, Landsbjörg og lögreglunni. Það skiptir gríðarlega miklu máli við aðstæður sem þessar að veita góðar upplýsingar og raunar það eina sem er í okkar valdi á slíkum stundum, auk þess að fara yfir allan viðbúnað. Það síðarnefnda var meginverkefni okkar á næstu dögum. Við kölluðum saman forstöðumenn og deildarstjóra allra stofnana sveitarfélagsins og funduðum stíft. Allt var gert til að flýta fyrir gerð viðbragðs- og rýmingaráætlana fyrir stofnanir sveitarfélagsins. Þær voru að mörgu leyti ágætlega búnar undir ýmiss konar vá en ekki þær aðstæður sem þarna voru uppi. Við fórum yfir Vinabæjarsamningur staðfestur við Uniejów í Póllandi í nóvember 2019. Á fimmta hundrað Pólverjar búa í Grindavík og þurfti að hlúa sérstaklega að þeim.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.