Sveitarstjórnarmál - 2020, Blaðsíða 20
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Grindvíkingar vöknuðu upp við
vondan draum
20
Garðar H. Guðjónsson ræðir við Fannar Jónasson, bæjarstjóra
í Grindavík, um viðbrögðin við landrisi, jarðskjálftum og
hugsanlegri hættu á eldgosi í nágrenni bæjarins
Þegar Grindvíkingar tóku á
sig náðir eftir vel heppnað
þorrablót bæjarbúa aðfaranótt
sunnudagsins 26. janúar
síðastliðinn voru þeir grunlausir
um að bærinn þeirra yrði á
allra vörum daginn eftir og efni
allra helstu frétta í fjölmiðlum.
Þá gerðu vísindamenn
opinbert að dagana á undan
hefði mælst óvenjulega mikið
landris við fjallið Þorbjörn og
ekki þótti útilokað að orðið
hefði kvikusöfnun sem gæti
leitt til eldsumbrota í nágrenni
Grindavíkur.
Allar viðvörunarbjöllur hófu að klingja
og almannavarnir, vísindamenn og
viðbragðsaðilar fóru í viðbragðsstöðu.
Fannar Jónasson, bæjarstjóri
Grindavíkurbæjar, var ræstur út að
morgni sunnudagsins.
„Þarna hófst alveg ótrúleg atburðarás
sem knúði okkur til að bregðast við
með ýmsum hætti, ekki síst með
yfirferð og endurskoðun allra viðbragðs-
og rýmingaráætlana og mikilli og
stöðugri upplýsingagjöf til íbúa. Ég og
slökkviliðsstjóri vorum kallaðir til fyrir
klukkan níu á sunnudagsmorgninum
og beðnir að mæta strax á fund í
samhæfingarmiðstöð almannavarna
í Skógarhlíðinni þar sem saman
var kominn um 25 manna hópur frá
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra,
vísindamenn Veðurstofunnar,
björgunarsveitarfólk og margir fleiri.
Okkur var greint frá því að undanfarna
daga, eða frá 21. janúar, hefði mælst
greinilegt og óvenju mikið landris fyrir
vestan Þorbjörn í átt að Eldvörpum,
sem er gígaröð utar á Reykjanesinu.
Þegar leið á daginn fjölgaði fólki í
Skógarhlíðinni og voru þar staddir um
100 manns meira og minna allan daginn,“
segir Fannar í samtali við blaðamann
Sveitarstjórnarmála.