Sveitarstjórnarmál - 2020, Blaðsíða 38
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Verkefnið um Heilsueflandi vinnustaði
byggir á sömu hugmyndafræði og
verkefni embættis landlæknis um
Heilsueflandi samfélag og Heilsueflandi
leik-, grunn-, og framhaldsskóla.
Um er að ræða spennandi verkefni
sem allir starfsmenn vinnustaðarins
geta sameinast um til betri heilsu og
vellíðunar. Á tilraunatímabilinu stendur
þeim stendur til boða margvísleg fræðsla
og stuðningur.
Markmið verkefnisins er að stuðla
að betri heilsu og vellíðan starfsfólks
á vinnustöðum, fyrirbyggja kulnun
og minnka brottfall af vinnumarkaði.
Verkefnið skiptist að megin atriðum til í
átta flokka; stjórnunarhætti, starfshætti,
vinnuumhverfi, vellíðan, hreyfingu og
útiveru, hollt mataræði, umhverfi og
áfengi, tóbak og önnur vímuefni.
Samband íslenskra sveitarfélaga er
heilsueflandi vinnustaður
38
Samband íslenskra sveitarfélaga er einn 10 vinnustaða sem valinn var til að taka þátt í tilraunaverkefni á
vegum embættis landlæknis, Vinnueftirlits ríkisins og VIRK - starfsendurhæfingasjóði
Stofnaður hefur verið stýrihópur innan
sambandsins þar sem fulltrúar flestra
sviða eiga sæti ásamt fulltrúa stjórnenda.
Stýrihópurinn mun skipuleggja og velja
áhersluþætti úr markmiðunum átta
sem nefnd voru hér að framan. Lögð er
áhersla á að velja ekki of mörg viðmið
í byrjun til að vinna með en fylgja þeim
viðmiðum sem valin eru þeim mun betur
eftir.
Í verkefninu er lögð áhersla á ólíkar
þarfir starfsfólks og að taka þurfi tillit til
menningar, aldurs, kyns, líkamsgerðar,
ólíkra starfa o.s.frv. Áhersla er á að
þau viðmið sem valin eru nái til allra á
vinnustaðnum. Þátttaka í verkefninu er
valfrjáls innan vinnustaðarins.
Valgerður Rún
Benediktsdóttir nýr
lögfræðingur hjá
sambandinu
Valgerður Rún Benediktsdóttir
er komin til starfa á lögfræði- og
velferðarsvið Sambands íslenskra
sveitarfélaga. Valgerður Rún er
lögfræðingur frá Háskóla Íslands. Hún
starfaði áður sem lögfræðingur og
mannauðsstjóri Menntamálastofnunar
og þar áður sem skrifstofustjóri
skrifstofu viðskipta, nýsköpunar
og ferðamála í atvinnuvega-
og nýsköpunarráðuneytinu.
Valgerður Rún hefur m.a. setið í
stjórn Samkeppniseftirlitsins og
Fjármálaeftirlitsins, verið formaður
stjórnar Flugþróunarsjóðs og setið
í fjölda nefnda og ráða á vegum
Stjórnarráðs Íslands.”
Valgerður Rún Benediktsdóttir
lögfræðingur á lögfræði- og velferðarsviði
sambandsins.