Sveitarstjórnarmál - 2020, Blaðsíða 19
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Landsáætlun
í skógrækt...
• skal unnin af sjö manna verkefnisstjórn sem skilar tillögu til ráðherra
• skal skipuð m.a. einum fulltrúa tilnefndum af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
• verður stefnumótandi áætlun til tíu ára, uppfærð eigi sjaldnar en á fimm ára fresti
• verður útfærð með landshlutaáætlunum í samráði við hagsmunaaðila
• er vettvangur til samráðs um skóga, skógvernd og skógrækt í landinu
• tekur tillit til náttúruverndar, minjaverndar, landslags og fleiri þátta
• verður kynnt opinberlega í ferlinu og öllum gefið færi á athugasemdum
STÖNDUM SAMAN AÐ MÓTUN LANDS- OG LANDSHLUTAÁÆTLANA Í SKÓGRÆKT!
Fylgstu með á skogur.is
Landshlutaáætlun í rit fjármálaráðstefnu SÍS.indd 1 3.3.2020 15:24:57
• eftirliti með ástandi og nýtingu skóga
• eldvörnum og öryggismálum
Tengsl við aðrar áætlanir
Skógræktin skal síðan í samráði við
hlutaðeigandi sveitarfélög, skógarbændur
og aðra hagsmunaaðila vinna
landshlutaáætlanir, þar sem stefnan
sem fram kemur í landsáætluninni er
útfærð nánar. Í landshlutaáætlunum skal
tilgreina skóga og skógræktarsvæði,
aðrar áherslur í skógrækt sem fram koma
í skipulagsáætlunum og lagasetningu
og hvernig samstarfi við sveitarfélög um
skógrækt verði háttað.
Tengsl skógræktar við aðrar áætlanir
og stefnur ríkis og sveitarfélaga eru
margvísleg. Efst á baugi er áætlun
íslenska ríkisins um kolefnishlutleysi
árið 2040. Það er augljóst varðandi
umhverfismálin að sveitarfélögin verða að
setja sér skýr markmið um annars vegar
samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda
og hins vegar aukna bindingu kolefnis.
Kolefnisbinding í skógum er ein af
mörgum aðgerðum til að verjast
loftslagsbreytingum og bæta ræktarlandið
í leiðinni. Vannýtt tækifæri liggja í hvers
kyns landbúnaði, hvort sem það er
í kvikfjárrækt, ræktun nytjaplantna,
skógrækt eða öðrum búgreinum.
Mikilvægt er að ekki séu sett svo ströng
skilyrði um skógrækt í sveitarfélögum
að þau fæli landeigendur frá því að
nýta tækifærin sem í skógrækt felast.
Skógrækt á landbúnaðarlandi er fullgild
búgrein. Ákvörðun um skógrækt á tilteknu
landi er ekki ákvörðun um aldur og ævi.
Nytjaskógrækt getur hentað tímabundið
á tilteknum landskika en skóginum má
breyta í akurlendi eða tún í framtíðinni. Til
dæmis má rækta ösp í 25 ár, uppskera
þá iðnvið og jafnvel smíðavið en skipta
að því búnu yfir í annars konar ræktun.
Með réttum tækjum má fjarlægja rætur
og eftir stendur frjósamur jarðvegur sem
skógurinn hefur skapað.
Samráð vegna landsáætlunar og
landshlutaáætlunar
Við mótun landsáætlunar og
landshlutaáætlunar verður haft beint
samráð við alla hlutaðeigandi með
sameiginlegum fundum og/eða skriflega.
Búist er við því að drög að landsáætlun
verði tilbúin og auglýst til umsagnar
um mitt næsta sumar. Að öllu óbreyttu
mun ráðherra samþykkja landsáætlun í
skógrækt fyrir árslok 2020.