Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 2020, Qupperneq 19

Sveitarstjórnarmál - 2020, Qupperneq 19
SVEITARSTJÓRNARMÁL Landsáætlun í skógrækt... • skal unnin af sjö manna verkefnisstjórn sem skilar tillögu til ráðherra • skal skipuð m.a. einum fulltrúa tilnefndum af Sambandi íslenskra sveitarfélaga • verður stefnumótandi áætlun til tíu ára, uppfærð eigi sjaldnar en á fimm ára fresti • verður útfærð með landshlutaáætlunum í samráði við hagsmunaaðila • er vettvangur til samráðs um skóga, skógvernd og skógrækt í landinu • tekur tillit til náttúruverndar, minjaverndar, landslags og fleiri þátta • verður kynnt opinberlega í ferlinu og öllum gefið færi á athugasemdum STÖNDUM SAMAN AÐ MÓTUN LANDS- OG LANDSHLUTAÁÆTLANA Í SKÓGRÆKT! Fylgstu með á skogur.is Landshlutaáætlun í rit fjármálaráðstefnu SÍS.indd 1 3.3.2020 15:24:57 • eftirliti með ástandi og nýtingu skóga • eldvörnum og öryggismálum Tengsl við aðrar áætlanir Skógræktin skal síðan í samráði við hlutaðeigandi sveitarfélög, skógarbændur og aðra hagsmunaaðila vinna landshlutaáætlanir, þar sem stefnan sem fram kemur í landsáætluninni er útfærð nánar. Í landshlutaáætlunum skal tilgreina skóga og skógræktarsvæði, aðrar áherslur í skógrækt sem fram koma í skipulagsáætlunum og lagasetningu og hvernig samstarfi við sveitarfélög um skógrækt verði háttað. Tengsl skógræktar við aðrar áætlanir og stefnur ríkis og sveitarfélaga eru margvísleg. Efst á baugi er áætlun íslenska ríkisins um kolefnishlutleysi árið 2040. Það er augljóst varðandi umhverfismálin að sveitarfélögin verða að setja sér skýr markmið um annars vegar samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og hins vegar aukna bindingu kolefnis. Kolefnisbinding í skógum er ein af mörgum aðgerðum til að verjast loftslagsbreytingum og bæta ræktarlandið í leiðinni. Vannýtt tækifæri liggja í hvers kyns landbúnaði, hvort sem það er í kvikfjárrækt, ræktun nytjaplantna, skógrækt eða öðrum búgreinum. Mikilvægt er að ekki séu sett svo ströng skilyrði um skógrækt í sveitarfélögum að þau fæli landeigendur frá því að nýta tækifærin sem í skógrækt felast. Skógrækt á landbúnaðarlandi er fullgild búgrein. Ákvörðun um skógrækt á tilteknu landi er ekki ákvörðun um aldur og ævi. Nytjaskógrækt getur hentað tímabundið á tilteknum landskika en skóginum má breyta í akurlendi eða tún í framtíðinni. Til dæmis má rækta ösp í 25 ár, uppskera þá iðnvið og jafnvel smíðavið en skipta að því búnu yfir í annars konar ræktun. Með réttum tækjum má fjarlægja rætur og eftir stendur frjósamur jarðvegur sem skógurinn hefur skapað. Samráð vegna landsáætlunar og landshlutaáætlunar Við mótun landsáætlunar og landshlutaáætlunar verður haft beint samráð við alla hlutaðeigandi með sameiginlegum fundum og/eða skriflega. Búist er við því að drög að landsáætlun verði tilbúin og auglýst til umsagnar um mitt næsta sumar. Að öllu óbreyttu mun ráðherra samþykkja landsáætlun í skógrækt fyrir árslok 2020.

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.