Sveitarstjórnarmál - 2020, Qupperneq 11
SVEITARSTJÓRNARMÁL
11
Auk flækjustigs gagnvart ákvarðanatöku sem snýr að verkefninu
sjálfu er innra skipulag Strætó einnig flókið og þurfa handhafar
eigendavaldsins meðal annars að bera allar stærri ákvarðanir
um starfsemi Strætó undir sveitarstjórn sína. Skipulagið má sjá
á Mynd 2 sem sýnir hina flóknu ábyrgðakeðju innan Strætó.
Hafa markmiðin tvö náðst?
Til þess að hægt sé að samnýta ferðir farþega sem búa í
sitthvoru sveitarfélaginu þurfa þau sveitarfélög að vera í
samstarfi um þjónustuna. Íbúar Kópavogs geta ekki samnýtt
ferðir með öðrum þar sem Kópavogsbær er ekki aðili að
verkefninu. Með brotthvarfi Hafnarfjarðar munu íbúar þeirra
ekki geta samnýtt ferðir með öðrum. Þetta markmið er því að
hluta til uppfyllt. Varðandi fjárhagslega hagræðingu er erfiðara
að segja til um. Hafnarfjörður hefur sagt sig frá verkefninu þar
sem kostnaður jókst við þátttöku í verkefninu og telja fulltrúar
bæjarins sig geta rekið þjónustuna á hagkvæmari hátt án
samreksturs. Kostnaður sveitarfélaganna hefur vissulega
aukist en einnig hefur ýmislegt breyst með nýju verkefni, svo
sem þjónustustigið hækkað ásamt því að nýir bílar voru teknir
í notkun sem uppfylltu nýja öryggisstaðla. Erfitt er því að meta
hið raunverulega fjárhagslega hagræði. Líklega verðum við að
bíða og sjá hvernig kostnaður Hafnarfjarðar við þjónustuna muni
verða í framtíðinni til að segja til um það.
Heimildir:
Bovens, M. (2007). Public accountability. Í E. Ferlie, L.E.
Lynn Jr. og C. Pollitt (Ritstj.), The Oxford Handbook of Public
Management (bls. 182-208). Oxford: University Press.
Kettl., D.F. (2006). Managing boundaries in American
administration: The collaboration imperative. Public
Administration Review, 66, 10-19.
Thompson, D.F. (2017). Designing responsibility: The problem
of many hands in complex organizations. Í J. van den Hoven,
S. Miller og T. Pogge (Ritstj.), The Design Turn in Applied Ethics
(bls. 32-56). Oxford: University Press.
Sveitarstjórnir á
höfuðborgarsvæðinu
Framkvæmdastjórn
Strætó bs.
Eigendur Strætó bs. –sveit-
arfélög á
höfuðborgarsvæðinu
Stjórn Strætó bs. –
kjörnir fulltrúar frá
sveitarfélögum
Ber ákvarðanir
undir
Hefur
vald yfi r
Setur
stefnu
Ber ákvarðanir
undir
Hefur
vald yfi r
Ber ákvarðanir
undir
Hefur
vald yfi r
Setur
stefnu
Framkvæmir Ber ábyrgð gagnvart
Mynd 2
Ein heild í þína þágu
LÁTTU OKKUR SJÁ UM HÝSINGU
OG REKSTUR TÖLVUKERFA
FYRIR ÞITT FYRIRTÆKI
www.trs.is - 480-3300