Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 2020, Síða 36

Sveitarstjórnarmál - 2020, Síða 36
SVEITARSTJÓRNARMÁL 36 hvers kyns þjónusta við um 25.000 íbúa og fyrirtæki á Suðurlandi og svo má ekki gleyma því að á sumrin eru allt að 25.000 manns í sumarhúsabyggðunum hér í grennd. Hér eru allar helstu náttúruperlur í skotfæri og umferð um bæinn er gríðarlega mikil.“ Það mun hins vegar breytast í fyllingu tímans því Vegagerðin undirbýr nú flutning þjóðvegar 1 norður fyrir bæinn og byggingu nýrrar brúar yfir Ölfusá norðaustan við Selfoss. Tómas Ellert hefur engar áhyggjur af því að þessar breytingar muni bitna á ferðaþjónustu eða annarri þjónustustarfsemi á Selfossi. „Þvert á móti teljum við að þessar framkvæmdir skapi ný tækifæri fyrir okkur við þróun bæjarins og að Selfoss verði áfram mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn og aðra. Það hjálpar einnig til að nú erum við Selfyssingar loksins komnir á kortið, það er veðurkortið, en hér var sett upp sjálfvirk veðurathugunarstöð í samstarfi við Veðurstofu Íslands á síðasta ári og í kjölfarið upplifðum við eitt besta sumarveður í manna minnum,“ segir hann. Nýi miðbærinn laðar að Tómas Ellert telur að nýi miðbærinn sem nú er verið að reisa í gömlum stíl muni hafa mikið aðdráttarafl. Þar er meðal annars verið að endurbyggja gamla mjólkurbúið og er fyrirhugað að þar verði skyrsafn, sem Tómas Ellert telur að muni freista margra, enda skyr orðið alþjóðlegt vörumerki sem á sinn heimastað á Selfossi. Hann segist hafa orðið var við áhuga margra verslunareigenda á höfuðborgarsvæðinu á að flytja starfsemi sína í nýja miðbæinn. Hann bendir á að þar sem nýja brúin á að rísa hefur þegar risið öflugur verslunar- og þjónustukjarni þar sem stórfyrirtæki á borð við Byko, Bónus, Vínbúðina og fleiri hafa komið sér fyrir. „Þegar umferðin flyst norður fyrir bæinn skapast alls konar tækifæri fyrir okkur. Við sjáum til dæmis ýmsa skemmtilega er 340 rúmmetrar og rennslið getur farið í 2.500 rúmmetra á sekúndu í flóðum. Mengun í ánni hefur verið mæld í nokkur ár og hún reynist sama sem engin. Gríðarlega mikil fiskgengd er í ánni, ein mesta gengd af laxi og sjóbirtingi í eina á í allri Evrópu,“ segir Tómas Ellert. Umferðin færist Sveitarfélagið Árborg hefur að undanförnu verið í auglýsingaherferð ásamt einkaaðilum til að kynna sveitarfélagið og kosti þess að velja sér þar búsetu. Tómas Ellert segir kynningarherferðina fyrst og fremst beinast að því að vekja athygli landsmanna á sveitarfélaginu og hvaða kosti svæðið hefur. Fyrstu auglýsingarnar fjölluðu um Selfoss og fljótlega munu birtast fleiri auglýsingar og þá frá Eyrarbakka, Stokkseyri og dreifbýlinu í Árborg. „Við lítum fyrst og fremst á Selfoss sem höfuðstað Suðurlands. Selfoss hefur frá stofnun verið þjónustubær. Hér er veitt Tómas Ellert situr hér í gröfunni og tekur skóflustungu að fjölnota íþróttahúsi en allur uppgröftur vegna þess fer í brekkurnar við íþróttasvæðið og úr verður snjóbrettabraut. „Við erum jafnvel að spá í að setja rennslisteppi svo hægt sé að nota hana allt árið,“ segir Tómas.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.