Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 2020, Blaðsíða 37

Sveitarstjórnarmál - 2020, Blaðsíða 37
SVEITARSTJÓRNARMÁL 37 HLUTI AF RPC GROUP SÆPLAST • Gunnarsbraut 12 • 620 Dalvík • Sími 460 5000 • sales.europe@saeplast.com • www.saeplast.com ® Sæplast er skrásett vörumerki í eigu RPC GROUP Byggingarreglugerðir krefjast þess að brunnar séu settir við allar nýbyggingar enda er mikið öryggi og kostnaðar hagkvæmni fólgin í að hafa aðgang að lögnum utanhúss vegna eftirlits og viðhalds. Sæplast framleiðir brunna til frá veitu lagna úr polyethylene-efni (PE). Í Sæplast -vörulínunni er fjölbreytt úrval brunna til að mæta mismunandi notkunar kröfum. Brunnarnir eru fáanlegir í þremur þvermáls stærðum: 400 mm, 600 mm og 1000 mm. ATH. Hægt er að fá upphækkanir á alla brunna. Fást í byggingavöruverslunum um land allt. Sæplast ráðleggur að ætíð sé leitað til fagaðila um niðursetningu á brunnum. Þar sem tvær lagnir koma saman þar ætti að vera brunnur möguleika með Austurveginn þar sem þjóðvegur 1 liggur nú. Það hafa komið fram hugmyndir um að gera hann að breiðstræti og að verslun og þjónusta muni aukast þar. Við Austurveg og á miðbæjarsvæðinu eru margar auðar lóðir og gömul hús sem ekki eru beint staðarprýði lengur svo þarna eru miklir möguleikar á að þétta byggð og hleypa meira lífi í svæðið. Þarna má sjá fyrir sér aukningu á húsnæði fyrir verslun og þjónustu með íbúðir á efri hæðum þannig að úr verði Strikið okkar landsmanna.“ Gríðarleg tækifæri Tómas Ellert bendir enn fremur á að við nýja þjóðveginn á að rísa nýtt 1.500 íbúa hverfi við bakka Ölfusár. Það er á vegum einkaaðila en sveitarfélagið er auk þess á fullu í gatnagerð í nýju hverfi á Selfossi sem ætlað er tvö þúsund íbúum og við hliðina á því er einkaaðili með í undirbúningi álíka stórt íbúðahverfi. Einnig er einkaaðili í gatnaframkvæmdum í svokölluðu Dísastaðalandi auk þess sem sveitarfélagið á gríðarstór landsvæði undir atvinnustarfsemi bæði á Selfossi og norðan við Eyrarbakka. „Hverfið sem liggur við nýja þjóðveginn er eitt fallegasta byggingarsvæði á landinu. Ég held að það verði alveg æðislegt. Ekki spillir fyrir að norðan við það verður nýr 18 holu golfvöllur og útivistarsvæði. Ef tekið er saman það sem er í bígerð og í pípunum hjá okkur og einkaaðilum mun á næstu árum rísa ný byggð fyrir um fimm þúsund íbúa á Selfossi og fyrir 500 íbúa á Eyrarbakka og Stokkseyri sem bjóða upp á mikla möguleika og þannig stefnir Sveitarfélagið Árborg í að verða 15 þúsund manna sveitarfélag innan skamms. Hér eru gríðarleg tækifæri til að efla byggðina og það er virkilega gaman að taka þátt í þessari þróun sem kjörinn fulltrúi,“ segir Tómas Ellert. Við lítum fyrst og fremst á Selfoss sem höfuðstað Suðurlands. Selfoss hefur frá stofnun verið þjónustubær. Hér er veitt hvers kyns þjónusta við um 25.000 íbúa og fyrirtæki á Suðurlandi og svo má ekki gleyma að á sumrin eru allt að 25.000 manns í sumarhúsabyggðunum hér í grennd.”

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.