Skessuhorn


Skessuhorn - 29.01.2020, Blaðsíða 5

Skessuhorn - 29.01.2020, Blaðsíða 5
arionbanki.is Arion banki atvinna Við leitum að metnaðarfullum starfsmanni í starf fjármálaráðgjafa í útibúi bankans í Borgarnesi. Við viljum fá til liðs við okkur aðila sem getur unnið sjálfstætt og hefur metnað til að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu. Fjármálaráðgjafar starfa í samræmi við þjónustu- og sölustefnu bankans hverju sinni og eru sérfræðingar í íbúðalánum og tryggingum einstaklinga. Arion banki er skráður á aðallista Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm. Jafn réttur kvenna og karla til starfa er okkur hjartans mál. Arion banki er jafnlaunavottaður en það felur í sér formlega staðfestingu á því að fagleg vinnubrögð séu til staðar við ákvörðun launa og að starfsfólki í jafnverðmætum störfum sé ekki mismunað. Helstu verkefni og ábyrgðarsvið Fjármálaráðgjafi sinnir ráðgjöf við viðskiptavini bankans um vöru- og þjónustuframboð í sparnaði, lánum, tryggingum og lífeyrismálum. Hæfni og eiginleikar • Háskólapróf sem nýtist í starfi og/eða góð bankareynsla • Vottunarnám fjármálaráðgjafa er kostur • Þekking á útlánum er æskileg • Rík þjónustulund og frumkvæði • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum Nánari upplýsingar veitir Sindri Sigurgeirsson svæðisstjóri, sími 430 4460, netfang sindri.sigurgeirsson@arionbanki.is og Brynja B. Gröndal mannauðsstjóri, sími 444 6386, netfang brynja.grondal@arionbanki.is. Umsóknarfrestur er til og með 9. febrúar 2020. Sótt er um starfið á arionbanki.is. Fullum trúnaði er heitið og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Fjármálaráðgja�i í Borgarnesi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.